Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 26
26
DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984.
œgnVERÐBÓLGU
Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá
bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur.
Hækkandí vextír
Hávaxtareikningur ber stighækkandi
vexti, 17% í fyrstu sem strax eftir
2 mánuði hækka um 1,5% á mánuði
uns 24,5% er náð. Eftir samanlagðan
12 mánaða sparnað hækka vextirnir
síðan um 1% til viðbótar og eru 25,5%
upp frá því.
Ársávöxtun
Vextir leggjast við höfuðstól 30. júní og
31. desember ár hvert og fer því
ársávöxtun aldrei niður fyrir 27,12% en
getur náð 27,58% sem ræðst af því
hvenær ársins lagt er inn.
Vextír frá stofndegí
Allar vaxtahækkanir Hávaxtareiknings
reiknast frá stofndegi og falla aldrei
niður á sparnaðartímanum. Þannig
tryggir afturvirk prósentuhækkun bestu
kjörin.
Nýstáríegt fýrírkomulag
Stofnskírteini er gefið út fyrir hverri
innborgun og er hvert stofnskírteini til
útborgunar í einu lagi. Því er sjálfsagt að
deila innborgun á fleiri skírteini sem gerir
úttekt á hluta fjárins mögulega, án þess
að vaxtakjör eftirstöðva rýrni.
Obundinn
Hvert skírteini er laust til útborgunar
fyrirvaralaust.
Betrí kjör bjóðast varla.
HMA
Sigurður Bjarklind í opinni fallhlíf yfir Akureyrarflugvelli.
„Fallhlífarstökkvarar eiga oft erfitt
með að útskýra fyrir öðrum í hverju
töfrar þess að stökkva eru fólgnir.
Reyndar er tæpast hægt aö lýsa þessu
með orðum, þetta er upplifun sem ekki
er hægt að deila meö öðrum en þeim
sem stökkva með,” segir Siguröur
Bjarklind fallhlífarstökkskennari.
Ljósmyndir geta þó gefiö einhverja
hugmynd um hvað málið snýst. I
ágústmánuði síðastliðið sumar kom
norskur fallhlífarstökkvari i heimsókn
til Akureyrar. Hann heitir Jens-Henrik
Jensen og er einnig „freelance” blaða-
maður.
Hann stökk meðal annars með
félögum í Fallhlifaklúbbi Akureyrar
og tók þessar myndir sem hér birtast.
Myndirnar eru af þeim Sigurði
Bjarklind (480 stökk) og Steindóri
Steindórssyni (105 stökk) og eru
teknar í stökki yfir Akureyrarflugvelli
úr 7.500 feta hæð. Þessar myndir tala
sínu máli. Nokkrar af þessum
myndum hafa birst í „Flynytt”,
norsku blaði um flugmál. Þar er meðal
annars sagt frá upphafi fallhlífar-
stökksá Islandi:
„Fyrsta fallhlífarstökk á Islandi var
14. júní 1966 og það var Agnar Kofoed-'
Hansen sem stökk. Ástæðan var sú að
Hansen taldi að flugbjörgunarsveitin
þyrfti að geta stokkið í fallhlíf. Til þess
að aðrir stykkju ákvað hann að
stökkva fyrst. Með Agnari Kofoed-.
Hansen voru ellefu aðrir stökkvarar á
fyrsta námskeiðinu. Þeirra á meðal
var Sigurður Bjarklind. Áriö 1968 fór
fyrsta keppni fram. Fyrsti kvenfall-
hlífarstökkvari var Björg Kofoed-.
Hansen, dóttir frumkvöðulsins.”
-SGV.
Sigurður Bjarklind spáir í málin út um gluggann á Dornier vél Haraldar Snæhólm
flugkappa. Þessi mynd er tekin yfir Melgerðismelum í Eyjafirði.