Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Síða 26
26 DV. MÁNUDAGUR18. FEBRÚAR1985. íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir LANCASHIRE-RISARNIR í SJÖTTll UMFERÐINA Celtic skoraði sex —ískosku bikarkeppninni Glasgow Caltic vann stærsta sigurinn i 4. umferð skosku bikarkeppninnar á laugardag — vann Invemess Thistle 6—0. Paul McStay skoraði þrennu, Maurice Johnston, Frank McGarvey og Murdo McLeod skoruðu hin mörkin þrjú. í marki Thistle var 16 ára strákur, Les Fridge. Úrslit urðu þessi. Ayr — St. Mirren 0—1 Brechin — Hearts 1 — 1 Celtic — Invemess Th. 6—0 Forfar — Falkirk 2—1 Raith — Aberdeen 1—2 Rangers — Dundee 0—1 Queen of S. — Dundee Utd. 0—3 Leik Meadowbank og Motherwell var frestað. Bobby Brown skoraði mark Dundee gegn Rangers en i 4. umferð i fyrra sló Dundee-liðið Rangers einnig út. Eftir leikina var dregið í 8-liða úrslit og varð niðurstaðan þessi. St. Mirren — Dundee Utd. Dundee — Celtic Brechin eða Hearts — Aberdeen Meadowbank eða Motherwell — Forfar Leikirnir verða háðir 9. mars. -hsím. Langer Ástralíu- meistari Vestur-þýski golfmaðurinn snjalli, Bernhard Langer, varð ástralskur meistari í golfi í Mel- bourne i gær þegar hann lék hringina fjóra á 281 höggi. Ellefu höggum undir pari vallarins. Bætti vallarmetið í Melbourne um fjögur högg. í fyrstu verðlaun fékk Þjóðverjinn 44.445 dollara, bandaríska, og hlaut einnig bil í verðlaun. Fór holu i höggi í keppninni á laugardag. Jafnir í ööru sæti urðu Nick Flado, Bretlandi, og Greg Norman, Ástralíu, sem átti metið fyrir á vellinum. Þeir léku báðir á 284 höggum. Svíinn Anders Forsbrand, sem er 23ja ára, varð í f jórða sæti á 290 höggum, tveimur undir pari og kom mjög á óvart. Hins vegar brást hann á lokahringnum, lék þá á75höggum. Sigur Langer var öruggur eftir að hann haf ði leikið á vallarmeti, 64 höggum, á föstudag. Náöi þá Faldo, báðir með 140 högg, og komst í mikið stuð. -hsim. Jafntefli Kina og Hong Kong gerðu jafntefli, 0—0, í 4. Asíu-riðli for- keppni heimsmeistarakeppn- innar 1988 i knattspyrnu i Hong Kong I gær. Í sama riðli vann Macao Brunnei 2—0 í Macao. — Everton og Man.Utd sigruðu og Liverpool gerir það ef laust líka á miðvikudag Aðeins þrír leikir af átta i 5. um- ferð ensku bikarkeppninnar voru háðir um helgina og það er greini- legt að Lancashire-risarnir þrír, Ev- erton, Liverpool og Man. Utd., verða i hattinum þegar dregið verð- ur til sjöttu umferðar. Man. Utd. og bikarmeistarar Everton hafa þegar tryggt sér sæti i 6. umferð — Liver- pool gerir það eflaust á miðvikudag á Anfield þegar liðið leikur öðru sinni við 3. deildar lið York þrátt fyr- ir nokkra örðugleika á laugardag i York. Bikarmeistarar Everton áttu í tals- verðum erfiðleikum einnig á laugar- dag gegn Telford, liði utan deildanna, og það á Goodison Park. Það var langt liðið á leikinn, þegar allt small saman hjá bikarmeisturunum. Góður sigur í lokin, 3—0. Framan af leiknum voru leikmenn Everton langt frá sínu besta. Snjöll markvarsla Neville Southall kom í veg fyrir að Colin Williams skor- aði mark fyrir Telford á 28. mínútu. I síðari hálfleik fóru leikmenn Ever- ton að láta meira að sér kveða, vel studdir af 47 þúsund áhorfendum. Loks á 68. mín. tókst Peter Reid að skora. Kevin Sheedy skoraöi annað mark Everton fjórum mínútum síðar úr víta- spymu og þar meö var öll spenna úr leiknum. Trevor Steven skoraöi þriðja mark Everton rétt fyrir leikslok. Evrópumeistarar í basli Evrópumeistarar Liverpool áttu í hinu mesta basli á höröum, hálum leik- vellinum í York í fyrri hálfleik. Fengu þó fyrsta marktækifærið en John Wark spyrnti framhjá eftir að hafa komist frír í gegn. Leikmenn York, sem sigruðu Arsenal á eigin velli í 4. um- ferð, náðu síðan undirtökunum í leikn- um. Tókst að skora að því er virtist gott mark en línuvörður veifaði. Dóm- arinn, sem dæmt hafði mark, breytti ákvörðun sinni. Dæmdi aukaspyrnu á York. Það jafnaöist út undir lok leiks- ins. Þá var gott mark dæmt af Liver- pool. Völlurinn var erfiður en af þeim leik sem leikmenn Liverpool sýndu framan af var erfitt að gera sér grein fyrir að þar væru Evrópumeistarar á ferð. Nokkrir leikmenn sáust bókstaflega ekki. 1 síðari hálfleiknum lék Liverpool mun betur og tókst að skora á 52. min. Gillespie tók aukaspyrnu eftir gróft brot á MacDonald, spyrnti að vítateig York. Kenny Dalglish skallaði áfram til Ian Rush, sem skoraði fallegt mark. Lengi vel leit út fyrir að þetta mark mundi nægja Liverpool til að komast í 6. umferð. Liðið betra og Bruce Grobbelaar afar öruggur í marki. En það reyndist ekki. Á 85. min. náði York sókn, knötturinn small tvívegis í þver- slá marks Liverpool áður en varnar- maðurinn Rick Sbragia skoraði. 1—1 og þau urðu úrslit leiksins þó svo að Ronnie Whelan skoraði fyrir Liverpool rétt á eftir. Dómarinn dæmdi markiö af — furðulegt. Man. Utd sigraði Á föstudagskvöld lék Man. Utd við Blackbum, efsta liðið í 2. deild, í Black- bum og var leiknum sjónvarpað beint á Bretlandseyjum. Man. Utd sigraði 2—0 og var sá sigur í minnsta lagi, yfir- burðir verulegir en Gordon Strachan misnotaði einu sinni vítaspymu. Strachan skoraði heppnismark á sjö- undu mínútu. Knettinum spymt fram að vítateig Blackburn, bakvörðurinn Mick Ratbone virtist eiga auövelt með að hreinsa, það svo að flestir leikmenn United voru á leið aftur í vömina. En ekki Strachan og þegar Ratbone ætlaöi að spyma frá rann hann til á hörðum, frosnum vellinum, féll og Strachan náði knettinum. Vippaöi honum síðan yfir markvörðinn. Flestir hinna 23 þús- und áhorfenda furðu lostnir. Allan fyrri hálfleikinn var nær einstefna á mark Blackburn. United með sama lið og hóf leikinn í Newcastle fyrir viku að því undanskiidu að Gary Bailey lék á ný í markinu eftir fingurbrotið. I siöari hálfleik komu leikmenn Blackburn meira inn í leikinn. Simon Garner átti gott skot framhjá og Bailey varði auðveldlega það sem á markið kom. Á 82. mín. var Mark Peter Reid kom Everton á bragðið. Hughes felldur innan vítateigs Black- bum. Vítaspyma en Strachan spymti knettinum yfir markið hjá Terry Gennoe. Það kom þó ekki að sök fyrir United. Framvörðurinn Paul McGrath braust I gegn á 86. mín. og gulltryggði sigurinn. hsím. Guðríður Guðjónsdóttir, landsliðs- konan snjalla i Fram, hefur verið iðin við að skora i vetur. Guðríður hefur skorað 113 mörk — Fram með tveggja stiga forustu í 1. deild kvenna Heil umferð í 1. deild kvenna í handknattleiknum var háð í siðustu viku og um heigina. Úrslit urðu þessi. Fram — Vikingur Valur - FH Akranes — ÍBV KR - ÍBV Staðan er nú þannig. Fram FH Valur Vikingur KR ÍBV Þór, Ak. Akranes 12 11 12 10 12 10 10 10 12 9 9 27-10 13-23 12-16 18-15 1 368-182 22 2 348-175 20 2 261-199 20 6 157-209 8 6 176 -204 9 175- 282 7 140- 247 8 118-245 Kiel heldur sínu striki Frá Hilmari Oddssyni, fréttamanni DV i V-Þýskalandi: — Kiel, undir stjórn Jóhanns Inga Gunnarssonar, er óstöðvandi þessa dagana. Sebrahestarnir unnu góðan sigur, 23—17, yfir Hutten- berg á útivelli á laugardaginn. Dankersen vann óvæntan sigur, 18— 14, yfir Grosswallstadt. Essen varð að sætta sig við jafntefli, 20—20, gegn einu af botnliðunum, Weichen Handewitt. Gummersbach vann, 28—22, í Hofwei- er. Markahæstar eru: Guðríður Guðjónsd., Fram, Erla Rafnsd., Fram, 113 | Margrét Theódórsd., FH, 3 STIG CHELSEA GEGN NEWCASTLE — Aðeins einn leikur í 1. deild háður á laugardag Chelsea sigraði Newcastle, 1—0, í eina leiknum í 1. deild sem háður var á laugardag. Strax á 2. minútu skoraði varnarmaðurinn Darren Wood eina mark leiksins. Knöttur- inn barst út úr vitateig Newcastle til Wood, sem skoraði með þrumu- fleyg af 20 metra færi. Chelsea löngum betra liðið i leiknum, sem háður var á Stamford Bridge, með Nevin sem besta mann. Newcastle- liðið án sins besta manns, Chris Waddle, náði sér aldrei verulega á strik. Tveir leikir voru í 2. deiid. Hudders- field sigraði Crystal Palace á heima- velli, 2—0, með mörkum Phil Wilson og Laws, vítaspyma, og Cardiff vann óvænt í Oldham, 0—1. Brian Flynn, landsliðsmaöur Wales, var langbesti maður á vellinum í Cardiff-liðinu. Eina mark leiksins skoraði Nigel Vaughan. önnur úrslit urðu þessi. 3. deild: Bolton — Swansea 0—0 Burnley—Orient 1—1 Doncaster — Brentford 2—2 Hull — Bradford 0—2 Lincoln — Wigan 1—0 Rotherham — Bristol City 2—1 4. deild: Crewe —Scunthorpe l—1 Rochdale — Northampton , 3—0 Wrexham — Halifax 2—1 Urslitin á íslenska getraunaseölin- um voru þannig. XXX — X12 — 212 — 2X2. -hsim. Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.