Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1985, Page 31
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBROAR1985. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Hreinsaö til Tll er félagsskapur sem nefn- ir sig Ljósmyndarafélag ts- lands. t það hafa sabiast saman faglærðir ljósmyndarar. Félagið eða öllu heldur for- r&ðamenn þess hyggjast nú hefja miklar hrelnsanir í stétt- inni ef marka má tilskrif þeirra út og suður. Þeir hafa tii að mynda sent ófaglærðum blaða- Ijósmyndurum bréf þar sem seglr m.a.: „Á fundum meðal faglærðra Ijósmyndara hefur komið i Ijús að þér haflð gengið inn & starfssvið þessarar stétt- ar. Á þessum fundum var ákveðið að senda öllum þeim aðilum sem ekki hafa áöur fengið viðvörun með kæru eöa i öðru formi þetta bréf. Bréf þetta er þvi sent yður til viðvörunar og þess krafist að þér látiö af ailri starfsemi, sem heitir þvi nafni að selja Ijós- myndun.” Færist aó harka t IJósmyndará. Siðan er hótað kæru frá Ljósmyndarafélaginu. AUflestir Ijósmyndarar á biöðunum eru „ófaglærðir”. Ástæðan er m.a. sú, að þeir eru taldir vera sérhæfðir blaða- menn eins og útUtsteiknarar og handritalesarar. Enda eru þeir fullgUdir félagsmenn i Blaða- mannafélagi íslands og láta sig Ijósmyndarafélagið engu skipta. DregiA ummán- aðamót Alþýða þessa hrjáða lands & í stórfelldum erflðleikum um þessar mundlr. Fólk er sumsé á hausnum, sérstaklega þó hús- byggjendur. Er misjafht hvern- ig menn bregðast við vandan- um þegar illræmd gluggaum- slögln streyma inn um bréfa- lúguna fyrir hver mánaöamót. Sögð er saga af einum ráöa- góðum húsbyggjanda. Hann tæmdi innvolsið úr gluggaum- slögunum i skókassa og hristi siöan. Um hver mánaðamót dró hann út nokkrar rukkanir og greiddi, eins og laun hans entust til. Plpulagningamaöur einn hafði unnið viðvik fyrir hús- byggjandann. Vildi hann fá þaö borgaö og var farinn aö rukka reglulega um hver mánaðamót. Okkar manni i bygginga- bransanum var farið að leiðast þófiö. Svo var þaö einu sinni sem oftar að piparinn hringdi og heimtaði penlnga. „Það er vissast fyrir þlg að hætta þessu nuddi, góurinn,” svaraði hús- byggjandinn þá, „annars tek ég reikningana þina úr skó- kassanum og þ& gæti farið svo aö þú misstir af drætti.” Nafn með rentu Athugulir, sem leið ciga um Keflavik, hafa teldð eftir þvi að byggingarframkvæmdir við verslunarhús á Tjarnargötu 2—4 þar i bæ hafa lcgið niörí um nokkurt skeið. Mun ástæö- an vera sú að þakskegg á Hafnargötu 28 kemur í veg fyr- ir að hægt sé að reisa verslun- arhúsiö samkvæmt teikningu. Þótt mikið hafi verið „skeggrætt” hjá viðkomandi SkeggjastaOir skal þaö heita. aðilum hefur ekki tekist að lcysa deiluna. Hafa gamansam- ir gefiö þessu þrætuepli nafh sem er auðvitað Skeggjastaöir. Minn- ingar? Tannlæknirinn, Ómar Kon- ráö, er áberandi fyrírbrígði i söngleiknum Litlu hryllings- búöinni, sem nú er sýndur i Gamla bióL Er tannsi látinn vera heldur harðhentur við sjúklinga sina svo sem fram kemur i söngtexta hans. Mætti ætia að hann kættist pinulitið ef einhver æjaði I stóinum hjá honum. Það er Einar Kárason, sem þýtt hefur söngtexta tannlækn- isins og gefið honum nafnið Ómar Konráð. Nú seglr þjóð- sagan okkur að Einar hafl á sokkabandsárum veríð f Áifta- mýrarskóla. Þar hafi skóla- tanniæknirinn heitið Ómar Konr&ðsson. Merkilegt nokk, ef satt er. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Kvikmyndir Kvikmyndir Ástarþrihyrningurinn vifl afgreiflsluborflifl, Callie, Henry og Willard. BÍÓHÖLUN - NIKKELFJALLH) * ★ SVEIT ARÓM ANTÍKIN Aðalhlutverk: Patrick Cassidy, Michael Cole og Heather Langenkamp. Leikstjóri: Drew Dcnbaum. Framleiðandi: Jakob Magnússon. Það er ekki oft sem tslendingar og Hollywood hópurinn taka höndum saman við gerð kvikmynda. Sú er reyndin með Nikkelf jallið eða Nickel Mountain sem Bíóhöllin sýnir um þessar mundir. Jakob Magnússon Stuðmaður er framleiðandi myndar- innar.Fleiri góðkunnir Islendingar koma einnig viö sögu. öll hlutverkin í myndinni eru þó í höndum Banda- rikjamanna. Leikstjórinn er banda- rískur og heitir Drew Denbaum. Hann gerði einnig kvikmyndahandrit eftir skáldsögunni. Nickel Mountain er eftir þekktan bandarískan rithöf- und að nafni John Gardner. Bókin kom út árið 1973 og seldist afar vel. Nikkelfjallið gerist í smábæ einhvers staðar í Kalifomiu. Sögu- persónurnar eru Callie Wells (Heat- her Langenkamp) saklaus sveita- stúlka sem minnir mjög á Brooke Shields í útliti. Callie fær sér vinnu á litlum matsölustað við þjóðveginn til þess að vera nálægt kærastanum sínum, Willard Freund (Patrick Cassidy). Matsölustaðinn rekur mið- aldra maður að nafni Henry Soames (Michael Cole). Henry er hjartveik- ur og vel í holdum. Sagt er að hann eigi skammt eftir ólifað. Freki pabbinn hans Willard heim- tar að stráksi fari burtu í heima- vistarskóla. Willard og Callie eiga eldheita kveðjustund og Callie verö- ur ófrísk. Henry tekur hana upp á arma sína eftir að Willard snýr við henni bak- inu. Callie tekur Henry upp á sina arma þegar hann fær hjartaslag, komungur maðurinn. Undir stjóm Callie hefur Henry líkamsþjálfun eft- ir áfallið. Á nokkrum bíómínútum sjáum við hvar hann breytist í myndarlegasta karlmann. Callie tekur eftir þessu einnig. Hún játast Henry og þau giftast. Willard kemur aftur fram á sjónarsviðið og er nú hinn versti. Ekki er ráðlegt að segja nánar frá efnisþræðinum. Sveitarómantíkin er allsráöandi í myndinni. Persónumar eru allar ein- föld ljúfmenni, þó með minniháttar skapgerðargalla. Mike veit aldrei hvort hann á að hlæja eða gráta. Willard er líka ósköp elskulegur en bilar smávegis á geðinu þegar á móti blæs. Callie er góða stúlkan, sak- laus og óörugg. Þrátt fyrir að hún sé meö laglegasta móti veit hún ekki af því. Dæmi: Willard: „Callie þú ert svo falleg.” Callie: „0, Willard, það hlýtur aö vera ljósið. ” Nikkelfjallið er ekki fyrir þá sem eru á höttum eftir bófahasar eða eltingarleik. Aödáendur slikra mynda ættu skilyrðislaust aö sitja heima. Þeir sem sækjast eftir hug- ljúfu ástarævintýri í sveitinni þar sem hinn sígildi ástarþríhymingur er örlagavaldurinn ættu hins vegar ekki að láta þessa mynd fram hjá sér fara. Ráðlegt er að mæta með vatns- heldan augnháralit og snýtuklút. Elin Hirst. ★ Léleg OAfleit ★ ★ ★ ★ Frábær ★ ★ ★ Góð ★ ★ Miðlungs Firmakeppni Þróttar 1985 Okkar árlega firmakeppni verður haldin í Vogaskóla helgarnar 23.-24. febr. og 2.-3. mars. Þátttaka ' tilkynnist fyrir 20. febrúar í versluninni Liturinn, Síðumúla 15, sími 84533 eða 33070. Hringið í dag og tryggið ykkur þátttökurétt. Mótanefnd KÞ. Svæðisskipulag Suðurnesja Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Skipulagsstjórn ríkisins vilja ráða mann til að vinna að svæðisskipulagi fyrir Suðurnes. Æskilegt er að starfsmaðurinn hafi sérmenntun i skipulagsfræðum eða haldgóða reynslu á því sviöi. Samband sveitarfélaga á Suöurnesjum mun útvega starfsaöstöðu á Suðurnesjum. Ráðningartíminn verður tvö ár eftir nánara samkomulagi og verður hugsanlega framlengdur slöar. Frestur til að skila umsóknum ásamt meðmælum og itarlegum upplýsingum um nám og fyrri störf er hérmeð framlengdur til 10. mars nk. Umsóknir skal senda til Skipulagsstjóra rlkisins, Borgartúni 7, Reykjavík. Skipulagsstjóri rikisins, Zóphónías Pálsson, Borgartúni 7, Reykjavik, simi 91-29344, og Eirlkur Alexandersson, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Brekkustig 36, Njarðvik, sími 92-3788. F.h. S.S.S. og Skipulags rikisins, Eirikur Alexandersson, frkvstj. Zóphónias Pálsson, skipuiagsstjóri. r Kópavogsbúar — Kópavogsbúar. Kristján Óskarsson leikur á orgelið í kvöld. ííentiummt iti'bPlaUcgi 20, 200l5ópaUogur, éilmi 42541 J Ittö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.