Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1985, Qupperneq 28
40
DV. FÖSTUDAGUR 21. JUNI1985.
Andlát
Ragnar Stefánsson fulltrúi lést 16. júni
sl. Hann var fæddur 19. febrúar 1918,
soniir hjónanna Stefáns Jónssonar og
Eyvarar Tímótheusdóttur. Ragnar
giftist Sigríöi Ernu Ástþórsdóttur, en
hún lést árið 1979. Þau hjónin eign-
uðust fjögur börn. Frá árinu 1950 hefur
Ragnar starfað hjá Sölusambandi
íslenskra fiskframleiðenda. Otför hans
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl.
13.30.
Ólafur Magnús Vilhjálmsson lést 16.
júní sl. Hann fæddist á Akranesi 29.
október 1926, sonur hjónanna Vil-
hjálms Benediktssonar og Salvarar
Guðmundsdóttur. Olafur lauk námi í
húsasmíði og starfaði síðustu ára-
tugina við Sementsverksmiðju
ríkisins. Eftirlifandi eiginkona hans er
Þóra Þórðardóttir. Þeim hjónum varð
tveggja dætra auðiö. Otför Olafs
verður gerð f rá Akraneskirkju í dag kl.
14.
Blrna Björnsdóttir lést 15. júni sl. Hún
fæddist á Akureyri 2. febrúar 1936,
dóttir hjónanna Sigríðar Guðmunds-
Ferðaáfangar mega ekki vera
of langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin.
Eftir5til lOmínútnastanságóöum
stað er lundin létt. Minnumst
þess að reykingar í bílnum geta
m.a. orsakaö bílveiki.
UMFERÐAR
Ð_______
I gærkvöldi
í gærkvöldi
Mikill gestagangur
Það var heldur betur gestagangur
á rás 1 og 2 í gærkvöldi, bæði i beinni
og óbeinni útsendingu. Á rás 2
spjöiluöu þær Ragnheiöur Davíðs-
dóttir og Andrea Jónsdóttir báðar við
tvo karlmenn hvor í sínum þættinum
og er ekkert sérstakt um þau viðtöl
aö segja.bara svona la, la. I gömlu
gufunni heyrði ég Magnús Einarsson
rabba viö Eggert Þorleifsson,
leikara, söngvara, klarinettleikara
o.fl. Magnús reyndi að lífga aðeins
upp á þáttinn með því að tala við tvo
menn sem hafa starfað með Eggert.
Þaö kom bara bærilega út,
þátturinn heföi mátt vera lengri
vegna þess að mér fannst oft eins og
Eggert hefði ekki alveg tokið sér af
þegar Magnús vildi drífa sig áfram
meðviötaUð.
Fréttir um tíuleytið á rás 1 fóru
ekki framhjá mér, samviskusömum
hlustanda í gærkvöldi. Ýmislegt var
svo sem í fréttum og í tokin komu
íþróttafréttir.
Þar heyrðist mér ekki betur en
þulan segði „Sæbjöm Guðmundsson
lagði stööuna fyrir KR” í karla-
boltanum. Þaö sama endurtók sig
svo í frásögn af kvennaknattspym-
unni þegar sagt var „Asta María
Reynisdóttir lagði stöðuna fyrir
Breiðablik.” Þetta hlýtur að hafa átt
að vera í lagi, nema íþróttafrétta-
menn Ríkisútvarpsins hafi tekið að
sér aö auka fjölbreytnina i íþrótta-
málinu. Ein smáviUa kannski, og ég
nöldra, já, svona getur maður verið
smámunasamur.
Fyrst ég nöldra út af skrítnu orða-
vali þá langar mig að nefna hér
skondna þýðingu í sjónvarpinu um
daginn í eldgömlum vestra. Þar var
sagt á ensku „indian mad” — þýtt
var índíana reið. Skondin þýðing og
þráöbein, en ég er ekki indíana reið
út af henni.
Sigrún Jónsdóttir.
dóttur og Björns Þóröarsonar. Birna
útskrifaöist frá handavinnudeild
Kennaraskólans. EftirUfandi eigin-
maður hennar er Heimir Hannesson.
Þeim hjónunum varð þriggja bama
auðiö. Otför Birnu veröur gerö frá Bú-
staðakirkjuídagkl. 15.
SigurpáU Steinþórsson frá Vík i
Héðinsfirði, Framnesvegi 54 Reykja-
vfk, andaðist miövikudaginn 19. júni.
Anna Grönfeldt, Borgarnesi, verður
jarðsungin frá Borgameskirkju laug-
ardaginn22. júnikl. 13.30.
Ólöf Guðmundsdóttlr, Austurvegi 8
Selfossi, er andaðist 12. júní, verður
jarösungin frá Selfosskirkju laugar-
daginn 22. júni kl. 13.30.
Tilkynningar
Ráðstefna kvennalistans
á Vesturlandi
Kvennalistinn á Vesturlandi gengst fyrir
ráöstefnu um málefni kvenna dagana 22. og
23. júni að Varmalandi í Borgarfirði. Rætt
verður um stöðu kvenna í sjávarútvegi og
landbúnaði á iaugardag. Skólamál í dreifbýli
5g hugmyndafræði kvennalistans verða tekin
til umfjöiiunar á sunnudag. Meðal þátttak-
enda verða þingkonur og brautryðjendur
kvennalistans ásamt konum sem eru starf-
andi í sjávarútvegi og landbúnaöi. Einnig
munu foreldrar segja frá skólum í dreifbýli og
tala þar af eigin reynslu og barna sinna. Ráð-
stefnan hefst kl. 13 á laugardag. öllum er
heimilt að sitja ráðstefnuna að hluta eða öllu
leyti. Boðiö verður upp á gistiaðstöðu, fæði og
bamagæslu á staðnum. Nánari uppiýsingar í
sima 93-4950.
IMorrænt kristilegt
stúdentamót á íslandi
Norrænt kristilegt stúdentamót verður haldið
í Reykjavík dagana 5. til 11. ágúst í sumar. Að
því standa sameiginiega kristileg stúdenta-
og skólafélög á Noröurlöndunum og sér
Kristilega skólahreyfingin á Islandi um
skipulagningu mótsins.
Aðalefni mótsins er: Kristur og vandi okkar.
Verður fjallað um ýmsan vanda sem menn
eiga við að et ja í daglegu lífi og afstöðu kristn-
innar til hans. Á dagskrá eru biblíulestrar,
erindi og hópumræður og samkomur sem
opnar eru öllum á kvöldin. Ræðumenn eru frá
öllum Norðurlöndunum og fer mótið fram á
hinum ýmsu tungumálum Norðurlandanna og
verður túlkað á íslensku og finnsku. Af ræöu-
mönnum má nefan Agne Norlander og Anfin
Skaaheim frá Svíþjóð og Noregi, Pekka Jokir-
anta frá Finnlandi, Jens Ole Christensen frá
Danmörku auk Islendinga. Fimmtudaginn 8.
verður sérstök hópferð mótsgesta um Suður-
land og að mótinu loknu gefst hinum erlendu
gestum tækifæri til að ferðast um landið.
Innritun er senn lokið og hafa nærri 200
erlendir gestir skráð sig til þátttöku og
stendur nú yfir innritun Islendinga. Mótið fer
fram í Neskirkju og nærliggjandi skólum.
Nánari upplýsingar er að fá á skrifstofu
Kristilegu skólahreyfingarinnar að Freyju-
götu 27 í Reykjavík.
Heyrn og tal rannsakað
á Austurlandi
Einar Sindrason, háls-, nef- og eymalæknir,
ásamt öðrum sérfræðingum Heyrnar- og tal-
meinastöðvar Islands, verður á ferð um
Austurland dagana 29. júni til 9. júli 1985.
Rannsökuð verður heym og tal og útveguö
heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda staði:
Egilsstaöir
Egilsstaðir
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Neskaupstaður
Neskaupstaður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn Homafirði
Höfn Homafirði
29. júní
30. júni
1. júlí
2. júlí
3. júli
4. júli
5. júlí
6. júli
7. júlí
8. júií
9. júlí
Tekið á móti tímapöntunum á viökomandi
heiisugæslustöð og er fóiki bent á að panta
tíma sem fyrst.
Tónlistarskólanum í
Reykjavík slitið
Tónlistarskólanum í Reykjavík var slitiö
föstudaginn 31. maí sl. viö hátíölega athöfn í
Háteigskirkju. Skólastjóri, Jón Nordal, flutti
ræöu og afhenti burtfararprófsnemendum
skírteini sín. Gamlir nemendur skólans og
nokkrir kennarar léku Oktett í Es-dúr eftir
Mendelssohn. Aö þessu sinni voru 23 nemend-
ur brautskráöir frá skólanum. Skólastarfiö
hefur veriö afar fjölbreytt í vetur. Fjöldi tón-
leika var mikill bæöi innan skólans og utan,
góöir gestir komu í heimsókn og héldu nám-
skeiö sem vöktu ánægju og komu aö gagni
fyrir nemendur og kennara.
Kjarvalsstaðir
Á morgun, laugardag, kl. 14.00 opnar Elías B.
Halldórsson sýningu á 80—90 olíumálverkum
í vestursal Kjarvalsstaöa. Sýningin veröur
opin daglega frá kl. 14—22 og stendur til 7.
júlí.
Undirskriftasöfnun
undir friðarávarp
Friðarhreyfing íslenskra kvenna, í samvinnu
viö '85 nefndina, gengst fyrir geysivíðtækri
undirskriftasöfnun í júní undir friðarávarp
islenskra kvenna. Sjálfboðaliðar eru hvattir
til að hafa samband við miðstöö Friðarhreyf-
ingarinnar sem hefur aðsetur á Hallveigar-
stöðum, Túngötu 14 (gengið inn frá öldu-
götu), Reykjavík. Siminn er 91-24800.
Frá landsgildisþingi
St. Georgsgildanna
á íslandi 1985
St. Georgsgildin á Islandi héldu Landsgildis-
þing hinn 4. maí sl. í Hafnarfirði. St. Georgs-
gildin eru nú orðin sex talsins. Tvö ný gildi,
Straumur í Reykjavík og Blönduóssgildi hafa
bæst í hópinn en fyrir voru gildi í Reykjavík,,
Hafnarfirði, Akureyri og Keflavík.
Markmiö St. Georgsgildanna á Islandi er að
gera að veruleika kjörorðið Eitt sinn skáti á-
vallt skáti. Þetta gerir hreyfingin með því að
vera tengiliður til eflingar sambandi milli
skátahreyfingarinnar og eldri skáta.
Á Landsgildisþinginu voru lesnar og ræddar
skýrslur landsgildismeistara og gjaldkera,
einnig voru kynntar starfsskýrslur gildanna
og rætt um starf ið framundan.
I stjóm landsgildisins fyrir tvö næstu ár voru
kosin: Bjöm Stefánsson, Keflavík, lands-
gildismeistari, Aðalgeir Pálsson, Akureyri,
Elsa Kristinsdóttir, Hafnarfirði, Garðar
Fenger, Reykjavík, Guðni Jónsson, Reykja-
vík, Hilmar Bjartmarz, Straumi, Rvk., Jó-
hanna Kristinsdóttir, Keflavík.
Tapað -fundið
Högni tapaðist
frá Laufásvegi
Gulbröndóttur högni tapaðist frá Laufásvegi
2a, 12. þ.m. Finnandi vinsamlegast hringi í
sima 23611 eða hafi samband við Kattavina-
félagið.
Happdrætti
Dregið í happdrætti
Árnesingakórsins í Rvík
Þann 14. maí sl. var dregið í happdrætti
Árnesingakórsins í Reykjavík.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
1. Ltaniandsferð 245
2. Ferð með gistingu í Breiðuvík 2182
3. Endurryðvöm 2016
4. Flugfar, Rvík-Akureyri-Rvík 1032
5. Dilkur á fæti 781
6. Ferð, Rvík-Isaf jörður-Rvík 1976
7. Vöruúttekt 552
8. Vömúttekt 2010
9. Kvenjakki 1511
10. Lopapeysa 1212
11. Þvottaskálasett 463
12. Barnasvefnpoki 2469
13. Soda-Stream tæki 2334
14. Miðar á leiksýningu hjá L.R. 2110
Upplýsingar um vinninga em veittar í
símum 91-71079 og 91-72305.
Vinninga skal vitja innan eins árs.
60 ára afmæli
60 ára veröur á morgun, 22. júní, Ólína
Jónsdóttir Voks frá Norðurgaröi í Mýr-
dal. Hún er búsett í Lúxemborg og
heimilisfang hennar er: L—5429 Hette-
millen 5 Luxemburg.
Messur
HAFNARFJARÐ ARKIRK JA:
Guðsþjónusta ki. 11. Sr. Gunnþór
Ingason.
Ferðalög
Digranessöfnuður
Sumarferð safnaðarins verður farin
helgina 29,—30. júni. Farið verður um
Snæfellsnes og lagt af stað frá safnaðarheim-
ilinu Bjarnhólastig 26 kl. 8.30 að morgni
laugardags og komið til baka á sunnudags-
kvöld. Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi
sunnudaginn 23. júní. Nánari upplýsingar
gefa Elln í s. 41845 og Þórhallur í s. 40124.
Safnaðarfólk f jölmennið í skemmtilega ferð.
Stjórnarráðið í
Seðlabankann?
Samþykkt var í sameinuðu þingi í
gær þingsályktun þess efnis að ríkis-
stjórnin hefji nú þegar viðræður við
Seðlabanka Islands um nýtingu nýs
húsnæðis bankans. Markmiðiö á aö
vera það að verulegur hluti nýbygging-
arinnar verði notaður undir starfsemi
Stjórnarráös Islands.
I sameinuðu þingi voru 28 þingmenn
samþykkir, 9 á móti, 11 sátu hjá og 12
fjarverandi.
APH
Nýju kjarasamningarnir:
Alls staðar
samþykktir
Nýundirritaðir kjarasamningar ASI
og VSI hafa verið samþykktir með
litiili mótstöðu i öllum þeim verkalýðs-
félögum sem um þá hafa fjallað.
Afstöðu verður að taka og birta hana
fyrir hádegi á þriðjudag fyrir hvert
félag út af fyrir sig. Þau eru um 250
talsins.
Iðja í Reykjavík og Verslunar-
mannafélag Reykjavikur hafa sam-
þykkt, Fram á Sauðárkróki, Félag
byggingariðnaðarmanna í Hafnarfirði
og Verkalýðsfélag Borgamess
sömuleiðis. Fundur í Dagsbrún verður
ekki fyrr en á mánudagskvöld.
ÞG/HERB