Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1985, Síða 26
70 DV. LAUGARDAGUR 23. MARS1985. ööru hverju er engu likara en fjöldi leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda fái sömu hugmyndina á sama tíma. Stundum er hægt að giska á ástæðuna eins og þegar Gaudhi Attenboroughs hratt aí stað umfangsmikilli Indlandámyndagerð á Vesturlöndum. t öðrum tilfellum verður ekki komið auga á upphafs- manninn svo óyggjandi sé. Þannig er því farið um nokkrar nýjar kvik- myndir sem nú eru fram komnar og fjaiia um baráttu smábænda í Bandaríkjunum og hetjuskap bænda- kvenna þegar eiginmennirnir gefast upp fyrir lánardrottnum, vondu ár- ferði og lágu markaðsverði land- búnaðarafurða. Þrjár þessara nýju mynda bera nöfnin Places Of The Heart, Country og The River. Hetjurnar í myndunum eru svo ieiknar af ekki ómerkari leikkonum en Sally Field í Places of the Heart, Jessicu Lange í Country og Sissy Spacek í The River. Eins og ævintýrapersónur Upphaf þessarar tegundar kvik- mynda má ef til vill rekja til vídeó- myndar Jane Fonda, The Dollmaker sem segir frá bændafólki sem hrekst af jörö sinni og til stórborgarinnar þar sem verksmiðjuvinna biður bóndans en eiginkonan reynir aö halda sönsum og tengslum við uppruna sinn með því að tálga svolitlar dúkkur úr tré. I nýju mynd- unum þrem halda bændur hins vegar kyrni fyrú- í sveitinni. Sally Field er rauðhærö, býr í Texas, missir mann- inn og reynir fyrir sér við baömullar- rækt, en jarðyrkjan virðist ekki til þess fallin að gefa af sér arö. Sissy Spacek stundar maísrækt en stór- kapítalistamir vilja sökkva jöröinni á bólakaf og gera uppistööulón vatnsaflsvirkjunar í héraðinu. I myndinni Country er það svo Jessica Lange sem berst við náttúru- , öflin og markaðslögmálin. Hún fer með hlutverk Jewell Ivy en sambýlismaður I-ange, Sam Shepard, leikur bóndann Gilbert Ivy. I upphafi er engu likara en þau hafi KVIKMYNDIR - POPP - KVI </> </> Við höidum okkur við grænmetis- æturnar í rokkinu. Fyrir hálfum mánuði kynnti Heigarpoppið How- ard „næs gæ” Joncs sem hámar í sig grænmeti og fussar við keti. Hljóm- svcitin Smiths verður tii umfjöllunar í dag og fyrirliði hennar, Morrissey, er aunáluö jógúrt- og grænmetisæta sem býður við kjötmeti eins og reyndar er rækilega undirstrikað í titli nýju breiðskífu Smiths: Meat is Murder. Kjötið baular ekki Moirissey var ekki alls fyiir löngu inntur eftir því hvenær hann hefði síðast sett upp í sig kjötbita. Hann svaraði því til að sér væri það löngu úr minni horfið en hins vegar hefði ( það verið flesk og. . . sér hefði þótt það vont. Þó segir hann aö bragðið hafi ekki orðið þess valdandi að hann hefði ákveðið að bragða ekki kjöt framar heldur sú hræöilega meðferð sem skepnurnar fái. „Eg hélt ég vissi svona óljóst að dýrum væri slátrað, en ég vissi ekki hvernig né til hvers. Eg held að almennt hugsi fólk , ekki um kjöt sem dýr. Þaö lítur á þaö eins og kartöflur eða eitthvað í þá veruna — það er ekkert sem minnir á FORSÆLA MORRISEY: kýrhöfuð og kjötið baular ekki, svo fólk hugsar ekki um það sem dýr,” segir MoiTissey. Eins og plötutitillinn sem fyrr er nefndur og þetta viðtalsbrot ber með sér lætur Morrissey einskis ófreistað að halda á Iofti fordæmingu á kjötáti og þeir eru nú orðnir ansi margir poppararnir sem neita að láta kjöt inn fyrir sínar varir. Auk Morrissey og Howard Jones má nefna Anne Lennox úr Eurythmics, Robert Smith úr Cure, Gary Glitter, Paul McCartney, Kate Bush, Michael Jackson og Beki Bondage. í menningardeildinni Hljómsveitin The Smiths er þó annað og meira en grænmetisætur. Lesendur minnast þess kannski að í fyrra um þetta leyti árs haföi Smiths gefið út sína fyrstu breiöskífu og hlotið einróma lof gagnrýnenda. Meira að segja áður en sú plata kom út höfðu glöggir rokkunnendur sett gæðastimpil á Smiths og lesendur New Musical Express höfðu kosið hljómsveitina „bestu nýju hljóm- sveitina”. Smiths hefur gjarnan ver- ið skipað á bekk með hljómsveitum eins og U2 og Echo & The Bunnyman og tilheyrir þar með menningardeild breska rokksins. Margir munu þó telja að Smiths eigi ekki ýkja margt sameiginlegt með fyrrnefndum hljómsveitum — nema auövitað gæð- in. Tveir pólar Það er býsna athyglisvert hvernig hljómsveit eins og Smiths hefur náð fjöldavinsældum í Bretlandi svo mjög sem tónlist hennar gengur á skjön við allar tískubylgjur rokksins þar í landi. Tónlistin þeirra byggir á tveimur andstæðum; annars vegar Kjöt er morð!! einföldum melódískum lögum og hins vegar sérkennilegum textum sem á stundum virðast ekki eiga nokkra samleið með tónlistinni. Pólarnir eru sumsé tveir og heita Johnny Marr (f. 31. október 1963) — hann semur öll lögin — og Stephen Morrissey (f. 22. maí 1959), sem er ljóðskáldið og söngvarinn. Reyndar mætti ætla af myndum og umfjöll- un fjölmiðla í Bretlandi um Smiths aö Morrissey væri einn í hljómsveit- inni, hann er að sönnu málpípa henn- ar og hugmyndafræðingur en menn skyldu varast að gera lítiö úr þætti Johnny Marr, gítarleikarans og tón- skáldsins. Svo eru líka tveir ónefnd- ir, bassaleikarinn Andy Rouke og trymbillinn Mike Joyce. Einangraði sjálfan sig Morrissey er ákaflega sérkennileg poppstjama eins og sjá má á mynd- stokkið beint út úr einhverri ástar- sögunni; þau kynntust í skóla og giftust ung. Jewell erfði landið og Gil sá um búreksturinn. Saman eiga þau þrjú dálagleg börn, Carlisle, pilt sem er aö komast á unglingsaldur, Mar- lene, sem er dálítið yngri og skilur ekki aUtaf hvað fuUorðna fólkið er að hugsa, og loks ungbamið sem er heilmikil persóna þó ólOílegt sé að nokkuð af því sem leikarinn ungi aöhefst haf i staðið í handritinu. Styrkur samstöðunnar Country tekur á vandamálum nú- tímabænda í Bandaríkjunum og ólíkt mörgum eldri myndum, sem segja frá svipuðum atburðum, em bændur ekki eingöngu á jöröum sínum af því aö landið á svo sterk ítök í þeim; ástin á jörðinni er ekki það afl sem knýr frásögnina áfram. Country fjallar öðm fremur um samstöðu, ekki aðeins innan fjölskyldunnar heldur einnig í bændasamfélaginu. Jewell er það djásn sem nafnið bendir til, hún bugast ekki þótt lánar- drottnar reyni að reka hana og ná- KVIKMYNDIR - POPP - KVIKMY um, fölur og gugginn, hávaxinn með dökkt strýiö ógreitt á höfðinu, í frá- flakandi skyrtu og gallabuxum og g jaman með blómaknippi í hendinni. En það eru þó fremur textarnir hansi en útlitið sem athyglina vekja; hann þykir fádæma berorður og um leið einlægur í textum sínum og játar óhikaö ást til kynbræðra sinna. Á unglingsárunum, meðan jafnaldrar hans slettu úr klaufunum og lifðu lif- inu eins og þaö er stundum kallað, geröist Morrissey hálfgerður munk- ur án þess kristindómur kæmi þar nokkuð við sögu; hann setti sjálfan sig í eins konar einangrun frá um- heiminum, las fimin öll af bókum og hlustaði á nokkrar smáskífur frá Bítlatímanum. Þama komst hann í kynni við einstæðingsskap sem sum- part má segja að sé orðinn vöru-. merki Smiths í gegnum texta Morrisseys. Hann erallajafna svart- sýnn, bölmóðugur í textanum og bregður upp myndum þar sem gjam- an er málaö dökkum litum. Upphafið Upphaf Smiths má rekja aftur til ársins 1977. Þá var Marr aöeins fjórtán ára og hafði í gegnum eldri félaga sína í rokkbransanum spumir af afbragðs textasmið að nafni Morrissey. Þeir hittust reyndar um þetta leyti en svo liðu fjögur ár án þess nokkuð markvert gerðist. Svo hittust þeir Marr og Morrissey aftur og höfðu engin umsvif: stofnuðu hljómsveitina Smiths og tróöu fyrst upp síðla árs 1982 í Manchester. Þegar vakti hressileg og hrá rokktónlist þeirra og magnaðir textar mikla athygli og umboðsmenn hljómplötufyrirtækja fóru aö gera hosur sínar grænar fyrir sveitinni. En stóm fyrirtækin hrepptu ekki hljómsveitina heldur risinn í smáfyrirtækjabransanum, RoughTrade. Hand in Glove hét fyrsta lagiö frá The Smiths, lag sem er af mörgum enn þann dag í dag taliö besta lag hljómsveitarinnar. Morrissey hefur sjálfur þetta lag í miklum hávegum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.