Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Blaðsíða 21
20
DV. MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER1984.
DV. MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER1984.
21
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
þróttir
íþróttir
'^í/, d*' ' \ P. %*rd9as. _ Handknattleikssamband íslands 1 fékk hæsta upphæð, þegar úthlutað | var úr afreksmannasjóði tSt í gær 1 eða 140 þusund krónur. Sjóðurinn var 1 stofnaður fyrir sex árum og síðan ■ hefur verið úthlutað úr honum sam- i tals einni milljón og átta hundrað þúsund krónum. í gær var úthiutað styrkjum sam- tals að upphæö 380 þúsund krónur. HSÍ fékk 140 þúsund, Knattspyrnu- samband íslands 100 þúsund krónur, hvort tveggja fyrir góðan árangur landsliöa. Þá fengu þrjú önnur sér- sambönd þrjátíu þúsund hvert, Bad- mintonsamband Islands, Golfsam- band íslands og Júdósamband ts- lands. ■■■■ ■■■§ ■■■ ■■■■ ■■■■
|% ■ * ■ r b ■ ■ ■ ■ ■ i ■ ■
Lothar Matthaus, — púað á hann í
Mönchengladbach.
C—15 FERÐATÆKI
Stereoútvarp / segulband
meó FM, langb., miðb. og
stuttb., 5 banda tónjafnari
og 2 way losanlegir hátalar
ar.
Verð kr. 13.658 stgr.
VTCM20
MYNDSEGULBAND
Fyrsta flokks BETA mynd-
segulbandstæki með þráð
lausri fjarstýringu.
Verð aðeins kr. 39.900 stgr.
RAFMAGNSRAKVÉLAR
Verð frá kr. 1.735.
Gunnar Asgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 Sirrn 9135200
IICÍ CCKK MtCT
1191 ÍUlll lflC.91
— þegar úthlutað var úr af reksmannasjóði ÍSÍ
Þá var Bjarni Friðriksson styrktur ■
úr afreksmannasjóðum, eða um I
fimmtíu þúsund krónur, fyrir frá- I
bærau árangur á ólympíuleikunum i ■
Los Angeies í sumar en hann hlaut I
þar bronsverðlaun. ^
Bayern tapaði í Mönchengladbach:
Sigur Borussia opnaði
Bundesliguna upp á gátt
Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni
DV í V-Þýskalandi.
Borussia Mönchengladbach geröi
sér lítið fyrir og sigraði Bayern
Miinchen, 3—1, í Bundesligunni í gær-
kvöldi. Leiknum var sjónvarpaö beint
frá leikvanginum i Mönchengladbach.
Prýðilega leikinn og bauð upp á mikla
spennu. Fagnað alls staðar, nema í
Miinchen, að Borussia skyldi sigra, því
það heldur 1. deildinni opinni. Bayern
er nú efst með 25 stig, Werder Bremen
hefur 23, Bayer Uerdingen og Borussia
Mönchengladbach 21 stig.
Landsliösmaðurinn Matthaus, sem
Bayem fékk frá Giadbach, lék nú sinn
fyrsta leik gegn sínum gömlu félögum.
Mikið skrifaö um hann fyrir leikinn,
honum jafnvel hallmælt af þjálfara og
fyrri félögum fyrir að hafa „svikið”
Gladbach með því að fara til Miinchen.
Púað á hann þegar hann birtist á leik-
vellinum og reyndar allan leikinn. Það
hafði greinilega sín áhrif. Hann var
mjög taugaóstyrkur.
Leikmenn Gladbach sóttu meir í
byrjun og á 14. mín. komst Frank Mill í
færi en belgíski landsliösmarkvörður-
inn hjá Bayern, Pfaff, varði meistara-
lega. Það var þó ekki langt í mörkin. Á
21. mín. fékk Gladbach hornspyrnu
sem Krauss tók. Gaf vel fyrir og MiII
skoraði óverjandi. Tveimur mín. síðar
fékk Bayem tækifæri til að jafna, Wolil-
farth komst einn inn fyrir vörnina.
Sude markvöröur kom út á móti hon-
um og Wohlfarth spyrnti framhjá.
Litlumunaöiþá.
Bayernjafnar
Mínútu síðar tókst Bayern að jafna
og var Mathy þar að verki eftir undir-
búning Wohlfart, eins af ungu strákun-
um I Bayern-liðinu. 1—1 en það stóð
ekki lengi. Á 27. mín. fékk Gladbach
hornspyrnu, sjöunda eða áttunda hom-
spyrna liðsins fram að þeim tíma. Bolt-
inn barst fyrir markið, Augen-
Ingemar Stenmark
kemst ekki á blað
— Varð í 13. sæti í stórsvigi heimsbikarsins í gær
— Fyrsti sigur Girardelli í stórsvigi
Sænski skíðakóngurinn, Ingemar
Stenmark, á erfitt uppdráttar í keppni
heimsbikarsins að þessu sinni. Hefur
enn ekki hiotið stig og varð að láta sér
nægja 13. sætið í stórsvigi í Sestriere á
italíu í gær. Áður fyrr sigraði hann
undantekningalítiö í stórsviginu. Hefur
þar mun fleiri sigra en nokkur annar.
Það var Lúxemborgarinn Girardelli
sem sigraði í stórsviginu í gær, næst-
um sekúndu á undan næsta manni.
Keyrði á 2:25,56 mín. Annar varð
Markus Wasmaier, V-Þýskalandi, á
2:26,51 mín. Max Julen, Sviss, þriöji á
2:26,74 mín. í fjórða sæti varð Hans
Enn, Austurríki, á 2:26,74 mín. og
fimmti Pirmin Zurbriggen, Sviss, á
2:26,91 mín. Hann sigraði í keppni
heimsbikarsins í vor og hefur forustu
nú. Stenmark varð 13. á 2:28,72 mín. og
það er raunar í fyrsta skipti sem hann
fellur ekki úr keppni heimsbikarsins
núí vetur.
Eftir fyrri umferðina í gær var Marc
Girardelli með bestan tíma, 1:11,34
mín. en Enn í næsta sæti á 1:11,72 mín.
Greinilegt þá þegar að Stenmark
mundi ekki blanda sér í keppnina um
efstu sætin, keyröi á 1:12,92 mín.
Zurbriggen er nú efstur í keppni
heimsbikarsins. Hefur hlotið 75 stig.
Girardelli fylgir fast á eftir. Er með
sjötíu stig. Robert Erlacher, ítalíu,
þriðji með 58 stig. I fjórða sæti er
Martin Hangl, Sviss, með 40 stig og
landi hans Max Jules fimmti með 39
stig. Jonas Nilsson, Svíþjóö, er bestur
Norðurlandabúa með 20 stig í 13. sæti.
Marc Girardelli sem fæddur er í
Austurríki, hefur ekki áður sigrað í
stórsvigi í keppni heimsbikarsins. Hins
vegar sjö sinnum oröið í ööru sæti.
hsím.
Handknattleiksdeild Víkings hefur nýlega gengið frá samningum við tvö fyrirtæki, ADIDAS-umboðiö á Islandi og
Almennar tryggingar.
Á blaðamannafundi sem handknattleiksdeild Vikings boðaði til vegna þessara samninga kom fram, að samning-
ar þessir hljóða upp á um 750 þúsund krónur. Víkingar munu þvi hér eftir leika í búningum frá Adidas og auglýsa
Almennar tryggingar á nýju búningunum.
Á myndinni eru frá vinstri: Olafur Schram frá Adidas, Þorbergur Aðalsteinsson, Hilmar Sigurgísiason, Viggó
Sigurðsson, Siggeir Magnússon og Örn Henningsson fulltrúi Almennra trygginga.
thaler hreinsaöi frá. Knötturinn barst
til Borowka, sem skoraði meö þrumu-
fleyg af 25 metra færi. Viöstööulaust
skot og knötturinn lenti innan á stöng
og í markiö. Eitt fallegasta markið í
Bundesligunni í vetur. Sex mínútum
síðar komst Gladbach í 3—1. Bayern
hafði sótt talsvert eftir annaö markiö,
Gladbach náði skyndisókn og Frontzek
skoraði, 3—1, og þannig var staðan í
hálfleik.
I síðari hálfleiknum skiptust liðin á
að skora og leikurinn var fjörugur og
vel leikinn. En það var ekki fyrr en á
87. mín. aö mark var skorað. Dieter
Hoeness skoraði þá annaö mark
Bayern. Gífurleg spenna þær minútur
sem eftir lifðu og Bayem reyndi allt til
að jafna. Það tókst þó ekki en litlu
munaði. Sigur Gladbach var aö mörgu
leyti sanngjarn þó jafntefli hefði ekki
verið fjarri. En hvað um það. Nú verð-
ur gert hlé fram í janúar og spennan
verður mikil þegar tekið verður til á
ný. HO/hsím.
Miitthhis Kiiiiirsson átti injiig góðiin lcik ineð KK i gær-
kviildi gegn Hnukum og skoraði 16 stig. Hér gev sist hiinii
:tó Hnukiikiirtunni og Ivar Webster l\ lgisfineð.
H\'-im nd Kr\ n jar (iauti.
PÁLMAR SÁ UM
AÐ AFGREIÐA KR
— Haukar sigruðu KR í miklum baráttuleik, 78-72
Ef ekki hefði komið til stórkostlegur
leikur Pálmars Sigurðssonar í fyrri
hálfleik í leik Hauka og KR í úrvals-
deildinni í körfu í gærkvöldi má víst
telja að KR-ingar hefðu staöið uppi
sem sigurvegarar í lok leiksins.
Haukar sigruðu hins vegar í Haga-
skólanum með 78 stigum gegn 72 eftir
að staðan í leikhléi hafði veriö 48—35
Haukum í vil. Pálmar fór hamförum í
fyrri hálfleik, skoraði 24 stig, þar af
voru þrjú langskot sem gáfu þrjú stig
og síðan mataði hann félaga sma af
snilld.
KR-ingar náöu aldrei að ógna hafn-
firskum sigri í gærkvöldi og það er
greinilegt að erfitt verður að stööva
strákana hans Einars Bollasonar á leið
þeirra aö fyrsta Íslandsmeistaratitli
félagsins í úrvalsdeild. KR-ingar léku
ekki illa í gærkvöldi en barátta var
ekki til staðar fyrr en allt var komið í
óefni og meira en það.
Pálmar var yfirburðamaöur á vell-
inum í gærkvöldi, sérlega í fyrri hálf-
leiknum en Ivar Webster átti einnig
ágætan leik. Hirti mikið af fráköstum
en var frekar óheppinn í sókninni.
Henning Henningsson var mjög sterk-
ur í vörninni. Kristinn var óvenju ör-
I
BESTINNIUM
JÓL OG ÁRAMÓT
George Best, knattspyruubitillinn
frægi hér á árum, verður í fangelsi
um jól og áramót. Hann var dæmdur
í þriggja mánaða fangelsi nýlega
fyrir að hafa ckið drukkinn og slegið
lögregluþjón. Best reýndi að fá fang-
elsisdómnum frestað fram yfir ára-
mótin. Mál hans var tekið fyrir í rétti
í Lundúnum í gær. Dómarinn sagði
aö ekki kæmi til mála að fresta fang-
eisísdómnum — til þess væri ferill
Best í drykkjunni of þekktur.
hsim.
Georges Best.
uggur í sóknarleiknum og Eyþór skor-
aöi tvær dýrmætar körfur í lokin.
Huuka-liöiö barðist vel ef frá eru tald-
ar fyrstu tíu mínútur leiksins.
KR-ingar byrjuðu leikinn vel og
komust í 17—8 en síðan var mest allur
vindur úr liðinu. Lokakafla fyrri hálf-
leiks fékk liðiö á sig 24 stig en skoraði
aðeins 9. Matthías Einarsson var lang-
bestur KR-inga í gærkvöldi og ef KR
hefði unnið þennan leik þá hefði það
verið honum aö þakka. Hann ætti að fá
aö leika mun meira. Þeir Birgir Micha-
elsen og Ölafur Guðmundsson áttu
einnig góðan leik.
Stig Hauka og einkunnir: Pálmar 35
(4), Ivar 19 (3), Kristinn8 (2), Henning
7(3), Eyþór 4 (2), Reynir2 (1) og Hálf-
dán 2 (1). Þess má geta að Pálmar
fékksína4. villuáö. mín.s.h.
KR: Birgir 18 (2), Ölafur 18 (2), Matt-
hías 16 (3), Guðni 10 (1), Ástþór 6 (2),
Þorsteinn4 (1).
Dómarar voru þeir Sigurður Valur
Halldórsson og Kristinn Albertsson.
Einkunnir þeirra: Sigurður Valur 2,
Kristinn 1.
-SK.
Stórsigur
KR-stúlkna
KR-ingar áttu ekki erfitt með að
sigra slakt lið Hauka í 1. dcild kvenna-
körfunnar í gærkvöldi en leikið var í
Hagaskóla. KR sigraði 51—36 og var
leikurinn mjög slakur af beggja liða
hálfu.
-SK
c Ixford
Utd. „1 ið
ársins 11 i
Oxford United, uudir stjórn millans Roberts Max-
well og stjórans Jim Smith, hefur verið kjörið „lið
ársins” á Englandi fyrir snjallan árangur á árinu
1984. Varð fyrir ofan Liverpool og Everton, þrátt
fyrir stórsigra Liverpool-liðanna.
Oxford varð í efsta sæti í þriðju deild i vor. Vakti
að auki mikla athygli í bikarkeppni. Og sigurganga
liðsins hefur haldið áfram í 2. deild. Er nú þar í efsta
sæti „en við höfum litla möguleika á að verða stórlið
nema við fáum gott svæði fyrir nýjan leikvang,”
segir Jim Smith. Þar stendur hnifurinn i kúnni.
Möguleikar til þess eru afar litlir í Oxfordshire.
Leikvangur liðsins nú er ekki í háskólaborginni
frægu, heldur í Headington og það var nafn félags-
ins áður en því var breytt í Oxford Utd.
Bóka- og blaðaútgefandinn Robert Maxwell, sem
fyrr á þessu ári keypti Mirror-blaðaútgáfuna, enda
fyrrum þingmaður krata, hefur miklar hugmyndir
um að gera Oxford að stórveldi á knattspyrnusvið-
inu. Þessi fyrrum flóttamaður frá Tékkóslóvakiu
i síðari heimsstyrjöldinni hefur næga peninga til
þess, — ef aðstaða býðst og hann hefur meira að
segja hótað þvi að flytja aðalstöðvar félagsins frá
Oxfordshire.
Fyrir skömmu reyndi Oxford að fá enska lands-
liðsmanninn Trevor Francis frá Sampdoria á Italiu
en að sögn BBC í gær verður ekkert af því á þessu
leiktímabili. Maxwell hafði ákveðið að senda Smith
til Genúa eftir áramótin til að ræða við forráðamenn
Genúa-liðsins um Francis. Francis lék með
Birmingham, þegar Smith var þar stjóri en varð að
selja hann til Nottm. Forest. Francis varð þá fyrsti
„milljón-punda-leikmaðurinn” á Engiandi.
hsim.
OPIÐ: Mánud. -föstud. kl. 9—22.
BÍIKÓ
OPIÐ: Laugard. og sunnud. kl.9 —18.
LÁTTU NÚ VERÐA AFÞVÍ AÐ KOMA BÍLNUM
ÞÍNUM í GOTT LAG FYRIR HÁTÍÐAR
(Þarf hann ekki að fara í jólabað líka?)
í BJÖRTU OG HREINLEGU
HÚSNÆÐI MEÐ VERK-
FÆRUM FRÁ OKKUR
GETUR ÞÚ STUNDAÐ BÍL-
INN ÞINN GEGN VÆGU
GJALDI.
ATHUGIÐ!
Askasleikir, foringi jólasveinanna,
og Stekkjarstaur, vinur hans,
koma í heimsókn laugardaginn
15. des. kl. 14.00.
Allir krakkar velkomnir.
BÍLAÞJÓNUSTAN
KÓPAVOGI
• Viðgerðaverkstæði • Lyfta
• Lénum logsuðu og kolsýrutæki
• Smurþjénusta
• Aðstaða til þvotta og þrifa
> Háþrýstiþvottatæki
• Barnaleikherbergi
Seljum hinar heimsþekktu
bón- og hreinsivörur.
Einnig hin viöurkenndu
I ryðvarnarefni.
TRIDON^ rúðuþurrkur — púströrs-
klemmur — ryðfríar
Einmig hosuklemmur og fleira
fyrirliggjandi °9 f,eira tH smáviðgerða.
kveikjuhlutir í flestar gerðir
bifreiða.
JL
SMIÐJUVEGI 56
SÍIVII 79110