Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Síða 19
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
19
STUÐMENN
Ný plata
Kvikmynd
ífebrúar
Stuömenn hata ekki setiö auðum
höndum aö undanförnu. 1 sumar og
haust hafa þeir verið viö upptöku á
nýrri kvikmynd er nefnist Hvítir máv-
ar. Og eins og vænta má eru tónlistinni
gerö góö skil í myndinni. Hafa þeir fé-
lagar samiö nokkra hugljúfar melódí-
ur er skreyta munu myndina sem aö
öllum h'kindum er gamanmynd.
í vikunni héldu Stuðmenn blaöa-
mannafund í tilefni af því að lögin úr
kvikmyndinni eru komin á plast. Mun
sú skífa vera hinum fjölmörgu aðdá-
endum Stuömanna hin mesta jólagleði.
Stuömenn hafa yfirleitt ekki farið
troönar slóöir í sínum uppákomum.
Eins var um blaðamannafundinn. Var
hann haldinn í gróðurhúsi hjá Blóma-
vali.
Fór þar vel um gesti innan um blómin.
Stuðmenn kynntu plötuna sem ber
heitið Kókostré og Hvítir mávar og
sýndu videomy nd sem gerð hefur veriö
utan um eitt lagiö, Gó-Gó partí. 1 þeirri
mynd eru meöal annars stuttir bútar
úr væntanlegri kvikmynd. Einu leynd-
armáli í sambandi við Stutoenn var
ljóstraö upp. Er þaö hvernig nafnið
Stuðmenn varö til. Hefur nokkurs mis-
skilnings gætt í túlkun á nafninu. Hafa
flestir haldiö því fram að Stuðmenn
þýddi „menn í stuði”. 1 raun er Stuö-
menn komið út af tyrkneska orðinu
stut, sem þýöir „hinn holdlegi kraft-
ur”. Stuðmenn eru sem sagt „menn
hins holdlega krafts”. Er ekki aö efa
aö vegur Stuömanna mun enn fara upp
á við í krafti þess skilnings sem al-
menningur fær nú loksins á nafni
þeirra.
HK.
Stuðmenn og velunnarar á góðri stundu á blaðamannafundi sem haldinn var í Blómavali í tilefni af útkomu nýrrar plötu. Ef vel er að gáð má
sjá æstan aðdáanda i bakgrunni.
NYTT LYKTARLAUST KÓPAL A ELDHÚSIÐ
KÓPAL FLOS oe KÓPAL JAPANLAKK
04 ISJ
7s
>
C 2
O
>
a o
o
> 71
> ot m
A? 71
71
Nú er þér óhætt að leggja til atlögu við eldhúsið heima
hjá þér. Þú getur létkkað auðveldlega með nýja
KÓPAL-lakkinu - bæði veggi, skápa, innréttingar, borð
og stóla án þess að hafa áhyggjur af sterkri lykt eða
höfuðverk af þeim sökum.
KÓPAL-lakkið er lyktarlaust og mengar því ekki and-
rúmsloftið. Áferðin er skínandi falleg, bæði gljáandi
(KÓPAL JAPANLAKK) og perlumött (KÓPAL FLOS). Þú
getur lakkað svo að segja hvað sem er - og skolað
síðan pensla og áhöld með vatni.
Betra getur það varla verið.
a cn oi
co o o
o tn 6