Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Side 1
Frjálst, óháð dagblað
Bræöur fórust í eldsvoða
„Vantraustá
Campomanes”
— segirforseti
Skáksambands
íslands
„Þaö er mín skoðun, aö Skák-
samband Islands eigi að lýsa yfir
vantrausti á Campomanes á auka-
þingi FIDE, sem haldiö verður í
Austurríki í ágúst. Maðurinn er stór-
hættulegur Alþjóðaskáksambandinu.
Hann gengur á lagið og kann sér
engin takmörk,” sagði Þorsteinn
Þorsteinsson, forseti Skáksambands
Islands, í samtali við DV, vegna á-
kvöröunar Campomanesar að aflýsa
skákeinvíginu í Moskvu.
„Campomanes er ekki að brjóta
lög FIDE i fyrsta sinn. Hann hefur
gert það ítrekað, þótt hann sé ekki
búinn að gegna þessu embætti nema
í rúm 2 ár. Siðasta alvarlega brotið
var þegar hann tók þá ákvörðun að
næsta ólympíumót yrði haldið í
Dubai, þrátt fyrir mótmadi Banda-
ríkjamanna og Vestur-Evrópuþjóða.
Með þessu var hann að útiloka
tsraelsmenn frá þátttöku þó lög
FIDE kveði skýrt á um að ekki megi
útiloka á þennan hátt þátttökuþjóðir
frá móti.
Það sem er að gerast í Moskvu er
raunar ekki alveg ljóst. Hins vegar
gilda ákveðnar reglur varðandi
einvígi af þessu tagi og þær reglur er
Campomanes að þverbrjóta,” sagði
Þorsteinn Þorsteinsson.
______________________-KÞ.
Albero, varaforseti
FIDE:
Karpov vildi
keppa í dag
„Það eru allir óánægðir með þessa
ákvörðun Campomanesar,” sagði
Roman Toran Albero, einn fimm
varaforseta Alþjóða skáksambands-
ins, FIDE, í viðtídi við DV í gær. „Eg
talaði við Karpov í síma í dag. Hann
sagðist vilja keppa á mánudag eins
og ráðgert var. Sjálfur er ég þeirrar
skoðunar að það hefði átt að fresta
einvíginu í eins og 15 daga og taka
svo upp þráðinn að nýju.”
Albero var mjög gagnrýninn á
fyrirkomulag heimsmeistaraein-
vígisins.
„Þetta er ómannúðlegt. Það eru
bara unglingar og ofurmenni sem
geta haldið svona út. Það á aö taka
upp gamla kerfið og takmarka fjölda
skákaviö24.
Hann sagði aö Campomanes hefði
fullan lagalegan rétt til að binda
svona enda á einvígið. „Forsetinn er
einráður. Hann getur gert hvað sem
er. En það er ljóst að aflýsingin
kemur báðum keppendum illa.
Karpov var mjög vonsvikinn þegar
égtalaðiviðhann. -Þ6G
— sjá nánari fréttir
bls.9
íslensk stúlka
Noregsmeistari
íbruni og
stórsvigi
— sjá íþróttir
íopnu
—frændi þeirra lagði sig í lífshættu
við að reyna að bjarga þeim
Tveir ungir bræður, fjögurra og
átta ára gamlir, fórust í eldsvoða í
Hafnarfirði um klukkan fimm á
laugardagsmorgun. Rúmlega
þritugur frændi þeirra var hætt kom-
inn er hann reyndi að bjarga þeim.
Hann Uggur á gjörgæsludeild en er
ekki talinn lengur í lífshættu.
Bræðurnir sem létust hétu Brynjar
Freyr og Fannar Karl Guðmunds-
synir. Þeir voru gestkomandi hjá
frændfólki sínu í húsinu Amarhrauni
42, sem er tveggja hæða steinhús.
Að sögn rannsóknarlögreglunnar
er óvíst um eldsupptök. TaUð er að
eldurinn hafi komið upp á neðri hæð
hússins. Fólkið svaf allt á efri hæð-
inni.
Húsmóðirin komst út ásamt syni
sínum. Heimilisfaðirinn lagði sig
fram við að reyna að bjarga hinum
drengjunum.
Er slökkviUð Hafnarfjarðar kom
skömmu síðar á vettvang var mikiU
eldur laus á neðri hæðinni. Reykkaf-
arar héldu inn í húsið. Fundu þeir
drengina og heimilisföðurinn meövit-
undarlausa á efri hæðinni.
Á sjúkrahúsi voru bræðumir úr-
skurðaöir látnir. Húsráðandinn
komst til meðvitundar nokkrum
stundumsiðar. -KMU.
Akranes:
Grunaður
umað
hafa kveikt
ískólanum
Átján ára gamaU pUtur var hand-
tekinn á Akranesi á laugardag vegna
bruna í bamaskóla þar í bæ. Sterkar
líkur benda tU þess að kveikt hafi
veriðískólanum.
Það var ekki fyrr en í hádegínu á
laugardag að menn urðu elds varir í
Brekkulækjarskóla. Eldurinn var þá
að mestu koðnaður niður en ljóst að
hann hafði logaö frá því um nóttina.
Kennarastofa, skrifstofa skóla-
stjóra, vinnuherbergi kennara og
eldhús eru stórskemmd eftir
brunann. Rannsókn hefur leitt í ljós
að eldurinn hefur komið upp á að
minnsta kosti fimm stöðum og líkleg-
ast af mannavöldum.
Einhver hafði brotið rúðu tU að
komast inn i skólann. FatasUtur
fundust á glerbrotum. Þær leiddu á-
samt öðm tU þess að grunur beindist
að pUtinum. Oskað hefur verið eftir
tíu daga gæsluvarðhaldsúrskurði
gagnvarthonum.
-KMU.
Þafl er nóg til af bollunum á þessum bolludegi eins og fyrirrennurum hans. Sumir tóku raunar forskot á
bolluátið I gnr. Þessar boliur biflu viflskiptavina Sveinsbakarís i morgun. DV-mynd KAE.
Húsið Arnarhraun 42 í Hafnarfirði. Miklar skemmdir urflu innanhúss.
DV-mynd S.
Sjómannaverkfall:
Ahrifanna f er að
gæta strax í dag
ff
„Áhrifa verkfallsins fer að gæta
strax í dag og svo með vaxandi
þunga eftir því sem fleiri dagar
líða,” sagði Guðjón Kristjánsson,
forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands Islands, í samtaU við DV.
VerkfaU um 4000 undir- og yfir-
manna á fiskiskipunum hófst
klukkan 18 í gær eftir árangurslausa
samningafundi undanfarinna daga.
Tekur verkfalUð tU 31 aöUdarfélags
innan Sjómannasambands Islands
og 12 innan Farmannasambandsms.
„Það er ljóst að þau skip sem nú
eru á sjó munu ljúka súmi veiöi og
landaö verður upp úr þeim en síöan
stöövast þau,” sagði Guðjón.
— Nú eru eftir um 100 þúsund tonn
af loðnu. Hvað verður um hana ?
„Það má veiða loönuna út mars og
ég hef enga trú á því að verkfalUð
standisvolengi.”
— Þú ert þá bjartsýnn á lausn á
næstu dögum?
„Það veit maður ekki en maður
verður að vera bjartsýnn. Við
lögðum fram sáttatUlögu í gær sem
fékk frekar dræmar undirtektir. Við
höfum nú lækkað það tdboð talsvert
og ég trúi ekki öðru en þvi verði
tekið. Þar höfum við lækkaö kaup-
trygginguna og bjóðum upp á samn-
ing tU tveggja ára, sem þýðir frið á
vinnumarkaðnum i tvö ár,” sagði
Guðjón Kristjánsson.
Nýr fundur deUuaöUa hefur verið
boðaður síðdegis í dag.
-KÞ.
A