Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1984, Blaðsíða 12
12 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON oy INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiösla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakurhf. Áskriftarverð á mánuöi310kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr. Friöarboði undir ógnarstjórn Uthlutun friöarverölauna Nóbels hefur ekki alltaf tekizt sem skyldi. Dæmi um slíkt er, þegar Henry Kissinger og Le Duc Tho fengu friöarverðlaunin áriö 1973, forystu- menn í Bandaríkjunum og Norður-Víetnam, sem höföu staðiö fyrir stríöi árum saman. Verölaunin voru veitt, af því að þessir stríðsmenn höfðu samið friö, sem kallaöur var, í raun uppgjöf Bandaríkjamanna í Víetnamstríðinu. Því er þetta nefnt, aö ástæða er til aö gleðjiast, þegar vel tekst til eins og nú í ár. Suður-afríski biskupinn, Desmond Tutu, er maður friöar eftir því sem unnt er við aðstæður, sem þeldökkir lifa við í Suður-Afríku. Þaö er talandi tím- anna tákn, að sprengjuhótun varð til að tefja afhendingu verðlaunanna í Osló í fyrradag. I Suöur-Afríku eru svertingjar mikill meirihluti lands- manna, eöa um tveir þriðju. Hvítir menn eru aöeins tæpui fimmtungur. Afgangurinn er kynblendingar og fólk af Asíuuppruna. 011 vitum við um ríkjandi stefnu þar í landi, aöskilnað kynþáttanna, sem þýöir undirokun á hin- um þeldökku. Merkur sjónvarpsþáttur um Afríku var sýndur hér á landi fyrir skömmu. Þar gátu Islendingar áttað sig á, hvernig löngum var í Evrópu litið á Afríku- svertingja sem engu óæðri kynþátt en hvíta menn, þar til svertingjar urðu verzlunarvara og „nauösynlegt” var talið, að hvítir menn teldu svarta kynþáttinn standa sér langt að baki. Kynþáttahatrið var því magnað vegna viðskiptaaðstæðna. Hvíti minnihlutinn í Suður-Afríku álítur sér nauösynlegt að viöhalda slíkum úreltum kenningum, því án þeirra á yfirdrottnun hinna hvítu enga réttlætingu. Desmond Tutu og félagar hans berjast gegn ríkjandi stefnu með friösamlegum ráðum, en róttækir svertingjar í Suöur-Afríku hneigjast til aö.láta sverfa til stáls. Hvíti minnihlutinn ræður að sjálfsögðu yfir- þyrmandi stríðsvél. I krafti hennar hafa leiötogar blökku- manna sætt afarkostum. Islandsdeild Amnesty Inter- national minntist tíu ára afmælis síns á sunnudaginn. Hún tekur þátt í baráttu samtakanna fyrir málstaö sam- vizkufanga um allan heim, austan tjalds og vestan. Þessi samtök hafa einmitt miklar áhyggjur af framferði vald- hafanna í Suður-Afríku, fangelsunum án réttarhalda, fjölda samvizkufanga, sem ósjaldan sæta hinni hroðaleg- ustu meðferö. Þaö réttlætir ekki áframhaldandi völd hvíta minnihlut- ans í Suður-Afríku og ofríki hans, þótt landstjórn hafi farizt illa víða í ríkjum svörtu Afríku. Islendingar segjast vera stuöningsmenn jafnréttis kynþátta. I nýlegri skoðanakönnun hér á landi lögðu menn mikið upp úr jöfn- uði. Spurningin er, hvort efldir verða þeir menn, bæðii svartir og hvítir, sem vilja, að þessi breyting verði með friðsamlegum hætti og eru reiðubúnir að gefa nokkuð eftir í því skyni. I hópi slíkra manna er Tutu biskup. Stjórn Suður-Afríku hefur nýverið slakaö lítillega á gagnvart kynblendingum og Asíufólki. Tilslakanir gagnvart svertingjum hafa verið nær engar. Þeim er haldið í spennitreyju aðskilnaðarstefnunnar, Apartheid. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum hafa sumar hverjar for- dæmt þessa stefnu. En raunin er sú, að þaö skortir sam- einað átak, sem gæti knúiö minnihlutastjórn hvítu mannanna til að grípa það tækifæri, sem enn gefst til friðsamlegra lausna — meðan þaö gefst. Haukur Helgason. DV. MIÐVIKUDAGUR12. DESEMBER1984. Hættum að dansa á hengif luginu Islenska þjóöin er að fara á hausinn. Ráðamenn sitja í sínum fílabeinstumi við Austurvöll og hafa aldrei veriö meira sammála um að erlendar lán- tökur beri að stöðva. En það sem þeir gera er að leyfa bönkum að taka þessi lán auk þess sem ríkið tekur jafnvel á sig ábyrgð fyrir einkaaðila og stofnanir. Svo fella þeir gengiö og auka þessa r sk uldir en11þá mei ra. Alþjóðlegi gjaldeyris- sjóðurinn tekur yfir Erlendar skuldir námu 62% af okkar þjóðartekjum fyrir síðustu gengisfell- ingu og þá námu árlegar greiðslur í vexti og afborganir 25% af útflutnings- tekjum. Þetta hlutfaU þarf ekki að fara nema örlítið hærra til að við missum lánstraust okkar erlendis og þá mun Alþjóðagjaldeyrissjóöurinn í raun taka við stjórn fjármála hér á landi. Þeirra meðul eru vægast sagt harkaleg og látið ykkur ekki detta í hug aö þau verði ekki pínd ofan í Islendinga meö öllum tiltækuin ráðum. Þeir myndu byrja á því að fella gengið um 40—50%, afnema svo alla verndartolla af íslenskum iönaði, frysta laun, gefa verðlag „frjálst” og skera niður opinbera þjónustu (s.s. í mennta- og heilbrigðismálum). Mörg fyrirtæki munu ekki lifa að gengið sé fellt svo mikiö þar sem viö þaö myndu skuldir þeirra hækka um allt aö helming. Önnur myndu fara á hausinn þegar hér færu að flæða á markaöinn vörur frá erlendum stórfyrirtækjum. Afleiðingin yrði stórfellt atvinnuleysi (15—20%) fátækt og yfirráð erlendra fyrirtækja. Við mynduin missa allt sem heilir sjallstæöi, þið getið rétt imyiidað ykk- ur livort við myndum ekki sitja og standa á alþjóðavettvangi eins og þessum liáu lierrum þóknaðist. Töframeöul „Töframeðul” Alþjóöagjaldeyris- sjóösins eru alls staðar söm við sig. Við höfum dæmi erlendis frá eins og hvernig um er aö litast í Argentínu, Chile, eftir viökomu þessara glæpa- hunda, og þeir munu beita nákvæm- lega sömu aðferöum hér. Þeir hafa hingaö til ekki veigrað sér viö að dæma milljónir til atvinnuleysis og því skyldu þeir koma ööruvísi fram við nokkrar þúsundir hér. Dans á hengiflugi Til eru þeir sem segja aö viö séum ekki í neinni hættu, það skipti ekki máli þó 62% af okkar þjóöartekjum séu í er- lendum lánum, það sem skipti máli sé greiðslubyrði okkar, þ.e. hvað mikið sé borgað í hlutfalli við útflutningstekjur. En þeir átta sig ekki á þvi hvað lítið hagkerfi eins og okkar er sveiflukennt. Hvað myndi t.a.m. gerast ef fiskverð lækkaði, afli brygðist, ef olía hækkaði eða vextir hækkuðu? I okkar hagkerfi er rík tilhneiging til verðbólgu og í veröbólgu fellur gengið og skuldir liækka. Þessi fjórðungur ui okkar út- flutningstekjum, sem nú fer árlega í vexti og afborgarnir af erlendum iánum, gæti því hæglega breyst í 50— 75% á skömmum tíma. Þaö sér hver heilvita maður að ef alltaf fer stærra og stærra hlutfall af ráðstöfunar- tekjum í greiðslur af lánum veröur alltaf minna til skiptanna. Sama hvort um er aö ræða ráöstöfunartekjur fjöl- skyldu, fyrirtækis eða þjóðarbús. Hafið þið spurt þjóðina leyfis? Þiö sem sitjið í fílabeinsturninum við Austurvöll: Hættiö öllum erlendum lántökum áður en þjóðin fer á hausinn. Þið keppist hver um annan þveran að tala um aö þjóðinni sé hætta búin af þessum lántökuni, á ineðan hækka þessar skuldir í raun. Ef þiö eruð svona sammála ætti þetta ekki að vera svo mikið mál. Hættiö þessu gagns- lausa blaðri og stöðvið þetta sam- stundis. Þið eruð kosnir til fjögurra ára en ekki fjörutíu. Enginn hefur spurt mig né nokkurn af minni kynslóö hvort við viljum að framtíö okkar sé seld í hendur erlendra stórbanka. Ein- hver heföi haldið að nóg væri að stela af komandi kynslóöum, ekki þyrfti að hneppa þær í þrældóin líka. >> Flokkur mannsins hefur nú sent ríkis- stjórninni bréf þar sem hann lýsir því yfir að þegar hann komist til valda muni hann ekki greiða nein lán sem tekin verða eftir 1. jan. nk. nema þjóðin sé fyrst spurð leyfis.” Fjárskortur félagslegra íbúðabygginga Fáum landsmönnum mun lengur blandast hugur um það, að við alvar- legan vanda er að etja í húsnæðis- málum þjóðarinnar um þessar mundir. Húsnæðisvandinn hefur nú þegar komið af stað umbótahreyfing- um til lausnar vandans, einkum meðal ungs fólks. Stjórnvöld hafa að vissu marki reynt að bregðast við vand- anum, en því miöur hefur það, sem gert hefur verið, oft veriö of lítið og komið of seint. Tvöföldun framlags ríkisins stórt skref Af þessum sökum er þaö fagnaöar- efni að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1985, sem nú er til meðferðar á Alþingi, er framlag ríkissjóðs til hús- næöislánasjóðanna tvöfaldað miðað viö árið 1984, úr 400 millj. kr. í 800 millj. kr. Hér er vissulega um aö ræða stórt skref framáviö. Húsnæöislánakerfið byggist upp á tveimur sjóðum, Byggingarsjóði ríkisins, sem fjármagnar lán til al- mennra húsbyggjenda og íbúðarkaup- enda, og Byggingarsjóöi verkamanna, sem veitir lán til félagslegra íbúða- bygginga. Framlaginu er misskipt Þegar ég fór að kynna mér skiptingu framlags rikisins milli hinna tveggja sjóða, milli almennra og félagslegra bygginga, rak mig í rogastans. A fjár- lögum þessa árs var framlaginu skipt jafnt miili sjóðanna, í hlut hvors þeirra komu 200 millj. kr. Skiptingin er hins vegar allt önnur í fjárlagafrumvarpi ársins 1985: Framlag rikisins til húsnæöissjóöanna Framlag Framlag Aukning 1984 1985 milli ára Byggingarsjóður rikisins 200 millj. kr. 550 millj. kr. 175% Byggingarsjóbur verka- manna 200 millj. kr. 250 millj. kr. 25%

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.