Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985. Félagsbfó í Keflavík var þóttskipafl fólki ó laugardaginn. Þar sátu hlifl vifl hlifl verkafólk og atvinnurekendur og innan um dreifflu þingmenn kjördœmisins sór. Enda mikifl I húfi; sjóvarútvegur á Suðurnesjum afl hruni kominn. DV-myndir KAE. ÖRVÆNTINGOG ÖRYGGISLEYSI - allt í kaldakoli á Suðurnesjum „I eina tíð voru Suðurnesin eitt gjöfulasta svæði landsins hvað mat- björg varðar. En nú er öldin önnur.” Þannig komst einn ræöumanna i Félagsbíói í Keflavík að orði á laugardaginn. Þar var haldinn sér- stakur fundur um atvinnumál á Suðurnesjum sem boðað var til fyrir atbeina atvinnurekenda og verka- lýðs sameiginlega. Félagsbíó var þéttskipað. Þar sátu hlið við hlið verkamenn og atvinnu- rekendur og innan um dreifðu sér flestir þingmenn kjördæmisins. Sjálfstæðismenn og kratar sátu saman á fremsta bekk á meðan þing- menn Kvennalista og Alþýðubanda- lags létu minna fyrir sér fara í almennum sætum aftar i salnum. Þama voru Matthías Á. Mathiesen, Kjartan Jóhannsson, Geir Gunnarsson, Kristín Halldórs- dóttir, Karl Steinar Guðnason, Gunnar G. Schram, Salome Þorkels- dóttir, Guðmundur Einarsson og Jóhann Einvarðsson, fyrrum fram- sóknarþingmaður í Reykjanes- kjördæmi og nú aðstoðarmaður félagsmálaráðherra. Enda mikið í húfi. Atvinnulíf á Suðumesjum er að hrynja. Fyrir nokkrum árum vom þar starfrækt 23 frystihús. Nú eru þau aöeins 9 og liklegt aö 2 loki áður en langt um líður. Nær 700 manns hafa misst atvinnuna, að langmestu leytikonur. Það ríkir örvænting og öryggis- leysi við höfnina. Sjávarútvegur er aö stöðvast vegna gegndarlauss rekstrartaps fiskvinnslufyrirtækja. „Verkalýður og atvinnurekendur verða að slíðra þau sverð sem þeir annars bera,” sagði einn frummæl- enda. „Nú verðum við að standa saman.” Þaö ríkti einhugur á f undinum. -EIR. Guðrún Ólafsdóttir, verkalýðsforingi í Keflavík ÚLFURINN ER KOMINN Guðrún Ólafsdóttir. „Margir sem vinnaáheitum vinnu- stöðum og njóta atvinnuöryggis skilja ekki vanda okkar. Þeir þekkja ekki mun á flóöi og fjöru,” sagði Guðrún Olafsdóttir, verkalýðsforingi i Keflavík, á fundinum í Félagsbíói á laugardaginn. „Menn hafa lengi kallað úlfur, úlfur. Nú er úlfurinn aftur á móti kominn í raun og vem. Fiskvinnslu- fyrirtækin eru að loka og það er ekki hægt að sitja aðgerðalaus hjá og kalla þetta náttúrulögmál. Við verðum að standa saman,” sagði Guörún. -EIR. EiríkurTómasson, Útvegsmannafélagi Suðurnesja: Velmegunin á ekki upptök síníbönkum „Fjöldi Reykvíkinga hefur aldrei komið niður á bryggjusporð og heldur að velmegunin eigi upptök sín í bönkum,” sagði Eiríkur Tómasson, talsmaður Utvegsmannafélags Suðumesja, í Félagsbíói á laugar- daginn. „Það er ljóst að offjárfesting í sjávarútvegi hefur verið vandamál en þar þýðir ekki að kenna Suöur- nesjamönnum um. Meðalaldur fiski- skipa hér er hærri en viðast hvar, annars staöar á landinu. Ef til vill heföum við átt að taka þátt i Hruna- dansinum, standa í offjárfestingum og þvílíku. Þá hefði kannski verið von til að yfirvöld hefðu gotið til okkar augunum i þeim vanda er við nú stöndum frammi fyrir. ” Eiríkur Tómasson vék að háu olíu- verði til fiskiskipa.Sagðist hann ekki skilja hvemig olía á Bretlandi gæti verið 40% ódýrari en hér á landi. „Þeir svara því til að Bretaolían sé lélegri en sú íslenska,” sagði Eiríkur Tómasson. „Það er tími til kominn aðeinokun oíiufélaganna Ijúki.” Einar Kristinsson, Vinnuveitendafélagi Suðurnesja: Verötryggingar- vitleysa er alltað drepa „Það er ekki hægt að verðtryggja 100% verðbólgu. Það gengur ef til vill með 10% verðbólgu; þessi verð- tryggingarvitleysa er allt að drepa. Bæði atvinnulíf og heimili fólks,” sagði Einar Kristinsson frá Vinnu- veitendafélagi Suðumesja. „Á undanfömum tveim árum hefur orðið 16% samdráttur í starf- semi frystihúsa hér á Suöumesjum. Það munar um minna. Ekki er nóg að breyta skuldum í lán þegar rekstrargrundvöllinn vantar. Hvaða vit er í því að maður, sem gerir við tölvur, hafi 700 krónur á tímann á meðan Sigga í frystihúsinu hefur aðeins 80 krónur. Hér er flest öfug- snúiö. Það verður að gera eitthvað,” sagðiEinar. „Það er dapurlegt um að litast við höfnina og við skulum ekki gleyma því að 75% af gjaldeyristekjum landsmanna koma úr sjávarútvegi.” í dag mælir Dagfari______________I dag mælir Pagfari ídag mælir Dagfari Skítt með alla skynsemi Á síðustu árum hafa vesælir hús- byggjendur ekki haft mikil auraráð til skemmtana. Þó munu finnast dæmi þess, aö ung hjón sem í þrjú ár hafa borgaö meginhluta launa sinna upp í afborganir, vexti og verðbætur af lánum, meö þeim afleiöingum að eftirstöðvamar hafa margfaldast og skuldabyrðin þyngst sem þvi nemur, hafa gefið skit i allt draslið eina kvöldstund. Skundað á vertshús og fengiö sér í glas item tóbak til að svæla meðan setið var yfir miðinum. Léttfull og hæfilega kærulaus aka hjúin heim í leigubU og sofa úr sér áhyggjuleysiö og lifsgleðina sem greip þau eina kvöldstund. Næsta morgun vakna þau timbruð af æfing- arleysi í aö djúsa og konan staulast fram tU aö hita kaffiö og nær i Mogg- ann fyrir bóndann í leiðinni. Orakað- ur og þynnkulegur gluggar hann í blaðið meöan hann safnar kröftum tU morgunraksturs. Og hvað blasir við: Enn ein hækkun á áfengi og tóbaki. Fögnuöur gripur timbraðan mann- inn. Hann kallar í konu sina og bend- ir á fréttina i blaöinu. Segir að þau hafi mátulega sloppið með útstáels- iö. Nú sé búið að hækka aUt, daginn eftir að þau slettu úr klaufunum. Eftir rakstur og kaffidrykkju held- ur maðurinn tU vinnu, því hann vinn- ur hjá einkafyrirtæki og fer því fyrr en konan sem er opinber embættis- maöur. Þegar á vinnustaö kemur fer maðurinn strax að útmála heppni þeirra hjóna aö hafa leikiö á fé- græðgi ríkisins meö þessum hætti. Vinur vor hafði hins vegar ekki lengi hrósað happi þegar gáfumaður hóps- ins lét í ljósi sanna þórðargleði: Staðreyndin væri nefnUega sú, að þessi hækkun á brennivíni og tóbaki myndi leggjast af ofurþunga á þau hjón, þótt þau hvorki fengju sér i glas eða reyk næstu ár. Ástæðan væri sú, aö hækkun á áfengi og tóbaki kæmi fram i hækkun á lánskjaravísitölu. Eflaust væru þau hjón með allar skuldir verötryggöar. Afleiöingin væri sú aö nú hækkuðu eftirstöðvam- ar enn meir og skuldimar héldu áfram að hækka eftir þvi sem meira væri borgað af. Og sá með þórðar- gl.eöina ætlaði að rifna af hlátri. Okkar maður fyUtist beiskju. Hvusslags lúsablesar em þetta sem ráða landinu. Er ekki Sjálfstæöis- flokkur við stjóm þótt Framarar séu meö í brúnni? Hverju svara menn- imir eiginlega sem bera ábyrgð á vitleysunni. Auðvitaö svarar Sjálfstæöis- flokkurinn engu því þetta er ekki hans mál. Hann verður að beygja sig undir mgl félagsmálaráðherra. En það er þó einn ráðherra sem aUtaf er tUbúinn að ræða málin og úttala sig um hvað sem er. Það er sjálfur for- sætisráðherrann Steingrímur Her- mannsson. Þegar ÞjóðvUjinn spyr hvort það sé réttlátt að hafa þetta fyrirkomulag emjar Steingrímur bara og segir svo að hann geti ekki á þessari stundu úttalað sig um „hvað er skynsamlegast”. Auðvitað veit forsætisráöherra ekki hvað er skynsamlegast. Ef hann vissi þaö væri hann búinn aö segja af sér. Hérlendis er stjómað meö gáf- um en ekki skynsemi. Hjörleifur Guttormsson lagði fram frumvarp um 40 þúsund tonna sjóefnavinnslu á Reykjanesi af gáfum en ekki skyn- semi. I fyrra fluttum við inn skemmdar kartöflur frá Finnlandi af gáfum og af sömu ástæðum sitja bændur í Þykkvabæ nú uppi með hundruð tonna af úrvalskartöflum sem verða orðnar skemmdar í vor þegar kartöfluskorturinn brestur á. Það eru gáfur sem ráða því aö lög um frjálst útvarp breytast í lög til að hefta frjálsan útvarpsrekstur. Og þaö eru gáfur sem ráða því aö vinur vor húsbyggjandinn fer og drekkir sorgum sínum í bjórliki en ekki al- vörubjór í kvöld. Hann tönglast nefnilega sifellt á því núna, aö það sé nóg að vera gáfaður til að umbera skuldimar. Eða eins og hann orðar það: Skítt með alla skynsemi — því gáfur erugull. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.