Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Síða 14
14
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Gjaldhcimtunnar, skiptaréttar
Reykjavíkur, ýmissa iögmanna, banka, stofnana o. fl. fer fram
opinbert uppboð í uppboðssal tollstjórans í Reykjavík í Tollhúsinu við
Tryggvagötu (hafnarmegin) iaugardaginn 8. desember 1984 og hefst
þaðkl. 13.30.
Seldar verða ótoilaðar vörur, ótollaöar, notaðar bifreiðar og tæki,
beltabifhjói, upptækar vörur, lögteknir og fjárnumdir munir, svo og
ýmsir munir og áhöld úr dánar- og þrotabúum.
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík: 10 beltabifhjól, Volvo 142 árg.
1974, Volvo 145 árg. 1972, Morris árg. 1978, Renault 12 árg. 1971, VW
Polo árg. 1976, varahlutir í bifreiðar og báta, hjólbarðar, snyrtivara,
skrautvara, búsáhöld, þorskanet, gólfflísar, fittings, bakpokar, alls
konar fatnaður, speglar, matvara, sælgæti, skófatnaður, timbur, hús-
gögn, veggteppi, ljósritunarvélar, ieiktæki, pappírsvörur, nuddborö,
ballettskór, myndbandatæki, myndbandaspólur, ryksuga og margt
fleira.
Lögteknir og f járnumdir munir, svo og munir úr dánar- og þrotabúum,
svo sem: vörulager úr þb. Eskó hf., vefnaðarvara, rennilásar, töiur
spennur, alis konar fatnaður, reiknivél og margt fleira, skófatnaður,
armbandsúr. Ur dánarbúi: málverk og alls konar heimilisbúnaöur,
fjárnumdir munir og lögteknir, svo sem: fjöldi notaöra sjónvarps-
tækja, myndbandatæki, fatnaður, alls konar húsbúnaður, svo sem:
ísskápar, þvottavélar, frystikistur, borð- og dagstofuhúsgögn, skrif-
stofuáhöld, hijómflutningstæki, saumavélar, bifr., R—40115, Volvo
árg. 1972 og margt fleira.
Avísanir ekki tcknar gildar sem greiðsla nema með samþykki
uppboðshaldara eða gjaidkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík.
HEFNO ;
Nú eru hinar frábæru kvikmyndir ANGELIQUE 1 — 2 — 3 komnar á
myndbandaleigur.
SJÁIÐ ÞÆR OG UPPLIFIÐ STÖÐUGA SPENIMU, ÁTÖK, ÁSTIR
OG HATUR.
Myndir þessar eru um þessar mundir settar á myndbönd viðs
vegar um heim og alls staðar eru ummæli fólks um þær frábær.
ísland er í hópi fyrstu landa sem setja myndir þessar á mynd-
bönd.
ANGELIQUE 4-5 verða settar á markað í byrjun desember.
Leikstjóri: Bernhard Borderie.
Aðalhlutverk: Michéle Mercier, Samy Frey, Jean Rochefort,
Robert Hossein.
Kom sem framhaldssaga i Vikunni.
ARNAR-VIDEO
MYNDBANDAUMBOÐ
BREKKUGERÐ119 108 REYKJAVÍK. SÍMI 82128
Sovésk
kvikmyndavika
— I Regnboganum ver da sýndar sex
sovéskar kvikmyndir næstu viku
I dag hefst í Regnboganum sovésk
kvikmyndavika. Veröa sýndar sex
nýlegar kvikmyndir. Hafa þær veriö
valdar með tilliti til fjölbreytni. I
Sovétríkjunum eru starfandi þrjátíu
og níu kvikmyndaver og framleiöa þau
allt að 150 kvikmyndir á ári. Þessar
sex kvikmyndir, sem íslenskir áhorf-
endur fá augum litiö, eru allt verk
þekktra sovéskra leikstjóra.
Kvikmyndavikan veröur opnuð með
myndinni Anna Pavlova sem fjallar
um hina þekktu ballerínu sem uppi var
1881—1931. Myndin er gerð í samvinnu
við Breta og Frakka. Leikstjóri er
Emil Lotianu og er hann einnig hand-
ritshöfundur. I viötali segir leikstjór-
inn: Anna Pavlova er hetja. Örlög
hennar eru lík sögu um mannlegt hug-
rekki. Hetjulund í listinni er mér að
skapi. Aöalhlutverkiö leikur Galína
Beljaeva, en hún byrjaöi listaferil sinn
sem ballerína. Einnig leikur í mynd-
inni breski leikarinn James Fox og
franski leikarinn Jacques Debari.
Síöastliðið haust fékk Anna Pavlova
ein af aðalverölaununum á
kvikmyndahátíö í Moskvu.
Vassa er kvikmynd gerð eftir
sígildu leikriti Maxím Gorki. Leik-
stjóri er Gleb Panfilov. Vassa gerist
árið 1913. Vassa er 42 ára, eigandi
skipafélags við Volgu. Eiginmaður
hennar, sem er drykkjumaður og
•spilagosi, á að koma fyrir rétt fyrir að
leggja lag sitt viö stúlkur undir lög-
aldri. Vassa vill bjarga mannoröi
tveggja dætra sinna á giftingaraldri og
reynir að múta dómaranum en málið
er komiö of langt. Þá neyðir hún mann
sinn til aðtaka eitur. . .
Eldar Rjazanov gerir kvikmynd úr
öðru sígildu rússnesku verki eftir
Alexej Ostraovskí sem var einn mesti
leikritahöfundur Rússlands á 19. öld.
Rjazanov nefnir kvikmynd sína
Grimmilegur mansöngur. Eins og í
kvikmyndinni Vassa eiga atburðirnir
sér stað við Volgu. Þaö er einnig heim-
ur kaupmannastéttarinnar, aðeins
nokkrum áratugum fyrr. Hér mætast
gott og illt, ást og kuldi. Kvikmyndin
ber svip melodrama sem er komið frá
leikritinu.
Úskastundin er eftir einn elsta leik-
stjóra Sovétríkjanna í dag, Júlí Raiz-
man. Er myndin nútímamynd. Þar eru
á ferðinni vandamál sem persónur
samtímans takast á við. Aöalpersón-
an, sem leikin er af Veru Altenovu,
stendur á eigin fótum. Hún er f járhags-
lega sjálfstæð. Þrátt fyrir fjölmarga
kunningja er hún einmana. Giftast,
hvað sem það kostar, er rauði þráöur-
inn í myndinni. Hér er á ferðinni sál-
rænn harmleikur.
Aðurnefndar myndir eru allar
gerðar í Moskvu. Stríðssaga eftir leik-
stjórann Pjotr Todorovskí er aftur á
móti gerð í Odessa. Atburöir
myndarinnar gerast í heimsstyrjöld-
inni síðari og á sjötta áratugnum.
Söguhetjur eru ungar og kærulausar
og atburöarásin er frá þeim tímum
þegar stúdentar notuðu síðustu rúbl-
una sína til að kaupa blóm handa ást-
inni sinni.
Nafn kvikmyndarinnar Snúið heim
úr geimnum segir hvaö fjallaö er um.
Hún fjallar um geiminn. Ekki um
„stjörnustríð” eða „menn utan úr
geimnum” eins og svo vinsælt er. Þessi
mynd er um hetjur í geimnum, í þeim
geimi þar sem fólk er mánuöum
saman við störf. Höfundar myndar-
innar leggja á það áherslu aö starfiö í
geimstöð er líkamlegt, andlegt og
siðferðislegt álag. Mörg atriði voru
tekin á Bajkonúr-flugvelli en þar
hefur starfi um borð í Saljút-geimstöö-
inni verið stjómað. Leikstjóri er A.
Súrín.
HK.
Grimmilegur mansöngur er gerður eftir þekktu nítjándu aldar leikriti.