Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Page 16
60 DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. Sól Saloon Laugavegi 99 Sími 22580 býður dömur og herra velkomin Opiðvirka dagafrá kl. 7.20—22.00. Laugardagafrákl. 10.00—18.00. Sunnudagafrákl. 13.00—16.00. Gufubað og góðir bekkir. Ma professionel og UWE studio-line Á dur n Hundahald — árgjald 1985- '86. Árgjald fyrir leyfi til að halda hund í Reykjavík féll í gjald- daga 1. mars sl. Eindagi gjaldsins er 1. apríl. Verði það eigi greitt fyrir þann tíma fellur leyfið úr gildi. Ath., um leið og gjaldið er greitt skal framvísa leyf- isskírteini. Gjaldið, sem er kr. 4800,- fyrir hvern hund, skal greiða hjá heilbrigðiseftirlitinu í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, Barónsstíg 47. Heilbrigðiseftirlit Reykjavikursvæðis. Getum afgreitt með stuttum fyrir vara rafmagns- og dísillyftara: Rafmagnslyftara, 1,5-4 tonna. Dísillyftara, 2.0-3Ö tonna. Ennfremur snúninga- og hliðarfærslur. Tökum lyftara upp í annan. Tökum lyftara í umboðssölu. Flytjum lyftara um Reykjavík og nágrenr.i. Líttu inn — við gerum þér tilboð. LYFTARASALAN HF., Vitastig 3, símar 26455 og 12452. Á ÍÞRÓTTAFRÉTTiR HE ÍNNAR V ERLEND FYRIRTÆKJA- HEITI Opnun leiktækjasalar við öskju- hlið hefur orðið tilefni blaðaskrifa um islenskt mál. Svipað varð þegar veitingahúsiö Broadway var opnað. Nöfn þessara staða eru umdeild. Astæöan er vitaskuld sú aö menn eru ekki sammála um þaö i hve miklum mæli erlend orð eða tökuorö eigi aö veraííslensku. En mergurinn málsins er sá að eig- endur staöanna ráða að sjálfsögöu hvað þeir kjósa að nefna þá. Ef við vildum losna við þessi erlendu orö þá þyrfti auðvitað að banna þau og ein- hver þyrfti að fá vald til að úrskurða hvað væru leyf ileg nöfn og hver ekki. Eg er ekki að mæla meö þessari leið en ef hún er ekki farin þá hlýtur barátta hreintungumanna að verða bardagi við vindmyllur. Gömul fyrirtækjaheiti Þetta er ekki ný bóla að nefna fyrirtæki erlendum nöfnum. Gamlar og grónar verslanir í Reykjavík, heita útlendum nöfnum, t.d. Liver- pool, Hamborg og Vogue. Engum dettur í hug að amast við þessum nöfnum held ég. Einu sinni var til út- geröarfyrirtæki sem hét Alliance. Engum dettur i hug að agnúast út í það lengur, sem von er. Mér er ekki kunnugt um hvort þessi nöfn hafi verið umdeild á sin- umtima. Hvaöa fyrirtæki? En hvaða fyrirtæki bera erlend heiti og hvar eru þau. Ég hef gert á þessu nokkra könn- un. Hún er f jarri því að vera nákvæm en gæti sjálfsagt gefið nokkrar vís- bendingar. 1 fyrsta lagi held ég að mér sé óhætt að fullyrða að erlend verslana- heiti séu fyrst og fremst bundin við Reykjavík og í seinni tíð stærstu kaupstaði. Verslanir úti á landi heita sem kunnugt er vanalega kaupfélög. Aðrar verslanir heita gjarnan eftir mannanöfnum. Verslun Laufeyjar er til á Patreksfirði og í Borgarnesi er Verslun Jóns Eggertssonar. Þannig mætti lengi telja. Engin matvöruverslun á landinu heitir erlendu nafni. íslensk tunga 7 Eiríkur Brynjólfsson En hvað með veitingastaði? Ég hef undir höndum skrá yfir 67 veitingastaði á Islandi. Af þeim bera þrír erlend heiti, Broadway, Holly- wood og Zorba. Aðrir staðir bera góð og gild íslensk nöfn. (Ég horfi fram hjá nöfnum sem hafa Hótel fyrir framan eða grill skeytt aftan við, sbr. Hótel Borg eða Hlíðagrill). Nokkur fyrirtæki bera erlend heiti og er þar um aö ræða vörumerki þess varnings sem fyrirtækið selur. Um þetta eru nokkur dæmi. Fataverslanir Eftir því sem ég kemst næst eru er- lend nöfn aðeins á örfáum tegundum verslana. Það eru verslanir sem eru með innfluttan varning aö mestu. Oftar en ekki er um tískuvörur aö ræða. I fyrirtækjaskrá minni, sem vel að merkja er ekki tæmandi, er eftirtald- ar upplýsingar að fá um fataverslan- ir. Barnafataverslanir eru 18 og af þeim bera 5 erlend heiti. Fataverslanir sem kallaðar eru fyrir alla fjölskylduna eru 39 og ein- ungis 5 heita útlendum nöfnum. Karlmannafataverslanir eru að- eins 13, þar af 3 með erlendum nöfn- um. Kvenfataverslanir eru hins vegar 59 og þar af eru 30 nefndar upp á út- lensku! Að lokum Ég þykist hafa sýnt fram á að er- lend fyrirtækjaheiti eru alls ekki i meirihluta á Islandi. Langflest heita íslenskum nöfnum. Og fyrirtækin meö útlensku nöfnin eru ekki ein- ungis fá heldur eru þau mismörg eft- ir tegundum fyrirtækja. Og flest virðast þau vera í verslunum fyrir konur. Ekki ætla ég að leiða getum að því hver ástæðan er. Næsthæst hlutfall fann ég reyndar i snyrtivöruverslun. Þær verslanir voru 34, þar af 11 með erlendum nöfnum. Verslunareigendur virðast halda aö erlend heiti höfði frekar til kvenna en karla. Og þá vaknar spurningin hvort þeir hafi rétt fyrir sér. Ég svara þessu ekki enda á mál- fræðin engin svör við svona spum- ingum. Þó hefur málfræðin uppgötvaö dá- litið sem ef til vill mætti hafa til hiiö- sjónar. 1 erlendum mállýskurannsóknum hefur komið í ljós að konur nota frek- ar orð sem njóta ákveðinnar virðing- ar. Sömuleiðis tileinka þær sér frek- ar nýjungar í orðaforða. Ég held, án þess að ég geti fært aö því teljandi rök, að konur taki frekar upp orö úr máli unglinga en karlar. Islenskar rannsóknir á þessu sviði eru engar og fer því best á að hafa hér amen eftir efninu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.