Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Side 16
16 DV. MIÐVHCUDAGUR 20. FEBRUAR1985. Spurningin Finnst þér gott að búa á ís- landi? Sœdis Vigfúsdóttir húsmóðir: Já, það finnst mér, sérstaklega þegar veðriðer gott. Guðrún Sandra Gunnarsdóttir nemi: Já, það er alveg ágætt að búa hér. Salgerður Jónsdóttir, vinnur i Landsbankanum: Mér finnst það bara alveg ágætt. Eg vildi alls ekki búa annars staðar. Hallur Ágústsson, deildarstjóri i HK: Æ, mér finnst það nú heldur slappt. Veðrið er svo kalt. Helga Halldórsdóttir, heimavinn- andi:Mér finnst það bara ágætt, en ég þekki ekkert annað, hef ekki búið ann- ars staðar. Helga Stefónsdóttir nemi: Mér finnst tsland besta landið. Það er rosa- gott að búa héma. | Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Glannaakstur í vætutíd Ágústa hringdi: Oft hefur verið rætt um tillitsleysi bílstjóra gagnvart gangandi vegfar- endum. Þaö hefur hins vegar aldrei verið tekiö almennilega á þessum málum. I hlákunni sem verið hefur að undanfömu gekk alveg fram af mér. Eg varð fyrir því þar sem ég gekk eftir gangstéttinni á Kringlumýrar- brautinni, að stór vörubíll keyrði fram hjá mér á miklum hraða og jós yfir mig aur og bleytu. Hvort sem bílstjórinn tók eftir þessu voðaverki sínu eða ekki þá hirti hann a.m.k. ekkiumaðstoppa. Eftir stóð ég rennvot og kápan mín er að öllum líkindum ónýt. Mér finnst það ansi blóöugt að þurfa að verða fyrir svona fjárhagslegu tjóni án þess að hafa minnstu von um að fá skaöann bættan. Hver er réttur okkar vegfarenda eiginlega? Er hann enginn? Eigum við að taka slíkum áföllum möglunarlaust? Nei, ekki aldeilis. Þetta er nokkuð sem allir vegfarendur verða að taka höndum saman um að lagfæra og það fljótt. Það er í sumum tilfellum hægt að ná númerinu á bílum og þá á að kæra þessa menn og láta þá greiða sektir fyrir misgjöröir sínar. Elskuleg þjónusta öryrki skrifar: Eitt af mörgum góðum verkum Magnúsar heitins Kjartanssonar var að stofna félagsmáladeild við Trygginga- stofnun ríkisins. Ekki var minna um vert að hann skipaði Guðrúnu Helga- dóttur, þá öðlingskonu, deildarstjóra þeirrar deildar. Nýlega átti ég erindi við Trygginga- stofnunina og ég var ekki betur inni í málum en það að ég spuröi um Guð- rúnu. Þá var mér tjáð að hún væri löngu hætt, en við starfi hennar hefði tekið Margrét nokkur Thoroddsen. Ég fór meö hálfum hug að tala við hana en elskulegri móttökur get ég ekki hugsað mér. Góðvildin skein útúr henni, enda frétti ég eftir á að hún væri systir Gunnars heitins forsætisráð- herra sem öll þjóðin dáði. Mikið eru þeir heppnir hjá trygging- unum að fá 2 slíkar framúrskarandi konur tii starfa. Það ber yfirmönnum stofnunarinnar gott vitni að þeir skuli velja slfkt öðlingsfólk til starfa. Lestur skipafrétta Kaupmaður utan af landi hringdi: Það kom ekki nógu vel fram i grein- inni hér á dögunum um lestur skipa- frétta í útvarpi að átt var við að þær væru ekki lesnar nógu oft fyrir hádegi. Stýrimenn láta þetta frá sér um hálf- áttaleytið á morgnana og síðan er þetta bara lesið einu sinni í áttafrétt- um. Mér finnst að það þurfi að lesa þetta oftar því það eru margir sem fylgjast með ferðum strandferðaskip- anna um landiö. HvarerSteini? S.E. Dickinson skrifar: Eg skrifa þessar línur í von um að það hjáipi mér og vinum mínum til aö komast í samband við Islending sem við hittum í sumarfríi í Hollandi. Hann heitir Steini og við hittum hann á „Big Ben bar” í Rotterdam snemma í nóvember á síðasta ári. Við heitum Steve, Chris og Robert. Heimilisfang mitter: SACS.E. Dickinson UKRAOCOPS RAF High Wycombe Buckinghamshire England HP144UE. Sjónvarpsnotandi skrifar: Drungaleg sjónvarpsdagskrá Sjónvarpsnotandi skrifar: Það er áreiðanlega ekki aö ófyrir- synju, að svo margir sem raun ber vitni, t.d. með lesendabréfum, og í ann- arri umfjöllun, gagnrýna dagskrá sjónvarps og óska eftir gagngerðum breytingum þar á. Margir sem um dagskrá sjónvarps hafa f jallað segja sem svo að það eina, sem sé bitastætt í sjónvarpinu, séu fréttimar. Má vera að svo sé, en ég er þar ekki á sama máh. Mér finnst fréttir sjón- varps heldur ekki vera neitt líkar því sem maður sér í sjónvarpi annars staöar, jafnvel miklu lakari en á Norðurlöndum og er þá víst langt til jafnað. Fréttir hér eru yfirleitt stuttar um hvert efni og lítið um „lifandi” myndir og oftar en hitt, að fréttamyndir séu endurteknar þótt um nýja frétt sé að ræða úr sama málaflokknum. Dæmi um þetta er frétt um sjávar- afla. — Sama mynd, kvöld eftir kvöld af jarðýtu, sem er að skafa saman loðnu og moka henni í einhverja þróna til bræðslu. — Mýmörg eru dæmin um útjaskaöar myndir í erlendum frétt- um. Dæmi: frá hungursneyöinni í Afríku, frá kolanámuverkfalli í Eng- landi (reyndar langt um liðið), o.fl. Hins vegar, þegar eitthvað frétt- næmt er að ske og áhugavert, þá er eins og aðeins megi rétt bregöa upp lif- andi myndum frá atburðinum og þulur talar svo mikið með fréttinni að hún verður einskis nýt sem sjónvarpsfrétt. Dæmi um þetta er frétt frá uppboöi á loödýraskinnum í Danmörku en þar var mjög skemmtileg og lifandi mynd frá uppboðinu, atburöi sem við Islend- ingar eigum ekki að venjast að s já hér. Nei, það var ekki nema augnablik og maður gat ekki fengið að fylgjast meö uppboðinu, sem er sérkennilegt, fyrir tali sem fylgdi með frá íslenska þulin- um. Miklu fleiri dæmi mætti nefna þar sem klippt er á fróðlegar myndir úr erlendum og innlendum fréttum en þó einkum erlendum. Einhvem tíma var sú skýring höfð uppi frá hendi sjónvarpsins að þetta væri gert til þess að áhorfendur væru ekki búnir aö „sjá meira” þegar sama frétt væri nýtt sem uppistaða í fréttaauka síðar í ein- hverju „kastljósinu” eða frétta- skýringaþætti. Ef maður fengi nú aö sjá góðar og fróðlegar fréttamyndir almennilega í fréttum þyrfti bara enga frétta- skýringaþætti, svo einfalt er það! Þá mætti í stað þeirra sýna góða kvikmynd eða annað, sem fólk vill fá sem afþreyingu í stað fréttaþáttar, sem menn eru löngu búnir að afgreiöa sem „liðna tíð”. ,,Litla hryllingsbúðin er frábœr," sogir oin 12 ára. Litla hryllingsbúðin frábær Ein 12 ára skrifar: Þessi grein höföar til allra krakka á öUu landínu. Eg er búin að sjá Litlu hryllingsbúðina og finnst hún hreint frábær. Leikaramir eru algjört æði og plantan þá sérstaklega en Björgvin Halldórsson leikur rödd hennar. Með þessum orðum hvet ég alla til aö sjá þetta frábæra stykki. Ef þið hafið séð eitthvað úr söng- leiknum í sjónvarpi eða heyrt í útvarpi þá hljótið þið að hafa áhuga. Tillitsleysi bilstjóra getur haft slæmar afleiðingar i för með sér. Það verða aðrir sem brjóta lögin að öðrum til varnaðar. Bílstjórar en þeir færu út í glannaakstur i vætu- gera og slík mál yrðu jafnframt myndu þá hugsa sig tvisvar um áður tíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.