Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 43
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
43
Jóhaim K. Pétursson
verdur jarðsiuigtnn í dag
Þó aö Péturssonar sé ekki getiö í
heimsmetabók Guinnes haföi David
Frost viðtal við hann í þáttaröð sinni
meö heimsmetafólki.
Pétursson lifir nú einföldu lifi.
Honum þykir gaman að tefla eöa spila
bingó í Showmen’s Club og fara á frí-
múrarafundi. Hann kveðst vera
hræðilegur kokkur og snæðir því oft
úti.
Bæöi föt hans og skór eru sérstak-
lega gerð fyrir hann. Þá var Chevrolet-
bílnum hans breytt þannig að sætin
voru færð aftar. Annars kemst hann
ekki fyrir í neinum bíl.
Mestur tími hans fer í bréfaskriftir
til fjölmargra vina hans um allan
heim. Snjáðar orðabækur hjálpa
honum aö skrifa á fjórum tungu-
málum: ensku, íslensku, dönsku og
þýsku.
Einn mjog narnn vrnur hans,
Þjóðverjinn Felix Adanos, sendi
honum nýlega eintak af bók sinni,
„Show Freaks and Monsters”, en í
henni eru meðal annars myndir og
texti um Pétursson.
„Ég skrifaði honum og sagðist
skammast mín fyrir hans hönd vegna
nafnsins á bókinni. Hann skrifaði þá
aftur og sagöi aö útgefandinn hefði
ráðið nafninu — honum líkaði það líka
Hér lýkur viðtali Panky Glamsch við
Jóhann K. Pétursson, en það var birt
undir fyrirsögninni: ,,A Giant With A
Gentle Disposition”. Því má til dæmis
snara sem „Blíðlyndi risinn”. Og nú
þegar Jóhann verður jarðsunginn er
ekki vafi á því að Gullna hliðið verður
nógustórt.
Þetta póstkort af Jóhanni var gefið út i Þýskalandi.
Annað póstkort af Jóhanni. Hann heldur hór á dverg
nokkrum sem kallaði sig Prinz Deumling en þeir
skemmtu mikið saman í Þýskalandi og voru auk þess
mikiir vinir.
■
'
'Wmm
w '
V"\ ■
Þessar fjórar myndir fylgdu viðtalinu við Jóhann K. Pétursson i The Tampa
Tribune. Þær sýna hann ásamt tveimur ungum nágrönnum sinum, ftusty
Vance, 9 ára, og Karen systur hans, 4ra ára. Börnin i Riverview voru mikiir
vinir Jóhanns. Eins og sjá má á einni myndinni passa þrir fingur Karenar
litlu innan i hring Jóhanns.
ríkjunum. Pétursson var þá á samn-
ingi hjá öðrum en Bandaríkjamenn-
imir sögðu honum aö hvenær sem aö
hann væri til í tuskið biði hans starf
vestra.
Þegar síðari heimsstyrjöldin braust
út reyndi hann aö komast heim til sín.
Hann hugðist aka til Danmerkur og
sigla þaðan til Islands, en svo illa vildi
til að hann var í Kaupmannahöfn
þegar Þjóðverjar hertóku Danmörku.
I sex ár vann hann „snattstörf í skipa-
smíöastöð”.
Ariö 1939 haföi hann byrjað í nýju
starfi. Hann lék jólasveininn í stór-
mörkuðum. Yfirmenn markaöa
fussuðu í fyrstu viö honum („Þú gerir
börnin dauðskelkuð”) en Péturssyni
tókst aö sannfæra þá um að leyfa
honum aö prófa. Hann sló undir eins í
gegn. Börnin flykktust að honum svo
að fyrsti markaðurinn fylltist út úr
dyrum og það varð aö flytja hann í
stærraherbergi.
Þegar stríðinu í Evrópu lauk hélt
Pétursson fyrst heim til Islands, en
1948 kom hann í fyrsta sinn hingað til
Bandaríkjanna. Frumraun hans var í
Madison Square Garden með Ringling
Brothers og Bamum & Baily Circus, og
hjá þeim var hann í allmörg ár. Síðan
lá leiöin til f jölleikahúsa sem ferðuðust
um Bandaríkin vítt og breitt. I nokkur
ár var hann hjá Royal American sem
haf ði aðsetur í Tampa.
I fyrstu var Pétursson jafnan uppá-
klæddur á sýningum; með pípuhatt í
kjólfötum. Síðan fékk hann þá hug-
mynd aö búa sig sem víkingur. Frá
1963 og þar til hann dró sig í hlé árið
1973 gekk hann undir nafninu Víkinga-
risinn og var með eigin sýningu. Að
lokum neyddu hár blóðþrýstingur og
aðrir kvillar hann til þess aö hætta
störfum.
Kt
fp! . „w'V
| •,\
m