Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Qupperneq 48
FRÉTTASKOTIÐ 68) • Í7Í) • Í58 SIMINN SEM ALDREI SEFUR Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þó i síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1985. Samkomulag stjórnarf lokkanna um breytt útvarpslagaf rumvarp: Stórefla á Ríkisútvarpid og hamla gegn samkeppni Ríkisútvarpinu og öðrum útvarps- stöðvum verða ólíkir stakkar sniðnir í nýjum útvarpslögum ef marka má það samkomulag stjómarflokkanna sem nú liggur fyrir um breytt út- varpslagafrumvarp. Breytingamar snúast almennt um stóreflingu Ríkisútvarpsins og að hamla gegn samkeppni við það með alls konar takmörkunum. Breytingamar viröast nær eingöngu vera í anda þess sem fram- sóknarmenn hafa sett sem skilyrði fyrir afgreiðslu frumvarpsins á þessu þingi. Lögbinda á fimm útibú Ríkisútvarpsins. Einnig fræðsluút- varp þess með greiðslu kostnaöar úr ríkissjóði. Stofna á Menningarsjóð útvarpsstöðva með 10% skatt- lagningu á allar auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi. tJr þessum sjóði á fyrst að greiða allan kostnað Ríkisútvarpsins af hlutdeild í rekstri Sinfóníunnar. Siðan á að nota fé sjóþsins „til eflingar innlendri dagskrárgerö, þeirri sem verða má til menningar- auka og fræðslu”. Leyfi annarra til að reka útvarp og sjónvarp eru bundin ýmsum skilyrðum og eftirliti útvarpslaganefndar, meðal annars um dagskrárefni og auglýsinga- taxta. Þá eiga þessar stöðvar að greiða sérstakt leyfisgjaid. Auk þess verða þær að sjálfsögðu að greiða önnur opinber gjöld. Rfltísútvarpið verður undanþegið þeim öllum og fær, auk nefskatts frá notendum, auglýsinga- tekjur eins og áður og öll aðflutnings- gjöld af viðtækjum, svo og beinan ríkisstyrk vegna fræðsluútvarpsins. I menntamálanefnd neðri deildar Alþingis, sem nú hefur f jallað um út- varpslagafrumvarpið, hefur Kristín Kvaran, fulltrúi Bandalags jafnaðarmanna, verið eini tals- maðurinn gegn þeim ströngu skil- yrðum, sem öðrum en Ríkisút- varpinu er ætlað að starfa eftir. Meðal annars vill hún leyfa kapal- stöðvum að birta auglýsingar sem stjómarflokkamir ætla ekki að leyfa. -HERB. Villtustá leiðað Galtarvita Neyðarkall barst til Loftskeyta- stöðvarinnar á Isafiröi álaugardags- kvöld frá fólki sem var statt uppi á fjöllum á vélsleðum á leið i heimsókn til vitavarðarins á Galtarvita úr Syðridal við Bolungarvík. Fólkiö, hjón með fimm ára gamalt bam og piltur um tvítugt, tilkynnti um tal- stöð aö það hef ði villst í hríð. Sex félagar úr Björgunarsveitinni Emi í Bolungarvík héldu til leitar á þremur vélsleðum. Þeim tókst ekki aö halda talstöövarsambandi við fólkið. Hins vegar náði togarinn Páll Pálsson, sem var á siglingu út af Barða, sambandi við fólkiö. Af því gátu leitarmenn dregið ályktun um staðsetningu þess. Fundu þeir það um miðnætti, aðeins tveimur og hálfri stundu eftir að kallið kom. Fólkiö var við góða heilsu og var að byggja snjóhús er leitarmenn komu. Það haföi ákveöið að halda kyrru fyrir er því varð ljóst að það hafði farið í hringi á fjallinu. -KMU. Bílstjórarnir aðstoða senDiBHJtsTöÐin Sextán ára gömul stúlka úr Keflavík lést í bílveltu á Grindavíkurvegi aðfaranótt laugardags. Hún hét Hafdís Halldórsdóttir, til heimilis að Tjamar- götu33Keflavík. Stúlkan var farþegi í bíl af gerðinni Volvo 343 á leið frá Grindavík. Skammt frá Seltjöm valt bíllinn út af veginum og fór margar veltur. Mikil hálka var á veginum er slysið varð rétt fyrir klukkan tvö um nóttina. Talið er aö stúikan hafi látist samstundis. ökumaður, sautján ára gamall piltur, slapp lítið meiddur. Sömuleiöis önnur ung stúlka sem var farþegi. Bíllinn er talinn ónýtur. « -KMU. Bifreiðin var illa farin eftir veltuna. DV-mynd emm. STÚLKA LÉST í BÍLVELTU Lyftujeppa af manni Fjögur ungmenni lyftu jeppabif- reið af manni við bæinn Kiðafell í Kjós skömmu fyrir hádegi á laugar- dag. Jeppinn hafði runnið til í hálku í brekku og oltið niður af bröttum kanti. Feögar voru á ferð í jeppanum. Faðirinn festist undir honum í velt- unni. Sonurinn fékk hjáip þriggja ungmenna, sem voru vitni að slys- inu, til að bjarga föðumum. Ungmennin þrjú höfðu sjálf aðeins túi mínútum áður misst sinn bíl út af í sömu brekkunni, 20 til 30 metrum frá þeim stað sem jeppinn valt. Þeirra bill valt þó ekki en laskaðist. Faðirinn var fluttur meö sjúkrabíl til Reykjavikur. Hann slasaðist ekki alvarlega og var með rænu allan tím- ann. -KMU. Bam undir stórum jeppa Fimm ára gamail strákur siapp ótrúlega vel er hann varð fyrir stór- um jeppa í Stórahjalla í Kópavogi um klukkan 14.30 í gær. Strákurinn hljóp fyrir jeppann, skall á honum og féll undir hann. Mikil mildi þykir að strákurinn skyldi ekki verða fyrir hjólunum. Hann lenti undir bílnum miðjum. Hann gat skriðið sjáifur undan hon- um með hjálp nærstaddra. Einu meiðslin voru nokkrar skrámur. -KMU. Úrskuröur kjaradóms um laun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna: Nýtt og óútfyllt launaflokkakerfi Kjaradómur opnaði upp á gátt kjarasamninga háskólamenntaöra ríkisstarfsmanna með dómi á laug- ardag. Núverandi launaflokkakerfi, 101—125, er lagt til hliðar og upp tek- ið nýtt kerfi, 126—155. I það er nú óraöaö. Laun eru ákveðin á bilinu 18.500-59.329. Krafa BHMR var 23.735—87.024 í mánaðarlaun. Rööun i þessa nýju launaflokka svo og sérkjarasamningar BHMR og rík- isins eru næstu skref. Af hálfu beggja lýsa talsmenn þeirra fullum vilja til þess að móta þau skref í samningum. Háskólamenntaðir kennarar hafa margir sagt störfum sínum lausum frá 1. mars. Þá á kjaradómur að úr- skurða í þessum málum fyrir mars- lok, nái aðilar ekki samkomulagi. Samkvæmt upplýsingum Indriða G. Þorlákssonar, forstöðumanns launamáladeildar fjármálaráðu- neytisins, verður ærið verkefni að semja við þau 25 félög sem hlut eiga að máli innan Bandalags háskóla- manna. Þá telur Indriði að búast megi við hliðstæöri þróun þegar kemur að BSRB-samningum. Þótt núgildandi samningar BSRB gildi út árið mun sérstaklega verða fjallað um launaflokkakerfi þess bandalags á næstunni. Fyrir kjaradómi kröfðust háskóla- menntaðir ríkisstarfsmenn sam- bærilegra kjara hjá ríkinu og þeir hafa á almennum vinnumarkaði. Var vísað til könnunar Hagstofunnar frá í mai 1984 og ýmissa kjarasamn- inga á almenna vinnumarkaðnum: Aðilar túlka hins vegar þessi atriði og allan samanburö á kjörum hvor meðsínumhætti. HERB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.