Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1985, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1985, Blaðsíða 20
t 20 DV. MIÐVKUDAGUR 2. JANtJAR 1985. Upp með hausinn. . . ... ogsvo niðuraftur. Ti! vinstriséstiloðnubátinn Sighvat Bjarnason. (DV-myndir Erling Árnason.) Kelduhverfi: Tveir hrútar brjótast til byggða Frá Jóni Sigurðssyni, Kelduhverfi: Einmuna veðurbliða hefur verið hér í Kelduhverfi í haust og það sem af er vetri. Logn og frostleysur hafa ein- kennt þetta haust. Varla hefur komið svo vont veður að ástæða hafi verið að gefa sauðfé inni. Fengitíð er að byrja og þá gefa bændur inni. Góð meðferð á þessum tíma tryggir fleiri lömb aö vori. Tveir lambhrútar komu af afréttinni 19. desember sl. Voru þeir sagðir vel haldnir. Hrútarnir eru í eigu bóndans í Asi í Kelduhverfi. -EH. Þegar við missum ætt- ingja okkar Það er nú svo yfir jólahátíðina að þá er margt sem rifjast upp hjá fólki, ekki síst þeim sem misst hafa ættingja sína og eru kannski einir eftir í íbúðum sín- um. Fy rir nokkru voru haldin litlu jólin hjá eldri borgurum á Selfossi. Margt var þar til skemmtunar enda sönn jóla- gleði hjá öllum að mér fannst. Þegar samkoman var á enda bað Guðmundur Jónsson skósmiður um orðið. Er hann áttatíu og fimm ára og missti konu sína síöastliðið sumar. Guðmundur lýsti því svo að nokkrum vikum eftir jarðarför- ina hefði Styrktarfélag aldraöra á Sel- fossi boðið sér í tíu daga ferð á Snæ- fellsnes. Hann sagði orðrétt: „Eg af- þakkaöi boðið í fyrstu og fannst ég ómögulega geta farið nokkurn hlut. En mitt nánasta fólk hvatti mig til að fara og ég fór og sé ekki eftir því. Ef ég hefði ekki farið þessa ferð væri ég akki hér núna á þessari gleðistundu.” Svo áminnti Guðmundur okkur öll um að einangra okkur ekki þegar við misst- um vini okkar heldur fara og hitta kunningja okkar og bjóða kunningjum heim. Umfram allt að treysta guði, fara með bænir okkar og biðja fyrir þeim framliðna. Að endingu þakkaöi hann Styrktarfélaginu á Selfossi öll þess góðu störf öldruðum til handa. Guðmundur talaöi blaðalaust og af festu. Eg veit að ekkert okkar, sem á hann hlustuðu, gleymir orðum Guð- mundar. Það streymdi frá honum kær- leikur og styrkur, að okkur fannst, til okkar allra. Regína Thorarensen, Selfossi. Atengi og önnur vímu- efni eiga aldrei sam- - leið með akstri, hvorki á ferðalagi né heima við.‘ Ekkert hálfkák gildir í þeim efnum. Vinningar í H.H.Í. 1985: 9 á kr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 108 á kr. 100.000; 2.250 á kr. 20.000; 18.855 á kr. 4.000; 113.436 á kr. 2.500. 234 aukavinningar á kr. 15.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 544.320.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.