Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Side 4
4 DV. FÖSTUDAGUR 21. JUNl 1985. Krafa ríkissaksóknara í Skaf tamálinu í Hæstarétti: LÖGREGLUMENNIRNIR FÁI ÞYNGSTU REFSINGU „Ríkissaksóknara er skylt aö áfrýja þessum dómi til Hæstaréttar. Þaö er sérstök ástæöa til aö áfrýja ef maöur er ranglega sýknaður,” sagöi Þóröur Bjömsson ríkissaksóknari i upphafi málflutnings i svokölluðu Skaftamáli sem hófst í Hæstarétti í gær. Krefst ríkissaksóknari aö lögreglumennirnir sem handtóku Skafta Jónsson fái þyngstu refsingu fyrir ólöglega hand- töku og lfkamsmeiöingar. Þeir voru sýknaöir í Sakadómi Reykjavíkur á síöasta ári. Máisatvik voru þau að Skafti Jónsson blaöamaöur var að skemmta sér ásamt eiginkonu og vinum í Þjóðleikhúskjallaranum þann 27. nóvember 1983. Fundust ekki yfir- hafnir sem hann var að sækja í fata- henginu. Fékk Skafti að fara inn fyrir boröiö og leita. Kom dyravöröur aövifandi og ber Skafti aö hann hafi gripið í öxl sér og spurt dónalega hvað hann væri aö gera. Dyravöröurinn segir hins vegar aö Skafti hafi stokkiö fram fyrir borðiö og ráðist á sig. Segir hann Skafta hafa veriö æstan og meö ólæti. Hringdi dyravöröurinn á lög- regluna og læsti húsinu til að hindra aö Skafti kæmist út. Vitni sem voru við fatahengiö þegar þetta gerðist segja að Skafti hafi komið vel fram og ekki hafi séð á honum áfengi. Á leið heim Vitni í fatahenginu segja einnig aö þegar lögreglumennina hafi borið aö hafi þeir veriö hranalegir við Skafta og ekki útskýrt fyrir honum hvers vegna hann ætti aö koma meö þeim. Var Skafti á leiö heim ásamt konu sinni og vinkonu þeirra hjóna þegar lögregluna bar aö. Neitaði Skafti að fara á lög- reglustöðina og var færður í handjám þegar hann veitti mótspyrnu. I vitnisburði eins lögreglumannana kemur fram að þeir hafi ekki vitaö hvert var tilefni upphaflegra afskipta af Skafta. Hafi þeir ekki ákveðið aö handtaka hann fyrr en þeir komu í Kjallarann. Ekki hafi legið ljóst fyrir tilebii handtökunnar fyrr en komiö var á lögreglustöðina. Skafti segir lögreglumennina hafa hent sér með hendur í jámum inn í lögreglubílinn sem stóö fyrir utan. Hafi hann orðið öskureiður og mótmælt þessari meöferö á sér. Einn lögreglu- Málf lutningi haldið áf ram í dag mannanna hélt Skafta föstum aftan i bílnum með því að styöja hnefanum í bakið á honum. Segir Skafti aö lögreglumaöurinn hafi ítrekaö þrifið í hárið á sér og keyrt höfuðiö niöur f gólf. Fékk Skafti blóðnasir og myndaöist blóöpollur á gólfi bif- reiðarinnar. Kona Skafta sem fór meö í lögreglubílnum ásamt vinkonu þeirra staðfestir þetta. Þórður Bjömsson ríkissaksóknari sagði i gær aö „þaö hafi veriö gæfa þessara kvenna aö mæla ekki orð frá munni í lög- reglubílnum. Annars hefðu þær einnig getaö átt það á hættu aö verða hand- samaöar.” Lögreglumaðurinn segir aö erfitt hafi verið aö koma Skafta inn í bílinn þvi hann hafi veitt alla mögulega mótspymu. Neitar hann aö hafá meitt Skafta viljandi i bílnum og segist hafa haldiö í aftanveröan jakka- kraga Skafta og haldiö honum föstum með því aö styöja hnefanum í bak hans en aldrei rifiö í hárið á honum. Segir hann aö þaö hafi verið nauösynlegt fyrir lögregluna að beita nokkru haröræöi, öömvisi hafi ekki veriö hægt aö vinna verkiö. Um roða og marbletti sem komu fram á hársveröi Skafta segir lögreglumaöurinn að þaö hafi hvarflaö aö honum aö Skafti hafi veitt sér þá áverica sjálfur. Salemispappír á lögreglustöðinni Þegar komiö var á lögreglustööina viö Hverfisgötu vildi Skafti fara út úr bílnum af sjálfsdáöum. Segir Skafti aö í stað þess hafi lögreglumennirnir dregið hann á fótunum út úr bifreiðinni. Hafi bringa hans og andlit dregist eftir bílgólfinu. Rikissak- sóknari sagði i Hæstarétti i gær aö aöstoðarvarðstjórinn sem tók á móti Skafta alblóðugum hafi ekki talið það forsvaranlegt aö færa Skafta á slysa- varöstofuna vegna þess hvernig Skafti heföi hagað sér við komuna á lög- reglustöðina. Hafi hann i staöinn gefiö fyrirmæli um að sækja saiemispappir til aö þurrka blóðið framan úr Skafta. „Eg hef aldrei heyrt þess getið aö salernispappír væri notaöur í þessu skyni á lögreglustööinni,” sagði ríkissaksóknari í Hæstarétti i gær. Skafti var látinn laus um nóttina og fór hann næsta morgun á Slysa- varðstofuna og lét gera aö meiðslum sínum. I ljós kom m.a. að hann var nefbrotinn. Vitni segja að engir áverkar hafi veriö sjáanlegir á andliti Skafta er hann fór með lögreglunni. Lögreglumennirair neita þvi aö hafa viljandi veitt Skafta áverka af neinu tagi. Málflutningi verður haldiö áfram í dag og þá taka verj endur til máls. -EH. Þórður Björnsson rikissaksóknari flytur mál sitt fyrir Hæstarétti i gær. Innfellda myndin er af Skafta Jónssyni og má sjá andlitsáverkana sem hann hlaut þetta kvöld. DV-mynd GVA BJÓRINN SKIPTIR MNG- HEIMI í MARGA FLOKKA Sagan endalausa nefndum viö bjórsöguna hér í þessu blaði í mars sl. Og víst er eftir síöustu atkvæöa- greiöslu í neöri deild í fyrrinótt aö bjórsagan heldur áfram á Islandi. Bjórinn er sem sagt aldeilis ekki úr sögunni þrátt fyrir síðustu svæfingu. Stefán Benediktsson, þing- maöur Bandalags jafnaöarmanna, tilkynnti i apríl sl. aö hann hefði nýtt frumvarp tU laga i pokahorninu færi svo að bjórfrumvarpið yrði fellt í þinginu nú. Sú hefur orðiö raunin og Stefán hefur lagt frumvarpið fram. Þar er algjört bann viö bjórliki boðaö svo og innflutningur á bjór í landið með farmönnum og ferðamönnum. En um 800 þúsund lítrar af bjór voru fluttir löglega inn i landið á síöasta ári. Bjórmáliö hefur skipt þing- mönnum i fylkingar. Afstaða bindindismanna er hrein og klár, enginn fer i grafgötur meö þaö aö þeir eru á móti bjórnum. Svo er af- staöa þeirra sem í hjarta sínu eru sammála bjór en greiða honum ekki braut i gegnum þingiö. Afstaöa þeirra sem vilja visa málinu til þjóðarinnar vegna þess að þeir telja stööu máls- ins vera þess eðlis. Og svo er ein fylkingin sem vildi vísa málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu en styöja efnislega bjórfrumvarpið. I þeim síöasta hópi eru þeir Ragnar Amalds og Eiður Guðnason sem báöir höföu lýst yfir efnislegum stuðningi viö frumvarpið í efri deild. En þeir stóðu, ásamt tveimur öðrum þing- mönnum, aö tillögunni um þjóðarat- kvæöagreiöslumar sem efri deild samþykkti 11. júnl sí. Til að halda lífi í frumvarpinu var þjóðaratkvæðagreiðsla eini mögu- leikinn sem eftir var þegar frum- varpið kom til kasta neðri deildar. En afgreiðslu efri deildar var hafnaö. Tillögu Jóns Baldvins um þjóðaratkvæðagreiðslu var líka hafnaö — sem var í anda fyrri niður- stöðu um þjóöaratkvæðagreiöslu í neöri deild. Tillaga Jóns Baldvins um þjóðar- atkvæðagreiöslu fyrir 15. september var kolfelld, 10 meö og 22 á móti. 3 greiddu ekki atkvæöi og 5 voru fjarverandi. Eftir tveimur þingmönnum var haft hér í DV í gær aö flutningsmenn bjórfrumvarpsins heföu sjálfir svæft frumvarpið af því aö þeir felldu tillögur hver annars. Auk tillögu Jóns Baldvins var tillaga frá Ellert B. Schram og Halldóri Blöndal einnig felld. Sú var um frumvarpiö í haustútgáfunni. Niðurstöðumar í atkvæöa- greiðslunum þremur sem fóm fram í neðri deild í fyrrakvöld gefa nokkrar vísbendingar. Líklegast hefði tillaga þeirra Ellerts og Halldórs veriö samþykkt ef þing- íslenskur bjór, sem aðeins ferðamenn á leið heim frá út- löndum geta keypt, auk flug- og sjómanna. sumir sem nú sitja á þingi eru á önd- veröri skoðun viö aöalmenn. Fjórir stuöningsmenn bjórsins sátu hjá viö þá atkvæðagreiöslu. En heföi sú oröiö niðurstaðan hefði efri deild aftur verið á annarri skoöun og sjálf- sagt haldið viö sinn keip meö þjóöar- atkvæöagreiösluna. Þá heföi komið til kasta sameinaös þings, ein umræöa. Og máliö borið þar upp til atkvæöagreiðslu og þurft 2/3 hluta atkvæða til aö veröa aö lögum. Sam- kvæmt okkar niðurstööum og spám heföu 33 þingmenn af 60 í sameinuðu þingi samþykkt „haustbúning” bjór- frumvarpsins og þvi heföi þaö fallið þar. Þjóöaratkvæðagreiösla um deilu- máliö mikla, bjórinn, veit enginn hvemig hefði fariö. En samkvæmt nýlegri skoöanakönnun DV vilja um 60% þjóöarinnar bjórinn. Þvi heldur saganáfram. -ÞG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.