Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Qupperneq 23
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
23
ilsill
lilll
Wmm
ástandinu í samt lag nema á löngum
tíma. Þetta fólk mun hvorki eignast
kameldýr né asna á næstunni. ”
— En hvernig er þá hljóðið í hjálpar-
stofnunarfólki? Gefast menn ekki upp
andspænis svona miklum vandamálum?
„Menn reyna að vera vongóðir, það
þýðir ekkert annað. Takmarkið enn sem
komið er er ekki annaö en að halda í við
dauðsföllin. En vandamálin eru
ógnvekjandi, það er rétt. Það þarf til
dæmis að reisa vöruhús og skemmur til
þess að taka við öllum þessum hjálpar-
gögnum; það þarf líka að ganga úr
skugga um að þau komist öll á rétta staði
og verði að sem mestum notum. Hjá
Alþjóöa Rauða krossinum hefur það
gengið vonum framar enda er hann ekki
undir neinn annan settur, og við höfum
tvo menn í hverjum búðum til að hafa
eftirlit með dreifingu á mat, lyfjum,
teppum, klæðnaði og þess háttar. A hinn
bóginn höfum við heyrt að á sumum
öörum stööum gangi dreifingin ekki eins
vel, ýmist vegna mannfæðar eða
hreinlega óáreiöanleika þeirra sem um
hana eiga að sjá. Herinn er til dæmis
mjög áhugasamur um að taka við
hjálpargögnum og dreifa þeim en það
ganga sögur um að ekki nema helmingur
þess sem hann fær komist til hinna bág-
stöddu. Og meöal stjórnarandstæðinga
er Dr. David, yfirmaður Rauða kross
Eþíópíu, ekki vinsælastur manna.”
Naumlega sloppið undan
skæruliðum
— Geturðu nefnt mér dæmi um það?
„Já, ég var einn morguninn að fljúga
meö hann og nokkra fleiri til bæjarins
Lalibella. Þetta er mikill túristastaður,
enda eru þar stórmerkar kirkjur
grafnar í berg, og þegar við flugum yfir
staðinn urðum við ekki varir við neitt
óeðlilegt. Svo lentum við og fyrstur stökk
út eins konar öryggisvörður sem við
fengum frá stjórnvöldum og fylgdi okkur
í hverri ferð. Eg sá að f jöldi manns þusti
að flugvélinni og reiknaði með að þetta
væri fólk sem vonaðist eftir matar-
gjöfum eða einhverju þess háttar, en þá
stökk öryggisvöröurinn inn í vélina aftur
og skipaöi mér í loftið í einum hvelli. Þá
voru þetta stjórnarandstæðingar sem
höfðu náð bænum undir sig um nóttina
og bardagar stóðu raunar enn yfir. Við
sluppum en hins vegar tóku skæruliðar
einn mann frá okkur sem þarna var
staddur og eina tíu túrista í gíslingu.
Þeir slepptu Rauða krossstráknum og
nokkrum ferðamannanna eftir tíu daga,
en hinir urðu að fara fótgangandi til
Súdan. Skæruliðarnir voru á höttunum
eftir hjúkrunarfólki og öðru slíku;
ástandið er engu skárra hjá þeim. En
Rauða kross-maðurinn sagði okkur
seinna að þegar skæruliðarnir fréttu af
Dr. David um borð í vélinni okkar, þá
hefðu þeir bókstaflega fengið vatn í
munninn. Þeir áttu ýmislegt vantalað
viö hann og fannst þeir hafa misst af
góðumfeng.”
Fyrir hersýninguna hefði
mátt fæða þjóðina i þrjú ár
— Nú hefur stjórnin í Addis Ababa
mikil og sterk tengsl við Sovétmenn.
Taka þeir þátt í hjálparstarfinu?
„Eftir að Vesturlönd tókú við sér hafa
þeir orðið að sýna Ut líka, en fram til
þessa hafa þeir gert ógurlega lítið. Það
eru ekki nema tvö ár síðan Eþíópía var
sjálfri sér nóg um korn og átti raunar af-
gang sem vel heföi mátt nýta. En komið
var allt selt til Rússlands, og Rússamir
hiröa líka aUt gull jafnóðum og það er
grafið úr jörðu. A hinn bóginn dæla þeir
vppnum í Eí»ó{sustjóra I septanber var
haldið upp á tíu ára byltingarafmæU
með mikiUi viðhöfn og þá fór fram
feiknaleg hersýning í Addis Ababa.
Blööin skýrðu frá því aö fyrir peningana,
sem fóru í þessa hersýningu, hefði mátt
fæða aUa landsmenn í þrjú ár.”
— Það er talað um það núna að eina
ráðiö til þess að stemma stigu við
hungursneyðinni sé að hjálpa fólki á
þurrkasvæöunum til þess að bjarga sér á
eigin spýtur. Sýnist þér eitthvað bóla á
slíkri lausn?
„Ekki mikið. Og jafnvel þetta mál er
ekki eins einfalt og það virðist vera.
Stjórnvöld hafa gert þessa stefnu að
sinni og tala mikið um að koma fólki
fyrir á sérstökum svæðum þar sem það
geti byrjað upp á nýtt. Þetta er gott og
blessað, en þeir eru til sem halda því
fram að það eina sem vaki fyrir stjórn-
inni sé að koma þessu fólki úr umferð
svo enginn sjái neyð þess. Þetta er eins
og annað þarna suður frá. Vandamálin
eru svo flókin að það er ógjörningur að
átta sig á heildarmyndinni nema hafa
farið á staðinn. Og jafnvel þá liggja
lausnir alls ekki á lausu.”
— Þú ert á leið aftur á þurrkasvæðin
um miðjan desember. Hvernig leggst
það í þig?
„Satt að seja leggst það ágætlega í
mig,” sagði Jón Hallgrímsson. „Maður
hefur að minnsta kosti á tilfinningunni
aðmaðurséaðgeragagn.” -IJ.
NORÐDEKK
hetísólud rodúúdeUk
BESTA SNJÓMUNSTUR
SEMVÖLERÁ
Hjá okkur að RÉTTARHÁLSI 2
komast allir í hús, stórir sem smáir.
Stærsta og tæknilega fullkomnasta
dekkjaverkstæði landsins.
Þú slappar af í setustofunni á meðan
við skiptum um fyrir þig.
VINNU
STOFAN
HF
RÉTTARHÁLS 2 Simar: 84008 - 84009
SKIPHOLT 35 Símar: 31055 - 30360
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND