Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Blaðsíða 18
18 DV. MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER1984. Lögtaksúrskurður Hér meö úrskuröast að lögtök fyrir vangoldnum útsvörum, að- stööugjöldum og fasteignagjöldum, álögðum í Kjalarnes- hreppi 1984 mega fara fram á ábyrgð sveitarsjóðs Kjalarnes- hrepps, en á kostnað gjaldenda, aö liðnum 8 dögum frá birt- ingu þessarar auglýsingar. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Menning Menning ^ÁL FÓÐRAÐUR KULDAFATNAÐUR frá MAX Allir kannast viö frábæra einangrun álpoka og álteppa. Nú kemur álfóðraður fatnaður frá MAX með sömu eiginleika. ★ Álfilman er stungin með DAKRON vattefni v/öndunar likamans. ★ Heldur stöðugum likamshita. ★ Frábært einangrun- argildi (frábær ein- angrun). ★ Þunnir og þægilegir. ★ Hentar öllum. Burtmeö i/nida oakvet Ármúla 5 / við Hallarmúla S: 82833 Verslunin Vinnan, Síðumúla 29. Domus, Laugavegi. Hin mannlegu samskipti Töff týpa á föstu. Höfundur: Andrós Indriðason. Myndir: Anna Cynthia Leplar. Útgefandi: Mól og menning. Töff týpa á föstu er þriðja bók Andrésar Indriðasonar um sögu- hetjuna Elías sem nú er að veröa býsna „töff týpa” að eigin dómi, a.m.k. þegar sjálfstraustiö er í efri mörkunum, ekki síst fyrir þaö að vera nú á föstu. Bókin á undan þessari, Fjórtán... bráðum fimmtán, gerist að sumar- lagi (frá 11. júní til verslunarmanna- helgar) og er skrifuð í eins konar dagbókarformi. Sagan Töff týpa á föstu tekur upp þráðinn í október og heldur honum til jóla. Henni er skipt í þrjá hluta: I. Október 1983, n. Nóvember, III. Desember. Hver hluti skiptist í smærri kafla sem hafa hver sitt heiti. Höfundur hefur horfiö frá dagbókarforminu og eins þeim frásagnarhætti sem einkenndi bók- ina á undan, þ.e. aö segja ýmist frá í fyrstu eða þriðju persónu og er nýja bókin öll þriðju persónu frásögn. Aöstæður Elíasar eru breyttar. Eftir fráfall föður hans (í síðustu bók) hafa mæðginin (hann og móðir hans) flutt í minni íbúð og Elías byrj- aö í nýjum skóla. Nýjar aðstæður viröast ekki þrúga Elías. Hann er borubrattur í skólanum og eignast þar fljótlega kunningja og aðdáend- ur úr hópi gagnstæða kynsins. Gömul vinabönd virðast slitin, öll nema hið sterka samband við Evu, hlaupa- spíru á Akranesi, sem myndaðist í síðustu bók. Það sem helst veldur Elíasi hugarangri er skilningsleysi móður hans. Hún lítur enn á hann sem „litla bamið” og Elías stendur í skugga Lása, stóra bróður. Engir stórvægilegir atburðir verða í lífi Elíasar þessa þrjá vetrarmán- uöi heldur er það hversdagslífið sem er frásagnarefni Andrésar: Skóla- dagar með litlum spaugilegum at- vikum og klaufaskap, kvöld og helgar með „video” — og sjónvarps- glápi og partíum. Snarir þættir eru líka ýmiss konar unglingafikt, unglingaástir og mannleg samskipti af misjöfnum toga. Andrés sýnir raunar fram á að það eru hin mann- legu samskipti sem eru mikilvægust af öllu og ráða því hvernig mannin- um famast, ekki síst unglingi sem á, sjálfstraust sitt og sjálfskennd undir því að vera tekinn gildur í samfélagi sínu. Varðandi atburði síðustu bókar finnst mér höfundur hafa fariö óþarf- Hildur Hermóðsdóttir lega fljótt yfir sögu. Það eru jú aðeins tveir mánuöir síöan heimilis- faðirinn f ór f erðina löngu þegar þessi bók hefst og allar þær breytingar hafa orðið sem fyrr eru taldar. Nú virðist hann nær fullkomlega gleymdur og minningin truflar ekki líf mæöginanna. Burtséö frá þessu þá tekst Andrési vissulega aö glæöa sögu sína spennu og trúverðugleika og persónumar lífi, — þaö er jú líöandi stund sem máli skiptir. Elías stendur lesandan- um ljóslega fyrir hugskotssjónum og geöbrigði hans eru ætíð í rökréttu samhengi orsaka og afleiðinga. Öðru hvoru skín líka í kvikuna undir niðri, andartak, án þess að rjúfa fram- vindu frásagnarinnar. „/.../ skrýtið að vera hér á aðfangadagskvöldi. I fyrra voru þau öll heima, hann og mamma og pabbi, hann man það vel. Svo komu Lási og Heiða svífandi á sæluskýi; hún var ófrisk. Það var allt í lukkunnar standi. Sigurlás situr á miðju gólfi og spænir jólapappír utan af fjallháum pakka. /.../ (bls. 148). Næst Elíasi kemst lesandi líklega í köflunum þar sem Eva er í heim- sókn. Samband þeirra er náið og fall- egt, aldrei væmið. Þau skilja hvort annað, eru skotin en þó umfram allt góöir félagar. Með Evu er Elías hann sjálfur, óþvingaöur og þá gægjast fram bestu eöliskostir hans: gott skap, glettni og einlægni. Stíll Andrésar er léttur og hnitmiöaður, aldrei teygður lopinn eöa farið of langt á neinum staö. Hann heldur sig viö lifandi daglegt mál, unglingamál þar sem það á við og verður aldrei hjáróma. Hann þekkir vel heún krakka á þessum aldri, þ.e. krakka Í8. bekk sem eru á milli vita og eru að læra að lifa lífinu eins og fullorðiö fólk. Hann veit greinilega hvað þau eru að fást við í skólanum (a.m.k. í reikningi) og utan hans, hver áhugamálin eru og hvaða tónlist þau eru að hlusta á. Utangarðsböm er ekki viðfangsefni þessarar sögu heldur ósköp venjulegir, frekar góðir, krakkar sem höfundur skapar jákvætt viö- horf til. Fyrir lestur Töff týpu á föstu var ég staðráðin í að fetta fingur út í nafnið sem óneitanlega kemur ankannalega fyrir sjónir í fyrstu og er óíslenskulegt. Eftir lesturinn er ég ekki viss um að annað nafn heföi hæft henni betur. Það vísar til málfarsins á bókinni og höfundur undirbyggir það mjög vel í sögunni, þess vegna verður settur hér punktur. HH í'j WMV á öllum blaðsölustöðum Tvö síðustu tölublöð voru metsölublöð Misstu ekki metsöluviku úr lífi þínu! M * MEÐAL EFNISI ÞESSARI VIKU: GREINAR OG VIÐTOI.: 4 Jólaföndur - jólagjafir. 6 Tiskan breytist stöóugt i Rússlandi 8 Stjömuspekingar uppgötva nýjar stjornur. 12 Blaóamaöurmn sem varö milljönan.-—- . . ~r " SKSS32SKKSS33g5 z, BesU sunurnvrdu ukln I HolUndi. Alhend.ng sumar- myndaverölaunanna. -------- 28 Fimm bestu i sumarmyndakeppninm.--------------- 32 Plakat: EkkertannaðenFrankiegoestoHollywood. SOGUR: 18 Smásagan: Snadrottningin. 38 Vikanogtilveran: Eldsvoöinn. 40 Witly Breinholst: Merkisdagur i lífi Hansens hins unga. 42 Framhaldssagan: Astir Emmu.Q.hluti. fastiruðir 17 Enska knattspyman. Islenska getraunakerfiö. 24 Heimiliö: Forstofuþankar. 25 Eldhús VIKUNN AR: Bókhveitihleifar meö reyklau.- 34 Vísindi fyrir almenning. —--TTr 36 Handavinna: Svona gerum viö þegar við bólstrum okkar rt6!. 48 Pósturinn. --------- b8 Bamaopnan: Jólaþrautirfyrir óþreyjufulla. ---- 60 Popp: David Bowie og mánaöarlegt plast. Auglýsing er augljós í Vikunni VIKAN - AUGLÝSINGAR r * » Jólaföndur - jóiagjafír fíússnesk hátjska Bfaðámoðurínn seni 'varð niilljá Flmm basiu myndimar i sl _... í myndskeppnlnni og aíhending veríHauna > Ptakat: Franlfle góös to Holfýw islanska msku kmitsp) Hugmyndir um Svonagarum vlð bójtétrum S$P#«í ' íi að váiða, Hmtt víif tfíitldór skipstjára MEÐ AUGU OGHEILA Ólafur Gunnarsson: GAGA. Iflunn, 1984. Tileinkað Jóhanni Póli Ástæða er til að vekja að nýju athygli á bók sem kom út um mitt þetta ár og hætt við að fáir þekki. Hún heitir GAGA og er eftir Olaf Gunnarsson. Byrjun sögunnar er eúiföld: „Hann ákvað að skipta um plánetu og vaknaði upp á Mars”. Líkast martröð: Georg Kafkas vaknaði í líki bjöllu, þú i dimmleitri veröld þai’ sem óvætturin vokir. Valdi í sjopp- unni hrekkur hins vegar upp einn myrkan vetrardag kominn til Mars, laus úr fjötrum en þó lostinn skelfingu sem eykst þegar á líður — því marsbúarnir viðurkenna hann ekki heldur nálgast í gervum mennskra; þeir villa um fyrir honum svo hann nær engu sambandi — uns hann að lokum springur og drepur eitt afkvæma þeirra: kornabam í vöggu; þá loks gliðnar hillingin að nokkru og marsbúamir bera andlit sín — en skelfingin er söm við sig, framandleikinn, og magnast. I bókarlok stígur Valdi um borö í flug- vél á Keflavíkurflugvelli og vill „heim” til Islands; en verður fljótt ljóst að leiðin liggur til vítisplánet- unnar Sayol, sem svo er hræöileg að mönnum býðst að láta skera úr sér augu og heila áður en þangaö kemur, hann neyðir flugmennina til að víkja af leið og lenda á Islandi — sem er plánetan ógnlega, ályktar lesandi. GAGA er örstutt og efnisrík skáld- saga; frásögnin hnituð um fáein atriði sem setjast í hugann að lokn- um lestri, einstakar myndir dregnar af natúralískri nákvæmni svo kunnuglegt umhverfi kviknar í smáatriðum fyrir sjónum lesanda, málað þó með annarlegum litum því það birtist okkur úr sjónarhorni manns sem glataö hefur venjubundnum tengslum við þaö. GAGA er ekki „science-fiction” heldur sálfræðUeg hrollvekja, líkust draumsýn sem í allri sinni rökleysu bendir á veruleika okkar. Að sumu leyti minnir söguhetjan á Donkikóta einsog flestar aðrar „módernar” söguhetjur; hún snýst viö veruleikanum með því að gera fjar- stæðukennda uppreisn gegn honum, Bókmenntir Matthías V. Sæmundsson óhugnaðurinn í því fólginn að ofskynjunarvilla hennar er í raun veruleiki, geðveiki hennar rökrétt viðbragð. Valdi í sjoppunni er gaga, en um leiö einn fárra sem hvorki geta skorið úr sér augu né heila, hann kann ekki að hunsa hrylUnginn og móka tU þrautar, truflun hans afleiöing af truflun samtímans. Þessi þriðja skáldsaga Olafs Gunnarssonar er hrottafengin, full af myrkri og hroUi, einsemd. Frá- sagnartæknin lagar sig vel að efni- viðnum, í senn raunvís og framand- leg, rökrétt og ólógísk; stíUinn á stundum of hrár en yfirleitt mynd- rænn og sterkur. GAGA er nýstárlegt verk og á skilið athygli bókaunn- enda. MVS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.