Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 22
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 116., 119. og 122. tölublaöi Lögbirtlngablaðsins 1983 á eigninni Kársnesbraut 24 — hluta —, þingl. eign Hermanns Sölva- sonar, fer fram aö kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl., Verslunarbanka Islands, Einars Viðar, Guðjóns Steingrímssonar hrl., Ara isberg hdl. og Brunabótafélags íslands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 12. desember ki. 11.30. Bsjarfógetinn í Kópavogi. St. Jósefsspítali Landakoti Lausar stöður: Hjúkrunarfræðingar — Barnadeild — Handlækningadeild, II-B — Lyflækningadeildir, I-A og II-A — Skurödeild Sjúkraliðar — Barnadeild — Handlækningadeild, II-B — I.yflækningadeildir, I-A og II-A Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjukrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600 frá kl. 11.00—12.00 og 13.00—14.00 alla virka daga. Röntgenhjúkrunarfræðingur Köntgentæknir óskast sem fyrst viö röntgendeild. Upplýsing- ar veitir deildarstjóri kl. 11.00—12.00 og 13.00—14.00 alla virka daga. Starfsmenn við ræstingarstörf Upplýsingar gefur ræstingarstjóri kl. 11.00—12.00 og 13.00— 14.00 e.h. alla virka daga. Reykjavík 5. des. 1984. Skriístofa hjúkrunarforstjóra. Tilkynning Frá Fiskveiöasjóði íslands Umsóknir um lán á árinu 1985 og endur- nýjun eldri umsókna. Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóði Islands á árinu 1985 hefur eftirfarandi veriö ákveðið: 1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði Engin lán verða veitt til byggingaframkvæmda nema hugsan- leg viöbótarlán vegna bygginga, sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé aö ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjómar. Eftir því sem fjármagn sjóðsins, þar með talið hagræðingarfé hrekkur til, verður lánað til véla, tækja og breytinga, sem hafa í för meö sér bætt gæði og aukna framleiðni. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforö Fiskveiða- sjóðs liggur fyrir. 2. Vegna fiskiskipa. Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til skipta á aflvél og til tækjakaupa og endurbóta, ef talið er nauð- synlegt og hagkvæmt. Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiða- sjóðs liggur fyrir. 3. Endurnýjun umsókna. Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endumýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvemig þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur verið veitt til. 4. Umsóknarfrestur. Umsóknarfrestur er til 15. desember 1984. 5. Almennt. Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, aö öðr- 'im kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiðasjóðs Islands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur). Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu 1985 nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp. Reykjavík 16. október 1984. Fiskveiðasjóður íslands. DV. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER1984. Hann leikur Philip York. Ekki dregur Makduff af sér. enskur leikhópur sýnir Makbeð á Akureyri ogíReykjavík Makbeð kemur frá Tókíó til Akureyr- ar. Þetta þykir ef til vill nokkuð óvana- leg leið fyrir Skotakóng, en er alveg í anda The London Shakespeare Group. Það er leikhópurinn sem setur harm- leikinn upp hér á landi, fyrst fyrir norðan og síðan í Reykjavík. Sýningamar á Akureyri verða næst- komandi miðvikudag og fimmtudag, 12. og 13. desember, en í Þjóðleikhús- inu sýnir flokkurinn á föstudag og laugardag, 14. og 15. desember. Rétt er að vekja athygli á því aö einungis verður um þessar fjórar sýningar aö ræða. I upprunalegri mynd Shakespeares krefst Makbeö f jölda leikara, en í þess- ari útgáfu The London Shakespeare Group er aðeins notast við sjö. Þaö segir sig því sjálft að um sérstaka leik- gerð er að ræða sem hefur í för meðsér nokkra einföldun, en þó eru uppfærslur þessa flokks annálaðar fyrir það hversu vel og trúmannlega þær ná Shakespeare-verkunum með fáum leikurum. Farangur aðeins þrjár kistur The London Shakespeare Group er rekið á vegum British Councii og var þetta nafn fyrst notaö áriö 1968. Þá var fjórum breskum leikurum boðiö að ferðast milli háskóia í Japan í því skyni að kynna verk Shakespeares með stuttum leikatriðum; þessi hópur fór ennfremur um suðausturhluta Asíu með sömu leikatriði. Áður hafði British Council að vísu sent litla flokka af þjálfuðum Shakespeareleikurum um ýmis lönd en frá og með ofannefndri leikför festist nafnið The London Shakespeare Group við slíkar feröir. Hópurinn hefur ferðast um 36 lönd á undanförnum sjö árum og sýnt bæði harmieiki og gamanleiki ViOa skálds. Takmarkið er að sýna leikritin á eins skýran og einfaldan hátt og unnt er með svo takmörkuðum leikarafjölda og farangri sem flokkurinn hefur tamiö sér. Farangurinn er yfirleitt aöeins þrjár kistur og hafa þær marg- sinnis verið notaðar sem leikmynd. British Council á fimmtíu ára afmæli á þessu ári og af þeirri ástæðu er Herra og frú Makbeð sest i hásætið; Richard Heffer og HHary Drake í hlut- verkum sinum. vandað sérstaklega til uppfærslunnar á Makbeð. Leikaramir í sýningunni eru sjö: Richard Heffer, er leikur þrjótinn Makbeð, Hilary Drake, er leikur flagðið konu hans, og svo Gareth Armstrong, Philip Bowen, John Fraser, Mark Greenstreet og Philip York. Allt eru þetta margreyndir og þekktir leikarar úr leikhúsunum á Bretlandi, auk þess sem þeir hafa bæði leikiö í kvikmyndum og sjónvarpi. Leikmynd geröu John Fraser og danski maðurinn Kristian Vang Rasmussen; sá síðamefndi teiknaði einnig búninga, en lýsingu og fram- kvæmdastjórn annast Howard Harri- son. Blóð kallar á blóð Ef aö líkum lætur þarf vart að kynna harmleikinn um Makbeð fyrir Islendingum. Fyrir nokkrum árum setti Leikfélag Reykjavíkur leikinn upp; hann hefur einnig veriö sýndur í sjónvarpi og í bíói. Það var Pólverjinn barngóði, Roman Polanski, sem stjómaði síðustu Makbeö-myndinni sem sýnd hefur veriö hér. En til upprif junar má geta þess aö leikritiö hefst þegar Makbeð og Bankó, skoskir aöalsmenn, eru á leið til konungs síns eftir aö hafa unnið frækilegan sigur á uppreisnarmönnum sem nutu stuðn- ings norskra víkinga. Áður en þeir kumpánar ná til kóngs hitta þeir fyrir nomir þrjár sem gefa þeim, og einkum Makbeð, fyrirheit um mikla upphefð. Hann á að veröa kóngur en Bankó að geta af sér f jölda kónga án þess þó að hann fái kórónu á kollinn sjálfur. Kóngurinn Dúnkan launar Makbeð vel fyrir afrek hans gegn uppreisnar- mönnum en mikið vill meira og Mak- beð tekur að hugleiöa að myrða kon- ung svo spá nomanna megi rætast og hann sjáifur verða hæstráðandi Skot- lands. Eggjaður áfram af konu sinni lætur hann til skarar skríða, en blóð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.