Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1984, Síða 12
12
DV. LAUGARDAGUR 29. DESEMBER1984.
Dickie Bird, vinsæll
plötusnúður í Glasgow, er
orðinn uppgefinn á að
vera einungis skemmti-
kraftur og vill fremur
snúa sér að rannsóknar-
fréttamennsku. Viðfangs-
efni hans á því sviði verð-
ur samkeppni milli
tveggja kaupahéðna sem
selja rjómaís úr vögnum
ekki ólíkum pylsuvagnin-
um í Austurstræti. Þetta
viðskiptastríð á sér bæði
broslegar og alvarlegar
hliðar og Dickie Bird, sem
leikinn er af Bill
Petersen, dregst inn í
átökin og verður að glíma
við að finna leið út úr
ógöngunum. Þetta er í
stærstu dráttum efni nýj-
ustu kvikmyndar skoska
leikstjórans Bills For-
syth, en hann er einnig
höfundur myndanna
Gregory’s Girl og Local
Hero. Nýja myndin ber
heitið Comfort and Joy.
Comfort and Joy hefst í miöri jóla-
ösinni í Glasgow og kona nokkur er í
óöa önn að stela ýmsu til jólanna í
stórverslun. Vökul augu fylgja kon-
unni eftir en það er ekki starfsmaður
verslunarinnar eins og margan gæti
grunað heldur ástmaður þjófsins,
allt annað en ánægður með þetta
óprúttna framferði. Maddy (Elenor
Davis), en svo nefnist konan fingra-
langa, lætur ekkert trufla sig við
stuldinn en ástmaðurinn, plötu-
snúðurinn sem getið var í upphafi, er
hreint alveg að bilast á taugum. „Þú
gengur af mér dauðum, Maddy,”
segir hann um leið og hann ekur burt
frá versluninni með sælan búöarþjóf
við hliðina á sér. Og líkt og til að
verðlauna sjálfa sig fyrir vel unnin
störf dregur Maddy upp sígarettu og
kveikir í með skrautlegum borð-
kveikjara sem auðvitað er afrakstur
erfiðisins i versluninni.
IMýjar raunir í nýju starfi
Um leið og heim er komið byrjar
Maddy að pakka dóti sínu, misvel
fengnu, niður í töskur og gefur um
leið þá yfirlýsingu aö sér sé ómögu-
legt að búa með manni sem hafi
frelsisskerðingu hennar að megin-
markmiði. Og hún gengur út og eftir
stendur íbúðin auð. Dickie Bird
dreymir samt um Maddy og sam-
band þeirra sem var reyndar aldrei
merkilegt, að minnsta kosti tókst
honum aldrei að tjá henni ást sína
nema eitt sinn drukkinn og þá hafði
hann reyndar snúið sér aö rangri
konu meö hin blíðu orð á vörunum.
Dickie leitar síðan á náðir frétta-
mennskunnar og kynnist skuggahlið-
um þessarar atvinnugreinar sem fel-
ur jafnan í sér afskipti af málefnum
annarra og Comfort and Joy er á
stundum byggð upp eins og útúr-
snúningur á gamalli Hollywood-
glæpamynd. Tveir glæpamenn með
grímur stökkva til dæmis út úr bU og
hafa kúbein aö vopni. Þeir vinda sér
að ísvagni og gera sig líklega til að
leggja hann í rúst. En í miöjum has-
arnum hinkrar annar bófinn ögn við,
vindur sér að Dickie Bird, biður hann
um eiginhandaráritun og jafnframt
að leika óskalag í útvarpsþættinum
sínum. Til að kóróna allt þetta kem-
ur Dickie svo að bUnum sínum út-
ötuðum í rjómaís, svona rétt til að
vara hann við að vera að skipta sér
af því sem honum kemur ekki við.
1 viðtaU viö tímaritið American
Film útskýrir BUl Forsyth leikstjóri
hegðun útvarpsmannsins Dickie
Bird: „Hann reynir að horfa fram
hjá raunverulegum hæfileikum
sínum. Hann reynir að koma fram
*o
r
- Comfortand
Joy,
ný kvikmynd
Bill Forsyth
utvarpsmannsins
Efst tU vinstri: Maddy
byrjar að bera dótið út á
meðan hún segir Dickie að
hún ætli að yfirgefa hann.
EfsttUhægri: Rjómaisstríö
í algleymingi og útvarps-
maðurinn dregst inn í átök-
in. TU hUðar: C.P. Grogan
eða Clair Grogan, söngkona
popphljómsveitarinnar sál-
ugu Altered Images, leikur
íssölustúlku sem aðalhetj-
unni líst ljómandi vel á.
BUl Forsyth á að baki fjórar vel
heppnaðar kvikmyndir.
meö reglulega góða réttlætingu á til-
veru sinni. En svo sér hann smá
glætu þegar gömul kona á sjúkrahúsi
segir honum hvað útvarpsþátturinn
hans hafi skipt hana miklu máli —
hjálpað henni að komast lífs af.”
Forsyth segir ennfremur aö líklega
sé hann alls ekki ólíkur Dickie Bird.
Nú langi hann að fara aö gera eitt-
hvað alvarlegra en hingað tU, vera ef
til viU eitthvað annað en þessi leik-
stjóri sem hefur gert alveg ljómandi
léttar og skemmtilegar kvikmyndir
fyrir ótrúlega lítið fé.
Upphaf skoskrar
kvikmyndagerðar
Fyrsta kvikmynd Forsyths, That
Sinking FeeUng, gerð 1979, var
strangt tekið fyrsta skoska kvik-
myndin því hún var fyrsta kvik-
myndin sem Skoti gerði í Skotlandi.
Áður höfðu auðvitaö ýmsar myndir
verið teknar þar en menn af öðru
þjóðemi stóöu ævinlega að baki þeim
aðgeröum. That Sinking Feeling er í
gamansömum tón og sama máli
gegnir um Gregory’s Girl, aðra
mynd Forsyths, en hún segir frá
unglingspUti sem verður ástfanginn
af nýjasta liösauka skólaliðsins í fót-
bolta, stúlkunni Dorothy. Forsyth
skrifaði sjálfur handritið að þeirri
mynd eftir að þrír rithöfundar höföu
beðist undan verkinu og hann upp-
skar laun erfiöis síns, verðlaun
bresku kvikmyndaakademíunnar
fyrir besta handritiö.
Þriðja myndin, Local Hero, segir
svo frá bandarísku olíufélagi sem
ætlar sér að kaupa skoskt smáþorp,
samskiptum þorpsbúa og viðskipta-
fræöinga að vestan. Mark Knofler
samdi tónlistina við Local Hero,
tókst eins og við var að búast vel upp
og var fenginn til að veita sömu þjón-
ustu viö gerð Comfort and Joy.
Kvikmyndaleikstjóri
fyrir tilviljun
Á sex árum hefur BiU Forsyth gert
f jórar myndir sem eru vel heppnað-
ar og vinsælar og öUum virðist ljóst
aö hann hefur lent á réttri hUlu í líf-
inu. Á þessari hillu er leikstjórinn þó
mest fyrir tUviljun því hann fór að
vinna við kvikmyndir áður en hann
hafði minnsta áhuga á þeim. Þegar
Forsyth hætti skólagöngu skorti
hann skotsilfur og fékk fyrir tUviljun
vinnuhjákvikmyndafélagi. Ekki var
starfsfólkið margt því þeir unnu
saman tveir, Forsyth og eigandinn,
við að gera stuttar heimildarmyndir.
Eftir hálft ár sá Forsyth að kvik-
myndagerö væri það eina sem hann
langaði að fást viö og fór upp úr því
aö venja komur sínar í kvikmynda-
hús sem sýndi vandaðar kvikmyndir
og Ustrænar. Þar voru Godard og
MaUe ofarlega á vinsældaUsta og
Forsyth tók að reykja Gauloises
Bleues. Eftir stuttan stans í National
Film School í London sneri hann sér
alfarið að kvikmyndagerðinni og því
fór sem fór. Næsta mynd Forsyth
veröur tekin í Bandarikj unum.
-SKJ