Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
190. TBL. - 75. og 11. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 1985.
Vinnubrögðin vegna Rainbow Navigation:
Bandarískir þingmenn
mæta þessu með hörku
— segir lögmaður Rainbow Navigation — sjá baksíðu
Harður árekstur varð i gærdag á gatnamótum Sléttuvegar og Suðurhlíðar þegar bill ætlaði að beygja inn á Sléttuveg en ók i veg fyrir bil sem kom
norður götuna. Þrennt var flutt á slysadeild en ekki alvarlega slasað. Bilarnir eru mikið skemmdir. EH/DV-myndS
Geir
Hallgrímsson
enní
málaferlum
vegna
varnarliðsins:
Nýja flugstöðin á
nauðuy&mppboð?
Hreppsnefnd Miöneshrepps í Sand-
gerði hyggur á málaferli gegn Geir
Hallgrímssyni utanríkisráöherra og
varnarmáladeild utanríkisráöuneyt-
isins vegna vangoldinna byggingar-
leyfisgjalda af nýju flugstööinni á
Keflavíkurflugvelli. Nemur krafan
rúmum 500 þúsund krónum. „Þetta
er ríkisbygging á okkar svæði og viö
viljum fá byggingarleyfisgjaldið,”
sagöi Jón K. Olafsson, sveitarstjóri í
Sandgerði, í samtali viö DV í morg-
un. „Viö höfum sent máliö til lög-
fræöings og ef honum veröur veittur
lögtaksúrskuröur er ekki annaö fyr-
irsjáanlegt en flugstöðin endi á upp-
boöi ef utanríkisráðuneytið vill ekki
borga.”
Samkvæmt heimildum DV er mikil
gremja ríkjandi hjá flestum sveitar-
stjórnarmönnum á Suöurnesjum,
hvar í flokki sem þeir standa, yfir því
hversu mjög utanríkisráðuneytið
dregur taum varnarliðsins í deilu-
málum er upp koma og varöa íslensk
lög.
Aö sögn Sverris Hauks Gunnlaugs-
sonar, skrifstofustjóra varnarmála-
skrifstofu utanríkisráöuneytisins, er
nýja flugstöðin reist á varnarsvæði
og þar er starfandi sérstök
byggingarnefnd. „Byggingarleyfis-
gjöld hafa aldrei verið greidd af
byggingum sem íslendingar hafa
reist á varnarsvæðum. Þaö verður
heldur ekki gert nú,” sagði Sverrir
Haukur Gunnlaugsson.
Búist er við 400—500 manns í reisu-
gilli, sem haldið verður í nýju flug-
stöðinni síðdegis í dag.
-EIR.
Valgerður í
„andófið”
Félagjafnaðar-
manna stendur
nú öllum opið
„Þar sem viö störfum í anda sí-
gildrar jafnaðarstefnu var ákveðið
að Félag jafnaðarmanna stæði öll-
um opiö. Fyrir lá ein umsókn og
eftir þessa ákvöröun var sjálfgert
að viðkomandi yrði félagi. Valgerð-
ur Bjarnadóttir er því komin í hóp-
inn,” sagöi Þorlákur Helgason, for-
maður Félags jafnaöarmanna, í
morgun.
Á félagsfundi á Selfossi í gær-
kvöldi voru nær allir stofnendur fé-
lagsins mættir. Opnun félagsins
var einróma samþykkt. „Ætlun
okkar er að berjast fyrir okkar við-
horfum innan Bandalags jafnaöar-
manna og auðvitaö er ánægjulegt
aö varaformaður landsnefndar er
nú kominn í okkar raöir,” sagði
Þorlákur.
„Þaö hafa farið fram óformlegar
viðræður einstaklinga í félaginu við
formann þingflokksins, Guðmund
Einarsson, og við viljum ræða ýmis
alvarleg mál við þingflokkinn og
landsnefndina. Þetta er í deigl-
unni.”______________HERB
Enn einn
þjófaflokk-
ur upprættur
Flokkur ungra drengja, á aldr-
inum 14 til 16 ára, hefur játað á sig
á annan tug innbrota í íbúöir og
fyrirtæki í sumar. Hafa drengirnir,
sem eru fimm talsins, komist yfir
verðmæti hátt í eina milljón króna í
þessum innbrotum. Piltarnir hafa
ekkert unnið í sumar og að sögn eru
þeir búnir að eyða þýfinu í skemmt-
anir.
Drengirnir viðurkenna að hafa á
samviskunni innbrot í f jölda íbúða
og fyrirtækja á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu á tímabilinu frá júní og
fram að verslunarmannahelgi. Á
syndalistanum eru innbrot í
bensínafgreiðslu í Álfheimum,
matsölustað á Grensásvegi,
verslun í Siðumúla, sjoppu við
Skipholt, verslun í Suðurveri þar
sem þeir brutust inn þrisvar
sinnum og brutu upp peningaskáp í
eitt skipti. Þá hafa þeir játað
nokkur innbrot í einbýlishús í
Garðabæ, tvö hús í Kópavogi,
fjögur hús í Suðurhlíðum þar sem
þeir komust inn um illa læstar
svalahuröir og gengu um á meðan
heimilisfólkið svaf. Þá hafa þeir
játað innbrot í íbúðarhús í Skerja-
firði.
Aö sögn rannsóknarlögreglunnar
voru flest þessara innbrota tilkynnt
á sínum tíma en ekki öll.
Drengirnir hafa veriö í haldi í
sólarhring í einu að undanfömu.
Þeir hafa flestir komiö við sögu hjá
lögreglunni áður. Piltarnir eru úr
Reykjavík. -EH.
Eftirlýsturfangi
Fangi strauk af Litla-Hrauni í
gærkvöldi. Var tilkynnt um aö
fanginn væri strokinn um miðnætti
í gær en ekkert hafði spurst til
ferða hans þegar DV fór í prentun í
morgun.
Að sögn lögreglunnar hefur verið
gert viðvart i nágrenni Litla
Hrauns og á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu þar sem líklegt er að hinn
eftirlýsti haldi sig. -EH.