Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1984, Síða 37
DV. LAUGARDAGUR1. DESEMBER1984.
Danny,semer
26áraogfrá
Bandaríkjunum:
giftist
móöur
minni
T.v. Mary Ann fyrir rétti með hjóna-
vígsluvottorðið og mynd af syni sín-
um á barnsaldri.
„Kæri guð. Þú verður að fyrirgefa
mér. Eg hef framið mestu og
hneykslanlegustu synd sem maður
getur framið.”
Danny James Bass, 26 ára er
heltekinn af sektarkennd. Fyrir sex
árum giftist hann Mary Ann Bass
sem var 17 árum eldri. Hálfu ári
síðar komst hann að því að hún var
móöir hans.
„Hún vélaöi mig. Hún vissi allan
tímann að ég var sonur hennar.
Þetta var geðveiki,” segir hann.
Mary Ann Bass, sem er 43 ára,
heldur því fram að hún hafi ekki haft
minnstu hugmynd um að Danny var
sonur hennar. Nú er hann búinn aö
fara til lögfræöings til aö láta leysa
upp hjónabandið þannig að hann geti
gifst aftur og lifað eðlilegu lífi.
Þessi flókni harmleikur byrjaði
áriö 1961 þegar Mary Ann, sem þá
var 20 ára að aldri lét frænda sínum,
Horace Sullivan, son sinn eftir til
ættleiöslu. Danny var bara þriggja
ára en man móður sína: unga, fall-
ega og dökkhæröa konu. Ættleiðing-
in var í alla staði lögleg og Danny
eignaðist síöar tvö systkin.
Byrjaði með kaffibolla
Um framangreind efnisatriði eru
allir sammála. Flækjurnar hófust
fyrst þegar Danny var oröinn 18 ára
og lagðr fyrir sig spurninguna:
„Hvar er móðir mín? ”
í leit sinni kom hann til bæjarins
Dickson í Tennessee. Hann hafði
nafn og símanúmer frá frændanum
og fann þannig húsvagn í fátækra-
hverfi bæjarins. Hann bankaði
spenntur á hurðina. Ut úr vagninum
kom dökkhærö kona, nálægt fertugu.
Hún kannaðist ekki við nafnið á móð-
ur hans. „Nei, ég þekki ekki þetta
nafn. Hún hlýtur að vera flutt héðan.
En ég skal reyna að hjálpa þér. Má
bjóða þér kaffibolla?”
Þar með var það fullkomnað.
Bollunum fjölgaði og eftir um það bil
fimm mánuði fóru þau að fara út
saman. Eitt kvöldið sem þau voru úti
varpaði Mary Ann sprengjunni og
sagði Danny aö hún væri ástfangin af
honum.
„Þetta var mikiö áfall fyrir mig,”
segir Danny. „Eg sat bara og staröi
út í loftið án þess að koma upp hljóði.
Eg var þá ekki orðinn hrifinn af
henni. Hún var mér bara góður
vinur.”
„Mary Ann varö æ ástfangnari af
syni sínum. Eftir aö þau höfðu veriö
saman í tvo mánuði vildi hún að þau
giftust. Og Danny lét tæla sig út í það
Svona lítur Danny út í dag. „Þegar
mér varð sannleikurinn ljós var sem
hjarta mittbrysti.”
þrátt fyrir mikinn aldursmun. Hann
þarfnaðist konu og þessi gat látið
honum eftir dálítið af móður-
kærleikanum sem hann hafði saknað
frá barnæsku.
Hjónaband ekki nóg
I janúar 1978 giftust þau. Þau
gerðu það með eins mikilli leynd og
þau gátu og Danny flutti inn í hús-
vagninn til Mary Ann. Hann vissi
ekkert um að þetta var móðir hans.
En þetta var greinilega ekki nóg
fyrir hina ástföngnu Mary Ann. Hún
elskaöi son sinn svo einlægt að það
voru engin takmörk fyrir því sem
hún fann upp á til þess að hann
ánetjaöist ekki annarri konu.
Einungis þremur dögum eftir vígsl-
una gerðist hið ótrúlega: Mary Ann
ættleiddi son sinn sem hún var nýbú-
in að giftast. Ættleiðingin fór fram
undir fölsku nafni og undir því yfir-
skyni aö hún þyrfti hjálp til að
annast átta ára gamlan dreng sem
hún var áður búin að ættleiða. Það að
hún fékk ættleiðinguna opinberlega
viðurkennda er ótrúlegt en satt.
Mary Ann á sér sína eigin skýringu
áþvísemgerðist:
„Eg sá Danny í fyrsta sinn 1966
eftir ættleiðinguna. Síðar hringdi
hann margsinnis til frænku minnar.
Arið 1976 hringdi hann heim til mín í
fyrsta skipti. Einu ári síðar hringdi
hann aftur og við ákváðum að hitt-
ast.
Skýringar móðurinnar eru fullar
af mótsögnum. Hún heldur þvi meöal
annars fram að hún hafi ekkert vitaö
þegar Danny flutti til hennar að hann
væri sonur hennar. Hann hafði hins
vegar vitað það. Auk þess segir hún
hann hafa verið eiturlyfjaneytanda
strax frá gagnfræðaskólaaldri.
„Ég giftist einu konunni sem ég hef
nokkru sinni elskað. Ég vissi ekki að
hún myndi síðar gera líf mitt aö
helvíti,” segir Danny. Þama eru þau
mynduð á nýjársdag 1979.
Varð hermaður
Það er ekki einkennilegt að Danny
hafi verið dálítið undrandi yfir
margs konar flækjum sambúðar-
binar við móður sína. Á fáum dögum
var hann endurættleiddur af móður
sinni sem einnig varð eiginkona hans
og hann tók eftirnafniö Bass eftir
fyrri eiginmanni Mary Ann. Kvöld
eitt eftir mikiö rifrildi leiddi hún
hann í allan sannleikann og hann
ákvaö að yf irgefa hana.
Fyrst fór hann í herinn. En það
varð erfiðara en hann hélt. Móðirin
skrifaði honum í sífellu og grátbaö
hannaðkomaaftur.
Hann varð eftir nokkurn tíma
sendur heim úr herbúðunum. Ástæð-
an fyrir því var sú að hann þjáðist af
þunglyndi. Á meðan hann hafði verið
í hernum var Mary Ann tekin saman
við fyrri eiginmann og 8 ára uppeld-
issonur þeirra var hjá þeim. Ástand-
ið varð smám saman óþolandi fyrir
Danny og hann ákvað því að hverfa á
braut. Hann fékk sér lögfræðing til
að gera það ógilt að hann væri upp-
eldissonur Mary Ann og til að rifta
hjónabandinu líka. Viö það varö al-
menningi kunnugt um málsatvik og
Mary Ann var handtekin fyrir blóð-
skömm.
Síöustu árin hafa verið Danny
erfið.
„Frá því að mér var sannleikurinn
ljós í júní 1978 hef ég varla verið með
sjálfum mér,” segir hann.
„Eg skammaðist mín svo að ég
þorði ekki að bera mig upp við neinn.
Núna, sex árum síðar, er ég loks bú-
inn að hitta konuna sem mig hefur
alltaf dreymt um. En ég þori ekki að
horfast í augu við heiminn fyrr en
það er oröiö þekkt að ég var saklaust
fórnarlamb og að þessi harmleikur
var ekki mér að kenna.
Hvað er sannieikurinn
Mary Ann heldur sig staðfastlega
við framburð sinn að hún hafi ekki
vitað neitt um að Danny væri sonur
hennar þegar þau tóku saman. Hún
heldur því fram að það hafi verið
uppeldismóöir Dannys sem hafi sagt
sér að hún hef öi gifst syni sínum.
„Ég var alveg miður mín og ákvaö
að spyrja Danny hvernig í öllu lægi. ”
Spurningin er hvort þeirra segir
satt. Þeim mun ólíkari og flóknari
sem framburður þeirra veröur þeim
mun erfiöara verður málið.
B
□
□
□
Sóknarfélagar — Vilborgarsjóður
37
DaaaoQaaDaDDaaaDaaaaaaaDDaaaaaaaoDODDaDaaaaa
B
° Þeir Sóknarf élagar sem eiga rétt á styrk úr V ilborgarsjóði eru q
D beðnir að hafa samband við skrifstofuna fyrir 12. desember D
D □
D D
d Starfsmannafélagið Sókn. a
D □
□ □
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
Frá menntamála-
ráðuneytinu
Verkmenntaskólann á Akureyri vantar kennara frá næstu
áramótum tii að kenna faggreinar rafiðna. Umsækjendur
þurfa bð hafa sérmenntun í viökomandi kennslugreinum.
Umsóknir skal senda til ráðuneytisins fyrir 15. desember
næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Aðalgeir Pálsson í
Verkmenntaskóla Akureyrar, sími 96-26812.
Menntamálaráðuneytið.
BÍLDSHÖFÐA 16.
3
HD
CD
Seljum í dag
Chevrolet Malibu Classic árg. 1979. 4ra
dyra, ljósdrapp og brúnn, 8 cyl., 305 cub.,
sjálfsk., vökvastýri, litað gler, tauáklæði,
mjög fallegur bíll.
Opið
10-4.
TÖGGUR HR
SAAB UMBOÐIÐ
SELJUM NOTAÐA
bíla iy
TEGUND ÁRGERÐ LITUR EKINN VERÐ
BMW 525 1982 grænsans. 53.000 780.000
BMW 520 1981 blár 72.000 400.000
BMW 518 1982 Ijósblár 43.000 440.000
BMW 518 1980 brúnsans. 66.000 340.000
BMW 320 1982 hvítur 31.000 440.000
BMW 320 1981 drapp. 17.000 380.000
BMW 320 1981 gullsans. 47.000 380.000
BMW 318i 1982 gullsans. 11.000 430.000
BMW 315 1982 hvítur 10.000 345.000
Renault 18 TS 1980 rauöur 95.000 210.000
Subaru 1600 4 x4 1978 drapp. 104.000 130.000
Toyota Corolla 1978 silfurgrár 90.000 125.000
SELJUM IMOTAÐA BÍLA
ÚRVAL ANNARRA BÍLA Á SÖLUSKRÁ,
ÝMISS KONAR SKIPTI HUGSANLEG.
Opið laugardag 1—5.
KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN
KRISTINN GUÐNASON HF. <gO>
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633.^*^