Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Side 15
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR1985.
15
FRELSIEÐA
FJÁRMAGN!
■ 1984 (107. löggjafarþing) — 198. mál.
|Ed. 224. Frumvarp til útvarpslaga.
Flm.: Sigríöur Dúna Kristmundsdóttir.
I. KAFLI
Ríkisútvarpið.
>■ gf-
Rikisútvarpiö er sjálfstæð stofnun í eign íslenska ríkisins.
Rfkisútvarpið hefur einkarctt á útvarpi. þaö er útsendingu til viötöku ulmcnnings á tali. 1
I tónum. myndum eöa öðru efni. hvort sem er þráölaust. meö þrteöi eöa á annan hátt. í þessu
Iskyni reisir Ríkisútvarpiö sendistöövar og endurvarpsstöövar eftir þörfum.
| Heimilt er Ríkisútvarpinu að flytja inn tollfrjálst til eigin þarfa. eiga og reka senditæki.
I viötæki og önnur slik tæki sem eru sérstaklega framleidd fyrir útvarp. enda fullnægí tiekin
þcim skilyrðum um öldutíðni. útgeíslun og fleira sem ákvcöiö er skv. alþjóöasamþykktum
og reglugeröum varðandi fjarskipti sem ísland er aðili að.
•1. gr-
Ríkisútvarpiö skal stuðla aö almennri menningarþróun þjóöarinnar og efla íslenska
tungu. Aö minnsta kosti helmingur af útsendu efni á hverri rás skal vera íslenskur.
Ríkisútvarpiö skal meðal annars flytja efni á sviöi lista. bójímennta. vísindti og trúarhragöa
efla alþýðumenntun og skilning á mismunandi viöhorfum og menningarheimum. Þaö ska
veita fra-öslu í cinstökum greinum og kappkosta að halda uppi rökrxðum um hi
málefni. sem almenning varöar, á þann hátt að mcnn geti gert sér grein fyrir m
I skoöunum á þeim. Þaö skal halda uppi fréttaþjónustu og vcita fréttaskýringar
Iflytja fjölbreytt skémmtiefhi viö hæfi fólks á öllum aldri.
„Frelsið býr í frumvarpi Kvennalistans en ófrelsið i frumvarpi ríkisstjórnar
og frjólshyggjumanna."
f vetur hafa verið lögð fram á Alþingi
tvö frumvörp til útvarpslaga. Bæði eru
þau lögð fram i því skyni að auka
frelsi. Það liggur hins vegar ólfkur
skilningur að baki frelsinu. í fumvarpi
rikisstjórnarinnar ræður ferðinni skiln-
ingur frjálshyggjumanna: Að frelsi
þýði frelsi til að græða, frelsi fjár-
magnseigenda til að stækka sinn hluta
kökunnar, frelsi til að hafa áhrif á
skoðanir annarra i krafti fjármagns.
í frumvarpi frá Kvennalista er gert
ráð fyrir að allir landsmenn fái jafnan
aðgang að útvarpi til að koma þar á
framfæri efni.
Skal hér stiklað á stóru í efni frum-
varpanna:
Frumvarp rikisstjórnarinnar
Pólitískt skipuð nefnd á að ákveða
hverjir fái leyfi til að stofna útvarps-
stöð.
Búið er þannig um hnúta að aðeins
peningamenn geta stofnað stöðvar sem
ná útbreiðslu. Þeir geta t.d. sameinast
um stöð og auglýst í henni og ekki i
öðrum stöðvum.
Klásúiu er um að stuðla skuli að því
að í dagskrá stöðva komi fram rök fyrir
mismunandi skoðunum í umdeildum
málum. Bæði Mogginn sem háflokks-
pólitiskt blað og DV birta greinar sem
eru andstæðar skoðunum eigendanna.
Dæmi um það er þessi grein. Aftur á
móti munu andstæðar skoðanir stefnu
forráðamanna útvarpsstöðvar jafnt
sem blaðs einfaldlega drukkna i flóði af
öðru efni; auglýsingum, einlitum
áróðri og afþreyingarefni.
Rikisútvarpinu eiga pólitískt kjörnir
fulltrúar áfram að stjóma en þeir eiga
þó að skipta sér minna af einstökum
dagskrárliðum en nú er raunin.
Ekki er gert ráð fyrir neinum sér-
stökum áhrifum almennings á útvarps-
efni, hvorki i Ríkisútvarpinu né í
peningastöðvunum.
Frumvarp Sigríðar Dúnu
Kristmundsdóttur
Útvarpsrekstur sé i höndum einnar
sjálfstæðrar og óháðrar stöðvar i eigu
íslenska ríkisins, þ.e. Ríkisútvarpsins.
Rekstur þess lúti ekki yflrráðum póli-
tikusa.
Þar er rækilega tekið fram að
„menning og reynsla minnihlutahópa
fái sambærilega umfjöllun og meiri-
hlutahópa”, en á þetta hefur skort.
INGÓLFUR Á.
JÓHAIMNESSON
SAGNFRÆÐINGUR
OG KENNARI
Gert er ráð fyrir a.m.k. þremur
hljóðvarpsdagskrám og a.m.k. einni
sjónvarpsdagskrá er allir nái til lands-
ins alls auk staðbundinna stöðva,
íbúar hvers og eins sveitarfélags geta i
almennum kosningum ákveðið að
stofna slika stöð. Ein rásanna, rás þrjú,
verður opin almenningi fyrir hvers
kyns efni. Leggur Rikisútvarpið þá
fram hljóðver og tækniaðstoð við gerð
þátta.
Daglegum rekstri Ríkisútvarpsins
skal stjórnað af starfsmönnum sem
kjósa sér yfirmenn til mest þriggja ára i
senn.
Notendaráð skal skipað 14 einstakl-
ingum sem á að velja með hlutkesti úr
hópi kjörgengra landsmanna til tveggja
ára I senn. Það á að leggja drög að
skiptingu efnis í höfuðdráttum. Það
skal og skipa umsjónarmenn að föstum
þætti á hverri útvarpstöð þar sem taka
skal fyrir gagnrýni notenda á útsent
efni stöðvarinnar.
Hugmyndin um notendaráð er at-
hyglisverð tilraun til að auka bein áhrif
almennings sem eru of Iítil nú. Deila
má um hvort hlutkestiskosning sé besta
aðferðin við að velja I það.
Meira fre/si í frumvarpi
S/gríöar
Samkvæmt minum skilningi á frelsi
er óheftur aðgangur almennings að út-
varpi sem fólk á sjálft meira virði en
snöp I stöðvum peningavaldsins.
„Frelsi” frjálshyggjumanna löghelgar
aftur á móti rétt hins sterkari án þess að
gæta að rétti þess sem ekki á peninga
og er í engu samræmi við lýðræðishug-
myndir stjórnarskráinnar. í frumvarpi
Kvennalista er leitast við að tryggja og
auka tjáningarfrelsi allra einstaklinga,
ekki bara fjármagnseigenda.
Keyra átti frumvarp ríkisstjórnar-
innar í gegnum Alþingi í haust, á ólög-
legum (a.m.k. ósiðlegum) hraða.
Nokkru síðar kom frumvarp Kvenna-
listans fram og hefur verið reynt að
gera það hiægilegt enda hyggi það of
nærri frelsi fjármagnsins yrði það
að lögum.
Frelsið býr i frumvarpi Kvenna-
listans en ófrelsið i frumvarpi rikis-
stjórnar og frjálshyggjumanna.
Ingólfur Á. Jóhannesson.
^ „Samkvæmt mínum skilningi á
frelsi er óheftur aögangur
almennings að útvarpi sem fólk á sjálft
meira virði en snöp í stöðvum peninga-
valdsins.”
Hverfafundir borgarstjóra 1985
Hvað hefur áunnist?
Hvert stefnum við?
Davíd Oddsson borgarstjóri flytur rœbu og
svarar fyrirspurnum fundargesta.
Á fundinum verba til sýnis líkön og skipulagsuppdrœttir.
Háaleitishverfi, Smáíbúða-, Bústaða-
og Fossvogshverfi.
Miðvikudagur 20. febrúar kl. 20.30 í
Félagsheimili Hreyfils v/Grensápyeg/
Fellsmúla.
Reykvíkingar!
r
Fundarstjóri: Hannes Þ. Sigurðsson deildarstjóri.
Fundarritari: Stella Magnúsdóttir ritari.
Fjölmennið á hverfafundi borgarstjóra. Komið sjónarmið-
um ykkar á framfœri og kynnist umhverfi ykkar betur.