Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Qupperneq 2
2
DV. MIÐVKUDAGUR 20. FEBRUAR1985.
ÍSLENDINGAR MEIRI
SKÁKMENN ENRÚSSAR?
Áhuginn laynir sór ekki ó svip
áhorfenda, þar sem fylgst er
með stöðu mála.
ÞESSIR VORU
Þaö var heldur fámennt á skákinni
í gærkvöldi. Það vantaði þó ekki að
sumar skákimar voru mjög spenn-
andi og því margir skákáhugamenn
fjarri góöu gamni.
Fjör í
skákskýrandasalnum
Líf og f jör var í skákskýrandasaln-
um þar sem Sævar Bjamason fór á
kostum í skýringum sínum þegar
hann útlistaði skák þeirra Bent
Larsens og Van der Wiel.
„Heyrðu, Sævar, það gengur ekki
að fara meö kónginn á e2,” sagði
maöur úti í sal.
„Hvað er að því? Eg bara spyr?”
Sævar hvessti augun á manninn.
„Er ekki betra að fara bara með
peðið? ” sagði maðurinn.
„Heyrðu, vinur, þetta kallast að
vera klaufalegur í skák,” sagði
Sævar.
Það varð hlátur í salnum og menn
sneru sér við og horfðu á manninn.
Hann sagði ekki meira.
Eiginhandaráritanir
Frammi á gangi var snaggaraleg-
ur strákur um fermingu á þönum.
„Heyrðu, sagði hann. „Gætir þú
ekki farið fyrir mig inn til skák-
mannanna?” spurði hann.
„Nei, þangaö fara engir nema
dómaramir,” var svarið.
„Eg þarf nefnilega að biðja
Spassky um aö skrifa á þetta vasa-
tafl.”
„Er Spassky þinn uppáhalds-
skákmaöur?”
„Nei, nei, en þetta er nú fyrrver-
andi heimsmeistari. Eg vildi aö þaö
Þesslr voru mcðal þeirra, sem fylgdust
með 7. umferð afmælisskákmóts Skík-
sambandsins á Hótel Loftleiðum i gær:
Magnós Sigurjónsson framkvæmdastjóri,
Halldór Blöndai alþingismaður, Jón
Kristinsson, útibússtjóri Bónaðarbankans
á Hóbnavfk, Geir Rögnvaldsson fram-
kvæmdastjóri, Pétur Blöndal nemandi,
Ásgeir Einarsson forstjóri, Jón Þórodd-
son lögfræðbtgur, Magnús V. Pétursson
knattspyrnudómari, Sigmundur Böðvars-
son lögfræðingur, Jón Magnússon stærð-
fræðingur, Ingvar Ásmundsson skóla-
meistari, Gunnar Gunnarsson, fyrrver-
væri núna heimsmeistaraeinvígiö
milli Fischer og Spassky, en þá var
ég ekki búinn að slíta barnsskónum.
Því er nú verr. Getur þetta verið?”
spurði hann svo. „Eru þessar myndir
til sölu núna?” Hann benti á teikn-
ingar af heimsmeistaraeinviginu ’72.
„Eg á þetta komplett. Eg hélt að
þetta væri rarítet. Þetta verð ég að
kanna.” Þar með þaut stráksi í
burtu.
andi forseti Skáksambandsins, Bjöm
Jónasson bókaútgefandl, Friðjón Sigurðs-
son, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis,
Magnús Einarsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, Ólafur Bjarni Guðnason blaða-
maður, Guðmundur Arason, fyrrverandi
forseti Skáksambandsins, Geir Haarde,
aðstoðarmaður fjármáJaráðherra, Hjört-
ur Gunnarsson blaðamaður, Magnús
Páisson, starfsmaður Orkustofnunar,
Ásgeir Ásbjörnsson, starfsinaður For-
ritunar sf., Jóhann Guðmundsson bóndi,
Kristján Guðmundsson útvarpsmaður,
íslendingar meiri
skákmenn en Rússar?
Sú saga hefur verið höfð í flimting-
um manna á meöal á mótinu aö
Islendingar væru meiri skákmenn en
Rússar. Ástæðan? Jú, Islendingar
eiga 2 stórmeistara, en Rússar milli
50 og 100. Mun færri hausar eru því
að baki hverjum islenskum stór-
meistara en rússneskum.
Þórir Óiafsson hagfræðingur, Gestur
Jónsson lögfræðingur, Jóhann Tómasson
læknir, Björn Fr. Björnsson, fyrrverandi
sýsiumaöur, Guðjón Jónsson, formaður
sjómannafélags Akureyrar, Ásgelr
Fríðjónsson fikniefnadómari, Ólafur Kr.
Sigurðsson beildsali, Ingimar Halisson
rekstrarhagfræðingur, Guðmundur Bene-
diktsson, hjá Dkniefnadómstólnum,
Guðmundur Hermannsson biaðamaður,
Jakob Möller skákmaður og Jakob
Ármannsson, starfsmaður (itvegs-
bankans. kj>
AfmælismótSÍ:
Guðmundur vann Margeir!
- og Larsen vann Van der Wiel og er með örugga f orystu
Bent Larsen tók í gærkvöldi
örugga forustu á afmælismóti Skák-
sambands Islands. Hann vann mjög
erfiða skák af Hollendingnum Van
der Wiel á meðan Margeir Pétursson
tapaði skák sinni gegn Guðmundi
Sigurjónssyni og Boris Spassky á
jafnteflislega biöskák gegn Artur
Jusupov.
I gærdag tefldu Larsen og Margeir
biöskákir sínar frá 6. umferð. Larsen
náði ekki að vinna Vlastimil Hort
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir á
meöan Margeir vann Curt Hansen af
öryggi.
Þegar tekið var til við að tefla
sjöundu umferðina i gærkvöldi voru
þeir Margeir og Larsen því jafnir og
efstir með fjóra og hálfan vinning
hvor.
Umferð gærkvöldsins skildi síðan
að nýju á milli þeirra.
Van der Wiel — Larsen,
0-1
Það má ávallt bóka að þegar Lar-
sen sest við skákborðið þá verður
barist upp á líf og dauða. 1 skák gær-
kvöldsins ákvað Larsen strax að ýfa
bárur óstööugleikans með því að
svara framrás hvíta h peösins í
byrjuninni með því að undirbúa og
hrókfæra síðan á drottningarvæng.
Áætlun þessi gaf Larsen betra tafl
eftir byrjunina, en hann tefldi óná-
kvæmt í framhaldinu og Hol-
lendingurinn fékk hættuleg færi. 126.
leik átti Van der Wiel möguleika á
hættulegri biskupsfórn en þess í stað
dró hann biskupinn til baka og Lar-
sen lagaöi varnir sínar.
Lok skákarinnar tefldi Larsen
síðan óaðfinnanlega.
Hvítt: J. Van der Wiel (Hollandi)
Svart: Bent Larsen (Danmörku)
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 g6 5. Rc3 Bg7 6. Rb3 d6 7.
Be2 Rf6
Á borðinu er nú hefðbundin staða
úr drekaafbrigði sikileyjarvarnar.
Engu að siður leyfir Hollendingurinn
sér að grípa þegar í stað til róttækra
aðgerða á kóngsvæng. Sennilega veit
hann að Larsen mun bregðast við
þeim af fullri hörku og þess vegna er
von á snarpri baráttu.
8. h4l7 Bo6 9. H5 Rxh5 10. Bxh5
Bxc311. bxc3 gxh512. Dxh5
12. Hxh5 fellur betur að áframhaldi
hvíts. Áætlun svarts leynir sér ekki,
hann hyggst koma kóngi sínum í
skjól á drottningarvæng.
12. - Dd7 13. Be3 0-0-0 14. De2
Kb8 15. f3 Hc8 16. Df2 Ka87l 17.
Hh5f5
Byrjun hvíts hefur mistekist. Hins
vegar er staðan mjög viðkvæm og
svartur verður að vera á varðbergi
gegn ýmsum fléttum.
18. exf5 Bxf5 19. Dd2 Hhf8 20. a4
Dc7 21. a5 Kb8 22. Kf2 e5 23. Kg1
Bg67
Upphaf rangrar áætlunar. Eðlilegt
framhald væri: 23. — Hf7 ásamt 24.
Hg8 og svartur nær kóngssókn.
24. Hh4 Re77l
Hleypir hvíta kóngshróknum í
sóknina á drottningarvæng. Það er
merkilegt hve Larsen tekst ávallt að
brenna allar brýr að baki sér þannig
að ekki verður aftur hörfað ef illa
fer.
25. Hb4 Rf5
26. Bf2?
Linkulegur leikur og langt frá því
að vera í samræmi við hvassan
sóknarstil Hollendingsins unga.
Nauösynlegt var 26. Bxa7-H og
svartur lengir í úlfakreppu.
Framhaldið gæti orðið: 26. — Kxa7
(26. - Ka8 tapar eftir 27. a6) 27.
Df2+Ka8 (eftir 28. -Kb8 vinnur 29.
a6 og eftir 28. — Rd4 29. cxd4 Dxc2
heldur 30. Rd2 sókn hvíts gangandi)
28. Hb6!! og hótunin 29. a6 er
óhugnanleg ef t.d. 28. — Dxc3 29. a6
De3 30. axb7++ Kb8 31. Ha8+ Kc7
32. bxc8+=D Hxc8 33. Hxc8 og
hvítur verður skiptamun yfir í enda-
tafli. E.t.v. hefur Van der Wiel
einungis reiknað með framhaldinu:
28. a6 í stað 28. Hb6!! en þá á svartur
vörnina 28. — b6 29. Hxb6 Da7! Eftir
textaleikinn nær svartur frum-
kvæðinuaðnýju.
26. - Dxc3 27. a6 b6 28. Dd5 Dc6
29. Da5 Kc7l 30. Da3 Hg8 31. Rd2
Bf7 32. Dd3 Be6 33. Rc4 Dd5
Svartur stendur nú til vinnings og
hvítur grípur til örþrifaráða.
34. Bxb6+ axb6 35. Dxd5
Eftir 35. Rxb6 leikur svartur 35. —
Dc5+ og hvítur tapar a.m.k.
hróknum á b4 ef hann vill ekki verða
mát eftir 36. Kh2? Hxg2+ o.s.frv.
35. - Bxd5 36. Rxb6 Bxf3 37. Kf2
Hvítur er mát eftir 37. Rxc8
Hxg2+ 38. Kfl (38. Khl Rgr mát)
Re3+ 39. Kel He2 mát.
37. - Bc6 38. g4 Hcf8l 39. gxf5
Hxf5+ 40. Ke3 Hg2l
Hvítur gafst upp; hann er mát eftir
41. Kd3 Hf3+ 42. Kc4 Hxc2!!
Guðmundur—Margeir,
1-0
Margeir hafði fyrir þessa skák
unniö f jórar síðustu og var því til alls
líklegur. Ennfremur var orðið ljóst
að jafntefli í þeim skákum sem eftir
voru hefði tryggt honum fyrsta
áfangann að stórmeistaratitli.
Guömundur fékk í skákinni aðeins
þægilegra tafi út úr byrjuninni og
sótti í miötafli að stöku peði á
ÁsgeirÞ. Árnason
drottningarvæng. Margeir gaf það
og fékk miðborðspeð í staðinn, tefldi
síðan ónákvæmt og réð ekki við
frípeð Guðmundar á drottningar-
væng.
Urslit skákarinnar urðu hinum
fjölmörgu aödáendum Margeirs sár
vonbrigði og sérstaklega vegna þess
að það þurfti að vera Islendingur
sem stöövaði sigurgöngu Margeirs.
Skákin sýnir þó svo ekki verður um
villst að enginn er annars bróðir í
manntafli. Margeir á þó þrátt fyrir
tapiö góða möguleika á áfanganum
ef hann stendur sig vel í loka-
slagnum.
Jón L.-Helgi,
1/2—1/2
Áhorfendur veltu því fyrir sér
hvers vegna þeir félagarnir Helgi og
Jón væru yfirleitt að mæta á skák-
stað. Staðan var þá mjög óljós og
þrungin möguleikum.
Jusupov—Spassky,
biöskák
Jusupov sótti stíft í drottningar-
lausu miðtafli sem upp kom eftir
drottningarbragö. I biðstöðunni
hefur Spassky þó greinilega rétt úr
kútnum en hún er þessi:
Ljóst er að jafnteflisdraugurinn
hefur þegar tekið sér stöðu á
borðinu.
Hort—Karl, biðskák
Skemmtileg og tvísýn skák. Þar
sem Hort varð á ónákvæmni í mið-
taflinu og varð að láta skiptamun af
hendi fyrir peö. Karl missteig sig í
framhaldinu er hann fór of geyst af
stað í uj^skipti og hefur í hiðstöðunni
erfitt tafl meö hrók og fjögur peð
gegn biskupi og sex peðum.
Biðstaöan erþessi:
Hansen—Jóhann, biðskák
Jóhann hafði frumkvæðið lengst af
með svörtu mönnunum eftir að
Daninn hafði teflt veikt í byrjun
miðtafls. Undir lok setunnar fór frípeð
Danans á d línunni að angra okkar
mann en Jóhanni tókst að stöðva það
og er biðstaðanþessi:
abcdefgh
Síðasti leikur Jóhanns fyrir bið var
hinn glæfralegi 40. — Kf7-e6! ? og var
Jóhann þá í bullandi tímahraki.
Leikurinn er greinilega vinnings-
tilraun af hálfu Jóhanns en ekki er
allt sem sýnist eins og kerlingin
sagði. Daninn hugsaði sig vel um bið-
leikinn.
I dag er frídagur á mótinu fyrir
utan þær biðskákir sem leiddar
verða til lykta. Ljóst er að Larsen
hefur nú örugga forystu en staða
annarra keppenda er ekki ljós vegna
biðskákanna. 8. umferð verður tefld
á morgun kl. 17. AþA.
j-