Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1984, Page 5
DV. LAUGARDAGUR1. SEPTEMBER1984.
5
40 matvöru-
verslanir
halda áfram
með kortin
Lauslega áætlaö munu um 40 mat-
vöruverslanir á Stór-Reykjavíkur-
svæöinu halda áfram aö taka viö
greiöslukortum eftir daginn í dag, 1.
september. En nú er ljóst aö þær
verslanir, sem hafa sagt upp samn-
ingum sínum við greiöslukortafyrir-
tækin, munu láta verða af því. Þaö
þýöir aö þessar verslanir hætta meö
kortin í dag, 1. september.
Það hefur veriö rætt um þaö aö kort-
hafar komist í vanda meö aö fjár-
magna matarinnkaupin í september.
Sá ótti virðist vera ástæöulaus því
eins og fyrr segir munu um 40 mat-
vöruverslanir halda áfram aö taka á
móti kortum.
En þetta mál er ekki svo einfalt því
aö þær verslanir sem nú hætta hafa
haft um 80 prósent af veltunni í mat-
vöru. Allir stórmarkaöir ætla aö hætta
aö taka viö kortunum. Gunnar
Bæringsson, framkvæmdastjóri
Kreditkorta, sagði þó aö nú stæðu yfir
viöræöur viö tvo stóra verslunaraðila
og væri enn óvíst hvort þeir létu verða
af því aö segja upp samningum viö
Kreditkort sf. En aö öllu óbreyttu
munu þaö aðallega verða litlar og
meðalstórar verslanir sem halda
áfram meö kortin.
Þeir kaupmenn sem ætla að segja
upp kortunum spá því aö þessar
verslanir standi ekki undir því aö taka
viö kortum til langs tíma.
Viö höföum samband viö nokkra af
þeim kaupmönnum sem ætla aö halda
áfram með kortin og voru þeir sam-
mála um aö þaö væri nokkuö þung
byröi aö hafa kort þegar álagningin á
vörur væri jafnlítil og hún er nú. En
þeir ætla samt aö halda áfram að veita
þessa þjónustu.
Þaö er því óhætt aö spyrja sig aö því
hvort þessi þróun í greiöslukortamál-
um verði til þess aö kaupmaðurinn á
horninu veröi endurreistur eöa hvort
þetta muni endanlega ganga frá
honum.
Þess má svo geta að þegar endan-
lega veröur ljóst hvort af þessum upp-
sögnum veröur ætla greiösl ukorta-
fyrirtækin aö auglýsa rækilega þær
verslanir semhalda áframmeökortin.
-APH.
Listi yfir verslanir sem halda áfram
meö greiöslukort:
Vesturbær:
Baldur, Framnesvegi 29.
M. Gilsfjörö, Bræðraborgarstíg 1.
Kjörbúö vesturbæjar, Melhaga 2.
Melabúðin, Hagamel 39.
Miöbær:
Hringval, Hverfisgötu 4.
Hverfiskjötbúöin, Hverfisgötu 50.
Kjötbúr Péturs, Laugavegi 2.
Kjötbær hf., Laugavegi 34A.
NLF-búöin, Laugavegi 25.
Vínberiö, Laugavegi 43,
Þingholt, Grundarstíg 2A.
Austurbær:
Álfheimabúöin, Álfheimum 2—4.
Áskjör, Ásgaröi 22—24.
Bústaðabúðin, Hólmgarði 32.
Dalver, Dalbraut 3.
Kjalfell, Gnoöarvogi 78.
Kjötbúð Suöurvers, Stigahlíö 45.
Kjötmiöstöðin, Laugalæk 2.
Litligarður, Barmahlíö 8.
Lækjarkjör, Brekkulæk 1.
Matvörubúöin Grímsbæ, Efstalandi 26.
Matvöruhorniö, Laugarásvegi 1.
Múlakjör, Síöumúla 8.
Nóatún, Nóatúni 17.
Réttarholt, Réttarholtsvegi 1.
Sundaval, Kleppsvegi 150.
Sunnubúðin, Mávahlíö 26.
Sunnukjör, Skaftahlíö 24.
Vogaver, Gnoöarvogi 46.
Árbær:
Árbæjarkjör, Rofabæ 9.
Árbæjarmarkaöurinn, Rofabæ 39.
Kjörbúö Hraunbæjar, Hraunbæ 102.
Breiðholt:
Breiöholtskjör, Arnarbakka 4—6.
Valgaröur, Leirubakka 36.
Kópavogur:
Brekkuval, Hjallabrekku 2.
Drífa, Hlíöarvegi 53.
Kjarakjör, Kársnesbraut 93.
Forráðamenn þeirra 50 verslana sem nú hyggjast hætta meö greiðslukort héldu f jölmennan fund í fyrradag. Þar
voru enn ítrekaðar þær kröfur sem þeir hafa sett fram sem skilyrði fyrir áframhaldandi þátttöku.
DV-mynd s
Vöröufell, Þverbrekku 8. Kjörbúö Garöabæjar, Lækjarfit 7. Alfaskeiö, Álfaskeiö 115.
Xlarðabær: Hafnarfjörður: Arnarhraun, Arnarhraun21.
Svefnsófarnir komnir aftur
Fallegur sófí
á daginn— Gottrúmánóttunni
VIÐ
ERUMÁ
SÝIMIIMGUNNI
HÚSGAGNASÝNING
UM HELGINA
TM-HÚSGÖGN
Síðumúla 30 — simi 68-68-22
DUNDUR-
r
laugardag og sunnudag að Melavöllum við
Rauðagerði kl. 14—17. Þið hafið ekki lokið við
heimilissýninguna fyrr en þið hafið komið til
Nissan Stanza 1,8
lúxus-fjölskyldubíll sem fær
þig til að aka lengri leiðina heim
einungis ánægjunnar vegna. Nissan
Micra, einn sá allra smekklegasti frá
Japan. Bensíneyðsla 4,2 á hundraðið og
krafturinn samt algjör toppur. Trabant rallí.
Ætlarðu í Ijómann? Farðu á tæki sem vekur
athygli og hrifningu.E 10 Subaru sendibifreiðj
fjórhjóladrifin með nýrri 1000 CC vél, 5 gíra
og óstöðvandi í ófærð. Wartburg stendur
alltaf fyrir sínu hvenær og hvar
með sterkri sjálfstæðri grind
og sjálfstæðri fjöðrun á
hverju hjóli.
BILASYNING
okkar. Á óskalista helgarinnar eru IMissan
Patroi dísil, 6 strokka, 7 manna dúndur-jeppi
með 24ra volta rafkerfi í starti.
sem
KR. 20.000,-
í STAÐGREIÐSLUAFSLÁ1 \.
HJA OKKUR ER URVALIÐ
MEST OG KJÖRIN BEST.
INGVAR HELGASON HF
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.