Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1985, Side 43
43
DV. MÁNUDAGUR18. FEBRUAR1985.
Mistök við
tölvu-
skráningu
— segir Kristján
Helgason,
umdæmisstjóri Pósts
og síma, vegna 90.000
króna símareiknings
I Dagblaðinu/Vísi frá 6. febr. sl.
er skýrt frá því að símnotandi í
Stykkishólmi hafi fengið síma-
reikning að upphæð kr. 90.000,00 á
lokaöan síma.
Þau leiðu mistök urðu við tölvu-
skráningu að einn tölustafur var
misfærður og orsakaði það að á
októberreikningi komu fram 50
þúsund umframskref.
Fljótlega eftir að verkfalli
opinberra starfsmanna lauk
uppgötvuðust mistökin og var þá
gerður nýr reikningur er skulda-
jafnaði hinn fyrri um öll umfram-
skref.
I fyrmefndri grein koma fram
villur og ónákvæmni. Þar er meðal
annars sagt að símnotandi hafi
greitt símareikning útgefinn 1.
apríl, upphæð er hljóðaði upp á 8
þúsund krónur og þá hafi verið
lokað fyrir símann. Rétt er að-
sendur var út símareikningur í
byrjun apríl sl. fyrir umframskref í
desember 1983 og janúar og
febrúar 1984 og afnotagjald apríl—
maí—júní 1984.
Annar reikningur (auka-
reikningur) var sendur út í byrjun
júní sl. fyrir skeyti og símtöl.
Þriöji reikningurinn var gefinn
út í byrjun júli sl. og var yfir um-
framskref í mars—apríl—maí 1984
og afnotagjald í júlí—ágúst—
september 1984.
Þessir reikningar voru ekki
greiddir.
Að lokum var gefinn út
reikningur í byrjun október sem
fyrr er sagt. Símnotandi ræddi
aldrei við núverandi stöðvarstjóra
um símaskuld sina á árinu 1984 og
það var ekki fyrr en nú i lok janúar
1985 að hann gerði það og samdi um
símaskuldsína.
Blaðamaöur sá er ritaði fyrr-
nefnda grein mun ekki hafa leitað
upplýsinga hjá Pósti og síma svo
mér sé kunnugt um. Það gerði
heldur ekki blaðamaður Þjóðvilj-
ans, sem ritaöi grein um sama efni
í blað sitt í desember sl.
Þetta mun vart flokkast undir
rannsóknarblaöamennsku.
Reykjavík 11. febrúar 1985.
Kristján Helgason
umdæmisstjóri.
Urval
HENTUGT
0G HAGNÝTT
COROLIA1300
Ný Corolla - ný viðmiðun.
Hin nýja Corolla 1300 er hönnuð
til að vera fremst meðal jafningja og
gæðaflokki ofar en verðið segir til um. Léttbyggð og sparneytin 1,3 lítra, 12 ventla vélin
-er kraftmikil, enda nýjasta framlag Toyota til betrumbóta — sumir segja byltingar — á bíl
vélum. Aksturseiginleikar gerast vart betri. Framhjóladrif og 1. flokks fjöðrunar-og stýris
búnaður skapa mikinn stöðugleika og rásfestu. Farþega-og farangursrýmið stenst allan
samanburð hvað varðar nýtingu, þægindi og hagkvæmni.
Þú getur treyst Toyota Corolla — því ánægðum eigendum fjölgar stöðugt um allan heim.
FREMST
MEÐAL
JAFNINGJA
VERÐ FRÁ 307.000 kr.
TOYOTA
Nybýlavegi 8 200 Kopavogi S. 91-44144
Bolludagsbollurnar
frá Sigga bakara.
Vörumarkaðurinn ht.
JáRMÚLA 1A - EIÐISTORG111.