Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Blaðsíða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985. Menning Menning Menning Menning UTAN HRINGSINS Um sýningu Elínar Magnúsdóttur í Salnum Rann- sóknir jöklum Sunnudaginn 25 ágúst. kl. 14 verður opnuð í anddyri Norræna hússins sýning á kortum, bókum, myndum og ýmsu sem tengist rannsóknum á jöklum á Islandi. Sýning þessi er sett upp á vegum Norræna hússins í tilefni af alþjóölegri jöklaráðstefnu sem haldin verður í Háskóla Islands dagana 26.-29. ágúst næstkomandi. Á sýningunni getur aö líta gömul og ný kort þar sem sjá má útbreiðslu jökla, hvernig þeir hafa ýmist vaxið eða hopaö í tímans rás. Meðal mynda á sýningunni eru loft- myndir frá LandmæUngum Islands og sjást á þeim breytingar sem orðiö hafa á jökulsporðum síðan byrjað var að fylgjast með þeim úr lofti. Elsta myndin er frá árinu 1945 og sést þar sporður Breiðamerkurjökuls og Jökulsáriónið sem þá var nýlega komið undan jöklinum og rétt grillir í það. Síðan er fylgst með vexti þess og á nýjustu myndunum má sjá það í þeirri mynd sem landsmenn þekkja núna. Aðrar myndir sýna hvernig Skafta- fellsjökull og Svínafellsjökull náðu saman á sínum tíma. Sem kunnugt er var hönnuð hér á landi íssjá; tæki, sem gerir mönnum kleift að mæla þykkt íshellunnar á jöklunum. Á sýningunni í Norræna húsinu eru myndir sem gerðar eru samkvæmt niðurstöðum af þessum mælingum og má ætla að mörgum þyki forvitnilegt að sjá þau fjöll og firnindi sem leynast undir jöklum landsins. Ennfremur verða til sýnis bækur og tímarit þar sem fjallað er um jökla- rannsóknir og annað þeim tengt. Veg og vanda af uppsetningu sýningarinnar hefur Helgi Björnsson jöklafræðingur haft og 3. september heldur hann fyrirlestur með litskyggn- um um jöklarannsóknir. Sýningin stendur til 4. september og er opin daglega á sama tíma og Norræna húsið. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Okkur myndlistargagnrýnendum er tamt að lýsa málaralist ýmist sem „sannfærandi” eöa „ósannfærandi”. Frá mínum bæjardyrum séð birtist umrædd sannfæring ekki alltaf í tækni- legri getu, kunnáttusamlegri með- höndlun lita og lína og vandlega ígrundaðri uppbyggingu atburða á myndfletinum. Myndlistarmaður getur beitt alls kyns brögðum án þess að hafa erindi sem erfiði. Tæknibrellur geta falið vöntun á andagift og mynd- bygging er stundum reist á sandi. „Sannfæring” listamanns er það sem hann veit og skynjar áður en hann hefst handa við sjálfa sköpunina og hann þarf oft ekki nema örfáar línur og liti til að koma henni til skila. Matisse rissar upp nokkra andlitsdrætti í einni svipan en það riss gefur til kynna þekk- ingu hans á mannskepnunni allri og hvernig innri liðan hennar mótar ytra fas. Það sem gerist í efninu Sannfæring ýmissa hugsuða í mynd- list, t.d. Jasper Johns, birtist í bjarg- fastri trú þeirra á þær forsendur sem þeir gefa sér og því geta þeir leyft sér sáraeinfalda framsetningu í mynd- rænni rökleiöslu. Margir ungir íslenskir myndiistar- menn, sem sýnt hafa á síðustu misser- um, hafa opinberaö listrænan ung- gæðingshátt sinn og þar meö skort á sannfæringu í fremur hugsunarlausum Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson tilraunum með efnivið, hvort sem um er að ræða málningu, krít eða önnur efni. Meö því að nota efniviðinn og tækniþekkingu sína hyggjast þeir fikra sig í átt til kjarna málsins en ekki öfugt. Fyrir kemur að þeim tekst að komast á leiðarenda en oftast eru þeir á hringsóli í kringum „allt sem er” og tekst ekki að skilgreina veröldina fyrir innan þann hring sem Steinn Steinarr skrifaði um. Þaö sem þeir gera vel gerist í efninu. Dekoratífir hæfileikar Ungur listamaöur, Elín Magnúsdótt- ir, sýnir nú í Salnum við Vesturgötu. Verk hennar, máluð á striga, pappír og silki, endurspegla ljóslega þann vanda MB LAÐSÖLUSTÖÐU M „•■•og fjandinn vorkenni mérþóttég geri eitthvað!" *•’ ;; ’ Viðtal við Guðrúnu HelgÁdðttílr"' •* ’ alþingismann og rithöfuhd *, * * Lífsreynsla: . < * C.C „Ég man sérst0klega eftif því; hvað við voru^*jFþsatórliÓ|^J^ m ■* A Elías Baldvinsson rifjar úpp sjávarháska . sem hannlentií . , , _ .<„ 4 Last Call for Álcohof. y Bjöggi Gisla og Gunnar-Herrhaiýis^pn • % segja gamlar poppsögur • > Þyrlur, naut og berfættur rriíil Öskar Magnússon skrifa um brúðkaup í BáidaWkJ Hollywoodkeppi heldur áfram-. \A m ■ ■ 2"? * >'■»<•» >w $***»*» mmtit sem margir óþroskaðir listamenn standa frammi fyrir. Hvað skal mála og hvernig? Og þeim er nokkur vork- unn í þeirri síbylju stílbrigða sem gengur yfir listaheiminn. Elín velur sér hina fígúratífu leið enda er hún efst á baugi þessa stund- ina. Hins vegar hefur hún ekki gert upp viö sig hvað hún vill gera við þær manneskjur sem hún dregur upp á myndflötinn. Hreyfingar þeirra og samspil er hvort tveggja ómarkvisst þannig að tilveruréttur þeirra er í vafa. Tengsl mannvera við annað sem gerist í myndunum eru sömuleiöis óljós ef ekki beinlínis villandi. I málverkum á silki sýnir Elín þó að hún hefur til að bera dekoratífa hæfi- leika, lagni í samstillingu stórra og lit- ríkra flata. Þá hæfileika ætti hún að rækta með sér. AI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.