Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Síða 3
DV. FÖSTUDAGUR 21. JUN! 1985.
3
Tugur erlendra
sjónvarpsstöðva
næst á íslandi
Bylting í sjónvarpsmálum Islend-
inga er framundan. I versluninni
Hljómbæ við Hverfisgötu má sjá for-
smekkinn. Loftnet á þakinu gerir
Hljómbæjarmönnum kleift að ná niu
erlendum sjónvarpsstöðvum í gegnum
gervihnöttinn EGS-1, sem er eign
Efnahagsbandalags Evrópu.
I október i haust verður hægt að
kaupa i verslunum hérlendis búnað til
að taka á móti gervihnattasendingum.
Taliö er að ódýrasti búnaðurinn, sem
er ætlaður einstaklingum, muni kosta
innan viö 200 þúsund krónur.
Þrátt fyrir einkarétt Ríkisútvarps-
ins hefur ekkert getað hindrað Islend-
inga i að hlusta á erlendar útvarps-
stöövar i áratugi. Fátt virðist nú geta
komiö í veg fyrir að innan fárra mán-
aða stilli Islendingar s jónvörp sín inn á
erlendar s jónvarpsstöðvar.
Það getum við þakkaö gervihnettin-
um ECS-1 sem einnig gengur undir
nafninu Eutelsat. Gervihnötturinn er i
35 þúsund kílómetra hæð yfir miðri
Afríku og sendir sjónvarpsgeislann
norður til Evrópu. Island er í útjaðri
geislans.
Skýrmyndí
Reykjavík
Hljómbæjarmenn ná mjög skýrri
mynd frá gervihnettinum með loftneti
sem er þrír metrar í þvermál. Þeir
ætla næst að gera tilraun með 1,8
metra loftnet sem er mun ódýrara.
Gervihnattageislinn er sterkastur á
suðausturhorni landsins en veikari
norðvestanlands. Vestfirðingar ættu
þó ekki aö eiga í erfiðleikum með að ná
sendingu hnattarins, þyrftu hugsan-
lega aöeins stærri loftnet en Austfirð-
ingar.
Kostnaöur við að ná sendingunni frá
ECS-gervihnettinum veröur á bilinu
200 þúsund til 500 þúsund krónur með
tollum hérlendis, eftir því hversu mik-
inn búnað menn þurfa.
Tíu aðilar hérlendis hafa þegar pant-
að móttökubúnað. Meðal þeirra eru
Hótel Holt og kapalsjónvarpsstöðin í
Oiafsvík.
Telja má ólíklegt að venjuleg islensk
heimili muni almennt kaupa sér eigin
móttökubúnað. Líklegra er að ná-
grannar sameinist um slik kaup. Sveit-
arfélög, kapalkerfi og hótel verða trú-
lega með f yrstu kaupendum.
Lesandinn spyr sjálfsagt margra
spuminga: Eru einhver lög sem banna
þetta? Þarf að borga afnotagjald?
Lögin á reiki
I Evrópu eru viða ströng lög um mót-
töku gervihnattasendinga. I Sviþjóð til
dæmis eru þó engin Iög sem banna
slíka móttöku. Fleiri Evrópuþjóðir
ætla að feta í fótspor Svia og losa um
hömlur af þessu tagi. I Svíþjóð má þó
ekki leggja kapalkerfi út frá móttöku-
skermi.
Nýju útvarpslögin segja ekkert um
móttöku á s jónvarpsefni utan úr geiml
Frumvarp að nýjum f jarskiptalögum,
sem nú er verið að semja í ráðuneyt-
um, mun væntanlega taka á þessu
máli. Það biður þvi Alþingis að móta
stefnuna.
Stjómvöld hafa enga athugasemd
gert við móttökuskerm Hljómbæjar.
Póstur og simi kvartaði á sínum tima
undan skermi sovéska sendiráðsins á
þeim forsendum að hann gæti truflaö
önnur fjarskipti. Hljómbæjarmenn
segja sinn skerm hins vegar fjarri öðr-
um tíðnum. Auk þess er hann einvörð-
ungu til móttöku geisla.
Ekkert
afnotagjald
Síðari spumingin var um afnota-
gjald. Því er til að svara að af niu sjón-
varpsrásum i ECS-gervihnettinum em
sjö án afnotagjalds. Þær em reknar á
auglýsingatekjum.
Hinar tvær stöðvamar em tmflaðar.
Til að losna við truflanimar verða
menn að kaupa sér sérstakt tæki og
greiða fyrir það afnotagjald. Báðar
þessar stöðvar hafa hins vegar ákveðið
að hætta þessu truflunarfyrirkomulagi
innan eins árs. Eftir það geta menn séð
allar rásimar án þess að greiöa afnota-
gjald en verða í staðinn að þoia það að
auglýsingum sé skotið af og til inn í
dagskrána.
Stöðvamar i ECS-gervihnettinum
eru sem stendur níu talsins en verða
orðnar ellefu síðar á árinu. Þær em:
1. Sky Channel. Hún er bresk og
sendir út kvikmyndir, framhalds-
myndaflokka og tónlistarþætti tiu
tima á dag.
2. Music Box. Hún sendir eingöngu út
popptónlistarþætti i átján tíma á
sólarhring.
3. SAT-1. V-þýsk stöð sem sendir út
afþreyingar- og skemmtiefni á
þýsku í ellefu tima á dag.
4. 3-SAT. V-þýsk stöð sem sendir út
léttmeti i sex stundir á dag.
Loftnet af þessari stœrfl ætti að geta dugað á Íslandi til að ná tug
erlendra sjónvarpsstöðva. Og það kostar minna en bílverfl.
5. TV-5. Frönsk stöð sem sendir út af-
þreyingar- og menningardagskrá í
þrjár stundir á dag.
6. EBNET. Norsk stöð sem sendir út
trúarlegt efni á ýmsum tungumál-
umiþrjátimaádag.
7. FllmNet. Sænsk stöð sem sendir út
kvikmyndir með sænskum texta i
átta stundir á dag.
8. Olympus. Samevrópsk stöö á
mörgum tungumálum með
skemmti-, frétta- og öðru menning-
arefni í sex stundir á dag.
9. RAI. Rás eitt í ítalska ríkissjón-
varpinu í tólf stundir á dag.
10. Paysat. Svissnesk stöð á þýsku og
frönsku með kvikmyndum í fimm
stundir á dag.
11. RTL-Plus. Lúxemborgísk stöð,
með léttmeti á ensku, þýsku og
frönsku í sjö stundir á dag.
Eins og sjá má er úr mörgu að velja.
Og það eru fleiri gervihnettir úti í
geimnum, til dæmis tveir Intelsat-
hnettir sem ættu að nást á Islandi. Til
þess þarf þó mun dýrari tæknibúnað en
þarf til aö ná ECS-hnettinum.
Aður en menn kaupa sér loftnet og
beina því að ECS-hnettinum er ráð-
legra að sækja um formlegt leyfi til
sjónvarpsstöðvanna. Hljómbær býðst
til að hafa miiligöngu um það.
Að lokum skal þess getið að í Svíþjóð
eru um sjö þúsund einstaklingar búnir
að kaupa sér búnaö til móttöku gervi-
hnattasendinga. I Bandaríkjunum er
ein milljón fjölskyldna komin með
móttökuskerm, ýmist á þakið hjá sér
eðaútiígarði. -KMU.
Landlæknir varar við tóbaki:
ÞÆR MERKTU
ERU KOMNAR
—sex mismunandi merkingar á sígarettupökkunum
„Árlega deyja hundruð Islendinga
af völdum reykinga. Landlæknir.”
Þessi vamaðarorð mátti lesa á
sígarettupökkum Gold Coast sem sett-
ir vom i verslanir i gær.
Þetta voru fyrstu pakkamir með
varúöarorðum landlæknis en sem
kunnugt er kváðu lögin um reykinga-
varnir, sem gengu í gildi um áramót, á
um að allir sígarettupakkar yrðu að
vera merktir slíkum varúðarorðum.
Alls eru um 6 mismunandi slagorö og
merkingar á pökkunum og í 6 mismun-
andi litum. Sem dæmi um önnur
varúöarorðeru:
„Hlifum bömum við tóbaksreyk.”
„Reykingar á meðgöngutíma ógna
heilbrigði móður og barns.” „Ef þú
hættir aö reykja bætir þú heilsu þina og
lífshorfur.”
Lögin kveða á um það aö frá 1. júli
verði allt tóbak sem flutt er inn að vera
merkt varúðarorðum landlæknis.
Þannig verða umbúðir neftóbaks,
munntóbakaks (skro) og vindla.
Mjög heitar umræður urðu um
varúðarorð landlæknis á umbúðum
tóbaks. Þannig sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra að hann
sæi ekki ástæðu til aö ATVR værí aö
selja þjóðinni tóbak fyrst það væri svo
skaölegt heilsu manna.
I lokin má geta þess að Reynolds
fyrírtækið bandaríska áætlar aö
kostnaður þess vegna merkinganna
verði um 250 þúsund dollarar á ári eða
rúmlega 10 milljóniríslenskar.
-JGH.
Fyrstu sigarettupakkarnir merktir
varúðarorðum landlæknis komu i
verslanir i gær. „Árlega deyja
hundruð Íslendinga af völdum
reykinga," stendur á honum þess-
um.
DV-myndir: Bjarnleifur.