Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1984, Blaðsíða 48
 Þaö verífa mörg handjárn í eldinum um helgina. Madur hrœrir vel íþessu, gerir ekkert til þótt það fari pínulítid í dúkinn. Og svo eru aðrir sem hafa öðru að sinna og gefa lítið út ú jólaföndrið. DV-mynd GVA skíðafæri Ekkert útlit er fyrir að Reykvíkingar geti tekið fram skíðin og brugðið sér i skíðalönd sin á næstunni þar sem skiðafæri er ekkert enn sem komið er. Valur Jóhannsson, formaöur Skíöa- deildar KR, sagði i samtali við DV að nánast enginn snjór væri kominn í f jöllin. Að vísu væri hægt að finna einn og einn skafl en stórhættulegt væri að leggjaiþá. -KÞ Sættir í Sodastream Samkomulag hefur oröið um sátt i Sodastreammálinu svokallaða. Þaö felur í sér aö fyrirtækið hættir að aug- lýsa gjöf á Fíat bifreiö frá og með deginum í gær. En ætlar Davíð að gefa bflinn? ,,Ég ætla að gefa bílinn. Því er ég bú- inn aö lofa. Hann verður afhentur rpeð viðhöfn fyrstu dagana í janúar.” — Hvers vegna sættir þú þig við sátt og hættir að auglýsa? „Ætli það hafi ekki verið vegna þess aö auglýsingaprógrammið var búið. Eg tel áfram að þessi lög séu brot á stjómarskránni,” sagöi Davíö Schev- ing, forstjóri Sólar hf. -APH Oslóartréð tendrað á morgun Á morgun verður kveikt á jólatrénu á Austurvelli. Að venju mun borgar- stjórinn veita trénu viðtöku. Tréð er eins og kunnugt er gjöf Oslóarbúa til Reykvíkinga. Sá siður hefur verið við lýði í rúm 30 ár. Sendiherra eða réttara sagt sendifrú Noregs, Annemarie Lorentzen, munafhendatréð. Athöfnin hefst klukkan 15 með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur. Ljósin verða tendruð hálftíma síðar. Þvi næst mun Dómkirkjukórinn syngja. Að öllu þessu loknu mun siðan hefjast barnaskemmtun á Austur- velh. -APH. t t i i i i i t i i i i I Mikið fyrír Irtið_ /VIIKLIG4RDUR Tveir teknir með fíkniefni Tollverðir á Keflavíkurflugvelli tóku í gær tvo pilta sem voru að koma meö flugvélinni frá Kaup- mannahöfn. Fannst í fórum annars þeirra smá- vegis af fíkniefnum. Var það, svo og piltamír báðir, flutt til Reykjavík- ur þar sem starfsmenn fikniefna- deildar yfirheyrðu þá. Starfsmenn deildarinnar fóm í fyrrakvöld inn í íbúð í Breiðholti, en þar lék grunur á að væri „blóma- rækt” i gangi sem ekki væri að skapi yfirvalda. Reyndist þaö rétt vera því þar fundu þeir kannabisjurtir og tilheyr- andi ljósabúnað. Var það allt gert upptækt og eigendumir teknir til yfirheyrslu. -klp Skólabfll í árekstri Skólabíll, sem í voru nokkur böm, lenti í gær í hörðum árekstri við fólksbil sem var f ullhlaðinn fólki. Gerðist þetta við Akralæk sem er skammt frá Akranesi. Skólabíll- inn rann til í háiku og fór í veg fyrii fólksbilinn. Var áreksturinn svo haröur að fólksbíllinn er talinn ónýt- uráeftir. Fólkið sem í honum var slasaðist ekki. Þau sem voru i framsætunum voru í öryggisbeltum og er talið aö þaö hafi bjargaö þvi að þau sluppu ómeidd. Slys urðu heldur ekki á bömunum í skóiabilnum og er það einnig talin mesta mildi. -klp FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir SÍMIIMN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krénur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984. Islenskt fótbolta forrit til Bretlands Hafin er sala á forriti frá fyrirtæk- inu Tölvuþekkingu til aöila erlendis. Hefur forritið verið selt tii Bretlands. Er unnið aö því að kynna það í Qeiri löndum. Þaö er Aimenna bókafélagið sem sér um dreifingu þess erlendis. „Þetta forrit er notað til að spá fyrir um niðurstöður i breska fótbolt- ann,” sagði Oddur Benediktsson er DV ræddi við hann. Oddur bjó til for- ritið ásamt þeim Hjálmtý Hafsteins- syni og Guðmundi Karissyni. „Með því er hægt aö kalla fram upplýsing- ar um leiki, leikmenn og þjálfara fjögur ár aftur í timann. Með þvi er hægt að spá fyrir um leiki og setja inn nýjar niöurstööur og upplýsingar eftir því sem á keppnistimabiiiö iíð- ur. Notandlnn getur bætt við kerfið sjálfur þeim upplýsingum sem hann kýs að hafainnL” Sem fyrr sagði er þarna um að ræða gagnakerfi fyrir bresku knatt- spyrnuna. Heyrir þaö undir forritun- armálið „micro-prolog” sem er nýtt afnálinni. Oddur sagöi aö forritið hefði eink- um verlð selt hér heima og i Bret- landi enn sem komíð værl Þá hefðu borist fyrirspumir frá Belgiu, Sví- þjóð og fleiri löndum. Yrði stefnt að því að kynna þessa nýjung sem við- ast á næstunni. Z-JSS Búðir opnar til sex í dag Afgreiðslutími verslana fram að jól- um verður með eðlilegum hætti á virk- umdögum.frá kl. 9 til 18. Hins vegar lengist afgreiðslutími á laugardögum nú nokkuð. I dag eru verslanir opnar til klukkan 18. Næsta laugardag, 15. desember, verða verslanir opnar til klukkan 22. Og þar sem Þoriáksmessu ber upp á sunnudag verða verslanir opnar til klukkan 23 laugardaginn 22. desember. Á aðfangadag og gamiársdag er heimilt að hafa verslanir opnar til hádegis. JI Veðrið um helgina I dag verður hæg, breytileg átt eða norðangola á landinu. Smáél á Norð- austurlandi. Fremur svalt i veðri. Um kvöldið og nóttina fara skil norðaustur yfir landið með slyddu eða rigningu og hlýnar talsvert. A sunnu- dag kólnar aftur en vindur snýst til suðvesturs. Verða þá él um sunnan- og vestanvert landið en birtir til á Norð- austurlandi. EM I t t t t t i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.