Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1985, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1985, Blaðsíða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 9. APRlL 1985. HINEINA SANNA FRANSKA RIVIERA OG FJÖLSKYLDUPARADÍSIN CAP D'AGDE í EINNI OG SÖMU FERÐINNI FYRIR KR. 19.950.- Á MANN* Undanfarnar vikur höfum við fengið fjölda fyrirspurna vegna Úrvalsferðanna til Cap d'Agde og Rivierunnar í sumar. Það eru í sjálfu sér litlar fréttir því við vissum að íslenskir ferðamenn hefðu áhuga á ódýrum og góðum ferðum á nýjar slóðir við Miðjarðarhafið. Það sem kom okkur hins vegar á óvart var hvað fólk átti erfitt með að gera upp á milli áfangastaða. Margir vildu helst heimsækja báða staðina en ekki bara annan. Þess vegna bjóðum við nýjan mögu- leika í Frakklandsferðum 14. júní og 3. júlí: TVÆR í EINNI - 3ja vikna ævintýraferð sem skiptist til helminga á milli Cap d'Agde og Rivierunnar! HVOR ÖÐRUM BETRI Ferðin hefst á öðrum staðnum - þú hefur nokkuð frjálst valá hvorum. Eftir 10 daga dvöl í praktuglegum lysti- semdum við fyrsta flokks aðstæður liggur leiðin eftir Miðjarðarhafsströnd- FRAKKLAND /> \ Capd Agde Rivieran * SPANN inni á hinn áfangastaðinn sem býður jafn góðan ef ekki betri aðbúnað og dægrastyttingu. FARARSTJÓRARNIR Á hvorum staðnum eru til reiðu 2 Úrvalsfararstjórar. í Cap d'Agde eru það þau Guðrún Eyjólfsdóttir og Helgi Þórsson og á Rivierunni þær Sigur- björg Eðvaldsdóttir og Bryndís ívarsdóttir. Öll hafa þau góða þekkingu á stöðunum og tala mál innfæddra af mikilli snilld enda hafa þau dvalið á þessum slóðum við nám og störf árum saman. En þið þurfið samt ekkertað hafa fararstjóra við hvert fótmál því íbúarnir tala flestir eða skilja ensku - sérstaklega þeir sem starfa beint við ferðmannaiðnaðinn. NÁMSKEIÐ FYRIR ÞÁ SEM BÓKA FYRIR 1. MAÍ Þar að auki ætlum við hjá Úrvali að bjóða þeim sem bóka sig í ferðir til Cap d'Agde og Rivierunnar fyrir 1. maí n.k. upp á frönskunámskeið í mat- seðla- og flöskumiðalestri. Þannig munið þið geta, milliliðalaust, komist í beintsamband við þann hluta franskrar menningarsem hvað mestarsögur fara af. * Miðað við hjón með 3 börn. FHtÐASKRIFSTOfM ÚRVAL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.