Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Qupperneq 4
48 DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. rætt viö Ál Gunnlaugs hlaut Menninga DVfyrirbó sína, Þel „Manneskjan sem fjallar um bækur þvælist ekkert fyrir því sem ég skrifa sjálf." Álfrún Gunnlaugsdóttir, rithöfundur og bókmenntakennari. DV-mynd GVA. „ÞAÐ GREIP MIG EIN- HVER SKÖPUNARGLEÐI” „Eg hef fengist viö bækur stóran part úr ævinni. Náttúrlega hafði ég ekki skrifað skáldskap áður en Af nianna völdum kom út en ýinislegt af öðrum toga,” segir Alfrún Gunnlaugsdóttii’, skáld og bókmenntakennari, sem nýlega hlaut menningarverðlaun DV fyrir skáldsöguna Þel. Hún kom út fyrirsíðustujóL ,,Það er sjálfsagt betra aö byrja að skiifa þegar menn em ungir. Þeir ná væntanlega betii tökum á því. Þroskast kannski betur,” bætir hún við. Þú hefur ekki stefnt að því frá blautu barnsbeini að veröa skáld? „Nei.” En hver var aödragandi þess að þú fórstaðskrifa? „Eg satt að segja veit það ekki. Ég bef ekkeit reynt að hugsa um orsak- irnar. Það er ekki hægt að setja alla liluti í orsakasamhengi. En mér finnstgaman aðskapa. Maöur er lika á vissan hátt að skapa í kennslustarfinu. Það hefur kannski að einhverju leyti ýttundir.” Hvaö er langt síðan þú byrjaðir að skrifa? „Eg veit það nú ekki nákvæmlega. Eg var dálítinn tíma að skrifa fyrstu bókina, var bara að fást við það fyrir sjálfa mig. Eg hugsaði ekkeit um að gefa verkiö út meðan ég var að skrifa. Þaö greip mig bara einhver sköpunar- gleöiogég léthanaráöa.” Höfundurinn lætur lesandanum margt eftir Þú ert bókmeiuitafræðingur og fæst viö aö greina verk og fjalla um þau á vísindalegan hátt. Er það ekki ólíkt því aðsitja og skrifa skáldverk? Eða tekur þú það visindalegum tökum líka? „Nei, það geri ég ekki. Annars er ekki hægt að skipta sér niður í ólíka hluta. Þetta verkar allt saman, svona óbeint sjálfsagt, en ég held aö manneskjansem eraðfjalla um bækur þvælist ekkert fyrir þegar ég er að skrifa sjálf. Samt er ekki hægt að hólfa þetta af. Maður er bara ein persóna. Og þó að ég fjalli um bækur er ég náttúrlega fyrst og fremst lesandi.” Hafa viðhorf þín sem bókmennta- fræðings ekkert breyst við að verða skáldlíka? „Nei. Það eina sem kannski er öðru- vísi er að mér finnst nú að sumu leyti auðveldara að nálgast texta innan frá. En þar fyrir utan finnst mér skriftim- ar ekki hafa breytt neinu.” Alfrún hugsarsig stundarkom um. „Jú. Bókmenntafræðingar em oft að leita að einhverju algjöru, einhverj- um sannleikskjarna í hverju verki. Maöur gerir sér kannski betur grein fyrir því nú að hann er ekki alltaf til frá höfundarins hendi. Höfundurinn lætur lesandanum margt eftir sem honum er leyfilegt að túlka sjálf um. ” Hvemig vinnurðu? „Tja,” segir Álfrún hikandi. „Nú veit ég ekki almennilega. Eg hef enga ákveðna vinnuaðferð, held ég. Þetta fer eftir efninu og aðstæðum sem maður lagar sig kannski eftir. Það skemmtilega við skriftir er einmitt að maður getur ekki vitað fyrirfram hvernig til muni takast, hvernig sú vinna veröur, á ég við. Það er náttúr- lega aödragandi aö öllu sem maður gerir. Svo þegar fariö er að vinna úr efninu breytist margt. Eg reyni samt alltaf aö vinna eitthvað. Þó ekki sé nema hugsa um efnið, skrifa niður nokkrar setningar. En ég set mig ekki í neinar ákveönar stellingar fyrr en verkið er komiö vel á veg.” Tilraun til að búa til skipulag Legguröu niður fyrir þér efnið fyrirfram eða sprettur það upp um leið? „Þaö er svolítið misjafnt. Sumt er ekki hægt að hugsa fyrr en á blaöi. Þaö verður eiginlega ekki til fyiT en ég er komin með blaðið og blýantinn. En heildarekipulag eöa heildarmynd hef ég ekki fyrirfram. Stundum er eitt- hvaö sem er nauðsynlegt að láta gerjast áður en maöur fer að fást við það. — Eins og ég sagði áðan, það fer svolítið eftir efni og aðstæðum. Því stundum gengur þetta vel og stundum illa eins og hjá öllum. Ekki þar fyrir að þaö þarf náttúrlega mikinn tima í skriftirnar og mikla vinnu. — Eg er alltaf svolítið veik fyrir sköpunargleöinni og leyfi henni, að minnsta kosti á vissum stigum, aö ráða. Og lifi svolitið og hrærist í þeim heimisemégeraöskapa.” Svo tekur alltaf nokkra stund að kynnast fólkinu, aðstæðum og öðru. Og það þarf líka að reikna með hinu óvænta sem getur birst.” Eru verk þín alveg tilbúningur? Enginn stofn, maöur sem þú þekkir og svo framvegis sem gengur aftur í sögunni? „Nei. Náttúrlega styðst maður við eitt og annað úr raunheiminum þó svo að það sé allt umbreytt þegar þaö er komið í skáldskapinn. Hann lýtur öðr- um lögmálum en veruleikinn og er mun skipulegri líka en veruleikinn.” Alfrún hlær. Hugsar sig síðan um: „Skáldskapurinn er kannski á vissan hátt tilraun til að búa til skipulag úr því sem er óskapnaður.” Er umhverfið í Þeli aö einhverju leyti sótt til námsára þinna? „Já, að sumu leyti. En það er náttúr- lega séð líka úr f jarlægö. Ekki reynt að halda fast í eitthvert umhverfi heldur :skapa ákveöið andrúmsloft og þá út frá sjónarhóli, mest einnar persónu. Hvað hún myndi sjá eða vildi sjá. Því auðvitað sá ég þaö umhverfi með öðr- umaugum.” Heimurinn með augum karla Nú skoðaröu heiminn með augum karlmanna í Þeli. Fannst þér það ekk- ert erfitt? „Það er það kannski að sumu leyti. En ég gaf mér það nú að karlar og kon- ur horfi ekkert á heiminn meö mjög ólíkum augum þannig. Sjá hlutina kannski ekki ósvipaö. En bregöast viö á ólíkan hátt gagnvart því sama. Það var kannski þar sem ég þurfti að hugsa mig umtvisvar. Maöur hefur jú stuðning af því aö þekkja karlmenn og pilta! Þó maður sé ekki að hugsa um þaö eða geri sér grein fyrir því þá síast það inn sem maður heyrir og sér og verður hluti af eigin reynslu þannig að erfitt getur orðið að greina þarna á milli. Reynsla karlmanna er líka hluti af reynslu kvenna. Ég held að þaö sé ekki nein óbrúanleg gjá þama á milli. Enda höfum viö haft stuðning hvert af öðru í gegn um aldirnar til þess að skynja heiminn og skýra hann.” Þetta fólk sem Þel fjallar mest um er á svipuðum aldri og þú, er það ekki? „Jú.” — Og þetta er ekki sérstaklega bjart- sýn bók. Fólkinu reiðir ekkert sérstak- lega vel af. Ertu svartsýn eða er lífið barasvona? „Ég veit ekki hvort ég er að tjá þarna sýn mína á heiminn eða ein- hvem ákveðinn veruleika. Þetta eru persónur á vissu skeiði við vissar aöstæöur. Það er kannski eitthvaö sem var — og er. Án þess að taka þaö í myndina hvernig þaö ætti að vera. En þetta er ekki uppgjör við þína kynslóð? „Það koma fram klisjur og langanirogþráreinnarkynslóðar. Það er ý jað að því en ég held að ég haf i ekki ætlað að færast svo mikið í fang að leggja heila kynslóð í þetta verk,” segir Álfrán og kímir. „Og raunar ekki að afmarka þetta svo í tíma. Þó ákveð- inn tími sé gefinn í skyn. Eg var að reyna að láta verkiö hafa alxnenna skírskotun. En vissulega em þessar persónur hluti af ákveðinni kynslóð. Því er ekki að neita. Hugsanagangur ogannað.” íslenskar bókmenntir í blóma Hvenær skrifarðu? Vinnurðu i skorpum eöa reynirðu aö skrifa eitt- hvaðá hverjumdegi? „Eg skrifa náttúrlega mest á sumrin. Það er víst ekki mjög mikill tími til skrifta á vetrum. En ég reyn' þó aðeins að skrifa. Eg held að það sé mikilvægt aö skrifa alltaf eitthvað. En skorpurnar eru aöallega á sumrin.” — Hvað finnst þér um íslenskar bók- menntir núna? „Mér finnst þær standa í blóma. Það er gróska í íslenskum bókmenntum og fjölbreytni líka. Það er engin ástæða til að örvænta um framgang þeirra. Mér sýnist listalíf í landinu almennt vera fjölskráðugt.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.