Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Blaðsíða 7
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRUAR1985. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Jól Heimis Guðjónssonar. Magnús Þórðarson fylgist með af óhuga. Það duga ekki færri en tvær skeiðar þegar Skúli Johnsen borgarlæknir smakkar bæði á súpunni og sósunni. „Vantar aðeins meiri kraft," sagði Skúli og skellti skeið af kjötkrafti út i pottinn. lögmaður só um að leggja ó borð. liður í bættri meðferð kjöts: Kjötiö hangirí frystibflnum „Þessi bíll er sérstaklega útbúinn til matvælaflutninga. Þaö er hægt aö hengja upp 7 tonn af kjöti í grindum- ar í loftinu og það er hægt að hafa allt að 20° frost — og upp í 20° hita ef á þarf að halda,” sagði Sævar Jónatansson vöruflutningabílstjóri frá Hvammstanga í samtaU viö DV. Sævar flytur kjöt, bæði frosið og nýtt, að norðan, og grænmeti og óvexti og aðrar vörur norður. DV-myndir Bjarnleifur Bjarnleifsson. i grindurnar i loftinu er hægt að hengja 7 tonn af kjöti, en kassinn tekur alls um 8 tonn af varningi. Kassinn er allur mjög vel einangraður og vel varinn fyrir ryki að sögn Sævars Jónatanssonar. Hann hafði lesið grein á neytenda- síðu fyrir nokkru, þar sem fjallað var um geymslu og flutninga á mat- vælum. Þar var því haldið fram að þegar eitthvað væri athugavert við kjötvörur í verslunum væri það langt frá því að vera aUt á ábyrgð verslunarinnar eða kjötvinnslunnar. — Þyrfti að fylgja kjötinu eftir alveg frá slátrun, þar með áriöandi að flutningar fari rétt fram. „Ryk og óhreinindi hafa verið vandamál þeirra sem flytja kjöt. Eg veit einnig um aðila í Reykjavik sem hafa neitað að taka við kjöti sem var staflað því þá viU kjötið merjast,” sagði Sævar. Hann ekur fyrir tvö sláturhús á Hvammstanga, kaupféiagið og Versl. Sigurðar Pálmasonar. Hann ekur bæði kjöti, skelfiskiog rækju suður og tekur svo grænmeti og ýmsar aðrar vörur norður. A.Bj. Daun Eifel sumarhúsin hafa reynst með afbrigðum vel, enda leitun að vandaðri sumardvaiarslað. Bæði er gistiaðstaðan einstök og nágrennið f sérslakiega spennandi. Þar mð nefna Móseldalinn með hinni fornu róm- versku verslunarborg Trier og gullfallegum bæjum eins og Cochem, Enkirch eða Bernkaslel, Eifelvötnin með sólbaðs- og íþróttaaðstöðu, dýragarða. hina heimsfrægu kappaksturbraut Niirburgring og hinn stórkostlega skemmti- garð Fantasíuland með gullgrafarabæ, Kínahverfi, breiðstræti frð Berlfn, víkingaskipum og óteljandi öðrum tryllitækjum og skemmtiatriðum. Það er líka með ólíkindum ódýrt að lifa í Daun Eifel. Brottfarir: Alla sunnudaga frá 31. mars. Ferðatilhögun: Flogið til Luxemborgar, þaðan er um 2ja klst. akstur til Daun Eifel. A Contlnental bílaleigunni liggja frammi leiðbeiningar um leiðina á íslensku. Það er hvergi auðveldara að leggja út í Evrópuferðina en í Luxemborg. Dvalartími: I—4 vikur. Verð: án bílaleigubíls frá kr. 13.457,-. með bílaleigubíl frá kr. 14.818,-. Barnaafsláttur: 2— 11 ára fá kr. 5.800,- í afslátt. DAUN EIFEL er margfalt betri en veröið gefur til kynna. FÍRMSKRIFSIDMH URVAL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.