Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Page 39
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985.
39
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Hljómsveitin
mætti ekki
Kennarar á Dalvík, Ár-
skógsströnd og Svarfaðar-
dal halda árlega sameigin-
legt þorrablót og eru það ætíð
hinar líflegustu samkomur.
Dalvikingar stóðu fyrir blót-
inu sem haldið var um síðustu
helgi á Þinghúsinu Grund í
Svarfaðardal og var vandað
til undirbúnings. Kom i hlut
söngglaðasta kennarans að
panta hljómsveitina og geröi
hann það samviskusamlega
með þvi að siá á þráðinn til
Olafsfjarðar og fá gamludansa-
hljómsveit þaðan.
Upphefst nú þorrablót á
Grund föstudagskvöldið 8. og
er mikill glaumur yfir trog-
um. Aö loknu áti var kominn
nokkur fótafiðringur í menn
og hugsað gott til dansins.
Þótti kynlegt að engin hljóm-
sveit fannst i húsinu. 1 ljós
kom mikið klúður, hljóm-
sveitin haföi verið pöntuð
kvöldiö eftir, á laugardegi.
Þorramaturinn var óoviklnn, on
hljómsvottin engín.
Varö aö grípa til þess ráös að
setja mann á píanóiö og
draga svo á staðinn grammó-
fón og gargplötur til að allt
stuöiö gufaði ekki upp.
Og aumingja Olafsfjaröar-
presturinn sem spilar í hljóm-
sveitinni. Hann var í Reykja-
vík dagana áður og ætlaði að
koma noröur á laugardegi
meö flugi en þoröi ekki annað
en taka flutningabíl á föstu-
degi til að komast örugglega.
Rússar I
kláminu
Rússneskt vöruflutninga-
skip kemur alltaf annaö slag-
ið til Akureyrar með rækju og
eru skipverjar þá áberandi á
götum bæjarins. f síðustu
viku voru þeir komnir og er
sagt að bóksalar hafi rokið til
þegar þeir sáu Rússana og
hreinsað öll klámblöð úr hill-
unum. Ástæðan sé sú að Rúss-
amir hafa verið gjamir á að
liggja við blaðarekkana og
skoða klámblöð heilu dagana,
bóksölum til mikils ama.
Eitt af því sem Rússamir
hafa sótt mikið i eru Adidas
skór. Munu þeir hafa stöðvað
fólk á götu sem hefur verið í
þannig skóm og boðiö skipti á
þeim og ræflunum sínum.
Þeir haf a jafnvel verið tilbún-
ir að borga tvær vodkaflöskur
ímilli.
Enn af viðskiptunum við
Rússana. Það er víst ósköp
lítið sem þeir fá i gjaldeyri,
en eitthvað þó. Greinilegt er
að kóngurinn KEA hefur
farið alveg á rassinn við aö
lokka Rússana til sín þvi þeir
sjást alltaf með poka frá Hag-
kaupi.
Ætlaði að
taka myndir
Gjáin heitir bjórkrá á Sel-
fossi sem nokkuð hefur verið í
fréttum. Þar mega menn víst
ekki skvetta i sig eins langt
fram á kvöldið og þeir vilja.
Þrátt fyrir |>að gerast ýmsir
hlutir í Gjánni sem eru í frá-
sögur færandi.
Sagan segir að ekki alls
fyrir löngu hafi stúlkukind
komið þangað inn, i öörum til-
gangi þó en að fá sér bjór-
kollu. Tveir eigenda staðar-
ins voru viö afgreiöslu og
gekk daman til þeirra: „Má
taka myndir héma,” spuröi
hún í mesta sakleysi. Það var
nú ekki nema sjálfsagt að
taka myndir, svöruðu þeir Ul.
Stúlkan gengur þá beint aö
myndum sem héngu á veggj-
Hún vildi taka myndlr.
um, byrjaði að rífa þær niður
og gerði sig líklega tU að fara
með þær út. Eigendumir
neyddust tU að ganga á bak
orða sinna og koma í veg fyrir
aðhún tæki myndirnar.”
Fleiri lengja
en Þjóðverjar
Fyrir skömmu kom eitt
skipa Eimskips hf. Ul
landsins eftir lengingu í
skipasmiöastöð i Þýskalandi.
Þetta þótti hið merkasta mál,
sérstaklega hvaö lengingin
tók stuttan tíma. Sagt var
íta iega frá þessu í fjölmiðl-
um og sniUd Þjóðverjanna
dásömuð mikið. En þama
sannast sem oftar að enginn
er spámaður i sínu föður-
landi. I SUppstöðinni á Akur-
eyri hafa menn undanfariö
verið að skera hvert skipið á
fætur öðm í tvennt og setja
bút á milli. Kunnugir segja að
það sé margfalt flóknara að
lengja skuttogara en kaup-
skip. 1 skuttogaranum kUpp-
ast nánast aliar leiðslur og
lagnir i sundur en í kaupskip-
unum varla nokkuð. SUpp-
stöðvarmenn brostu víst bara
út í annað og héldu áfram að
vinna.
Umsjón: Jón Bafdvin HaUdórsson.
Sala á íslenskri
þekkingu og
hugviti erlendis
NÁMSTEFNA HALDIN í ÁTTHAGASAL HÓTEL SÖGU
MIÐVIKUDAGINN 20. FEBRÚAR 1985.
1330 Námstefnan sett.
- Sigurður R. Helgason, formaður SFÍ
13:40 Þörfin fyrir nýsköpun í íslenskum
útflutningsgreinum og möguleikar
ísiendinga á sviði hugvitsútflutnings
- Steinar Berg Björnsson,
formaður Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins.
i4oo Starfsumhverfi fyrirtækja í
hugvitsútflutningi
- Magnús Gunnarsson,
Vinnuveitendasambandi íslands
1445 íslensk verkefni á sviði hugvits-
útflutnings og framtíðarmöguleikar
- Andrés Svanbjörnsson, Virkir hf.
- Edgar Guðmundssön, Mát hf.
- Brynjólfur Bjarnason, Bæjarútgerð Reykjavíkur
15:00 Hlé
15:30 Hlutverk fjármagnsmarkaðarins;
þörfin fyrir áhættufjármagn við fjár-
mögnun á nýjum útflutningsgreinum
- Gunnar Helgi Hálfdánarson,
Fjárfestingarfélagi Islands
15:45 Pallborðsumræður:
Hvaða aðgerða er þörf nú til að hvetja
til og stuðla að aukinni nýbreytni í
íslenskri útflutningsstarfsemi og
hvernig má nýta þær hugmyndir og
fróðleik sem hér hefur komið fram.
- Þráinn Þorvaldsson, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
- Ingimar Hansson, Rekstrarstofan
- Ólafur Gíslason, Istak hf.
- Matthías Á. Mathiesen viðskiptaráðherra.
Stjórnandi umræðna: Þórður Friðjónsson,
Forsætisráðuneytinu.
16:30 Námstefnuslit
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
ASTJÓRNUNARFÉLAG
^víSLANDS HSKS,23
Urval
Frumkvæði hf óskar
eftir samstarfi
um fjárfestingu
í atvinnurekstri
Fyrir skömmu var stofnað í
Reykjavík fjárfestingarfélag undir
heitinu Frumkvæði h.f. Að stofn-
un félagsins stóðu 120 fyrirtæki
og einstaklingar, sem starfa í
flestum greinum atvinnurekstrar.
Tilgangur Frumkvæðis h.f. er að
sameina hluthafa sína um fjár-
festingu í einkafyrirtækjum, hafa
milligöngu um mat á fjárfesting-
arkostum, útvega áhættufé og lán
Þeir sem hafa hug á samstarfi við Frumkvæði h.f. um
— nýja fjárfestingu
— nýjungar í rekstri
— endurskipulag starfandi fyrirtækis ,
eru vinsamlegast beðnir að senda Frumkvæði h.f.
lýsingu á verkefni sínu ásamt bréfi, sem
tilgreini ástæður fyrir væntanlegri fjárfestingu.
ra
FRUMKVÆÐI HF
Hallveigarstíg 1 101 Reykjavík
frá hluthöfum sínum eða öðrum
aðilum.
Frumkvæði h.f. kemur þannig til
með að hafa frumkvæði að
stofnun endurskipulagningu og
sameiningu fyrirtækja, og gera
sérstakar athuganir í því sam-
bandi. Gætt verður fyllsta trún-
aðar um öll verkefni sem félagið
kannar.