Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 20
20
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
VemÆKKUMÍ
Laufabrauðs-
át íslendinga
að aukast
Norðlendingar halda ekki jól án
laufabrauðsins og eru Sunnlendingar
margir hverjir að taka upp þann góöa
sið. Er blaöamaöur og ljósmyndari DV
heimsóttu bakarí í Kópavoginum, sem
ber nafnið „Ömmubakstur”, var
laufabrauösgerð þar í f ulium gangi.
Siðan er laufabrauðinu pakkaö.
I „Ömmubakstri” stjórnuðu þeir
feögar Friörik Haraldsson og
Haraldur Friðriksson. Starfsfólkiö, um
15 manns, haföi varla tíma til aö líta
upp því nóg var að gera. Aðaluppi-
staðan hjá „Ömmubakstri” er flat-
kökugerð en ýmislegt annað fylgir svo
sem kleinur og kleinuhringir.
Haraldur sagði aö laufabrauösgerð
væri orðin fastur liður hjá þeim fyrir
jólin. Byrjað væri að baka um 20.
nóvember því þá væri fólk fariö að
spyrja eftir því og bakað væri alveg
fram undir jólin. En aöaltími laufa-
brauðsgerðar er í byr jun desember.
„Algengt er að félög og samtök taki
sig saman og kaupi kökumar og skeri
síðan í og steiki sjálf. Foreldra- og
kennarafélög, saumaklúbbar, átthaga-
félög gera mikið að þessu. Til dæmis
um síðustu helgi hélt Foreldra- og
kennarafélaga Hólabrekkuskóla laufa-
brauðsdag með krökkunum og um
þessa helgi ætlar Breiðholtsskóli að
gera hiö sama. Mikiö er um aö frænd-
fólk, jafnvel heilu ættirnar, komi
saman í laufabrauðsgerð,” sagði
Haraldur.
Deigið var lagað klukkan 8 í morgun.
Síðan er það látið standa í tvo tíma til
að það slakni á því. Deigið þarf aö vera
stíft svo hægt sé að breiða út mjög
þunnt. Næst fer deigð í útrúUningsvél
þar sem því er rúllað út mjög þunnt.
Gleðíleg jól. Sanítas hf.
Laufabrauðið er skorið og steikt
heima.
DV-myndir: Bj. Bj.
. . . og látið i neytenda-umbúðir. í
pakkanum eru 25 kökur og kostar
pakkinn 275krónur.
ÍSS* 0,281 * 1 1 i ^ÉJ| 3®
% 7 KR