Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Side 6
6
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Suðrænir
ávextirá
borðum okkar
- Hvernig á að nota papaya eða kiwi og hver er
munurinn á rússneskri melónu og hunangs-?
Einu sinni voru ávextir ekki annað
en epli og appelsínur i hugum Islend-
inga. Og það ekki nema rétt í kringum
jólin. Nú eiga þeir kost á alls kyns suð-
rænum á vöxtum allt árið um kring.
Ekki vita þó allir hvernig á að not-
færa sér þessa sjaldgæfu og oft á tíðum
rándýru ávexti. Við fengum Sigrúnu
Davíðsdóttur til þess að segja okkur
sitthvað um hvernig hægt er að nota þá
á sem hagkvæmastan hátt. Við hittum
hana einn morgun í vikunni í Blóma-
vali og skoðuðum það sem á boðstólum
var.
Avocado
Til þess aö kanna hvort avocado sé
hæfilega þroskað á að þrýsta létt á
stöngulendann. Annars er allt i lagi að
kaupa óþroskað avocado ef maður hef-
ur timann fyrir sér. Látiö það standa
2—3 daga I stofuhita og þá gjarnan í
samfélagi með eplum. Eplin flýta fyrir
þroskuninni. — Ef ávöxturinn skyldi
ofþroskast er tilvalið að þurrka hann
og nota í þurrblómaskreytingu.
Enn ein not má hafa af avocado.
Rækta má gullfallega jurt upp af stein-
inum. Mjói endi hans á að snúa upp og
hann á að vera hulinn moldu til hálfs.
Tvær tegundir af avocado hafa verið á
markaðinum hér, græn með sléttu hýöi
og mjög dökk með hrufóttu hýði.
Avocado er vinsælt í forrétti og eins í
salöt. Skerið ávöxtinn ekki i sundur
fyrr en rétt áður en á aö nota hann,
hann dökknar fljótt. Gott að væta hann
með sítrónusafa. Avoeado kostaði 444
kr. kg.
Brúnn og loðinn
Kiwi er sérlega skemmtilegur ávöxt-
ur og hentar i marga rétti. Hann er
alltaf tilbúinn til neyslu og hefur mikið
geymsluþol. Hann cr óásjálegur,
brúnn og loðinn, en að innan er hann
ljósgrænn með litlum svörtum kjöm-
um. Kiwi hentar vel í ávaxta- og græn-
metissalöt og einnig hvers konar kök-
ur. Hann er þó ekki hægt að nota í
hlaup því efni í kiwi leysa upp eggja-
hvítuefnin í hlaupinu.
Melónur
Yfirieitt eru á markaðinum þrjár
tegundir af melónum. Þær voru raunar
fjórar daginn sem við vorum í ferðinni.
Gríöarlega stórar með rauðu aldin-
kjöti eru svokallaðar vatnsmelónur.
Þær eru hæfilega þroskaðar þegar þær
eru komnar með gulleita bletti og gefa
aðeins eftir þegar komið er við þær.
Melónur eru bestar væl kældar. —
Grænu melónumar kostuðu 61 kr.
Einnig var til önnur tegund, rússnesk-
ar vatnsmelónur. Þær eru líkt og rönd-
óttar aö utan og kostuðu 37 kr. kg.
Gulu melónumar heita hunangsmel-
ónur og gráleitar melónur með grófu
hýði hnetumelónur. Þessar tegundir
eru sérlega góðar í alls kyns ávaxta- og
grænmetissalöt. Þær eru einnig góðar
og oft notaðar í forrétti með rækjum og
reyktu kjöti, t.d. skinku. Þær kostuöu
68 kr.
Plómur í bökur
Þrjár tegundir af plómum voru til.
Gular kostuðu 4 kr. stk., rauðar á 10 kr.
stk. og dökkbláar á 8 kr. stk.
Plómur eru sérlega góðar í alls kyns
bökur og heitar kökur.
Nektarínur eru svipaöar og ferskjur
nema hvað hýöið á ferskjunum er eins
og svolítiö loðið. Hvort tveggja mjög
gott í ávaxtasalöt eða til þess að borða
einar sér. Nektarínurnar voru seldar í
stykkjatali á 18 kr.
Ugly er dálitið sérstakur ávöxtur
sem hefur verið á markaðinum í rúmt
ár eða svo. Eins og nafnið bendir til er
hann ljótur en þegar komið er inn úr
skinninu er þetta sérlega ljúffengur
ávöxtur. Gæti verið blanda af appel-
sínu og sætu greip. Oft er ávöxturinn
stór, vigtar allt að 250 g enumþessai
mundir eru frekar litlir ugly á boðstól-
um. Kg kostar 100 kr. Ugly eru bestir
þegar hýðið er eins og of stórt og Ijótt á
að líta.
Einn eða tveir litlir ugly bragðbæta
hrásalatið og passa líka vel í ávaxta-
salat.
Papaya skyldur melónu
Papaya er enn einn suðræni ávöxtur-
inn. Hann er með mikla kjarna líkt og
melónur og þá á að hreinsa í burtu
áður en hann notast enda skyldur mel-
ónu, vaxinn af melónutré. Papaya er
grænt að utan með gulum blettum.
Sjóða má ávöxtinn í sykurlegi með
pínulitlum sitrónusafa og nota með
köku með þeyttum rjóma. Hentar einn-
ig vel í forrétti með skinku, — þá skor-
inn í báta líkt og melónur. iÆks má
baka papaya í ofni og bera fram meö
Ijósumkjötréttum.
Mango er sérlega ljúffengur ávöxt-
ur. Hann var ekki á boöstólum er okk-
ur bar að garði. Mjög sérstætt bragð er
að þessum ávexti sem hentar mjög vel
í alls kyns ávaxtasalöt. Er talsvert not-
aður í austurlenskri matargerð, t.d.
mango chutney sem er eins konar sulta
úrmango.
Ávöxturinn er flysjaður áður en
hann er skorinn í sneiöar eða bita. Rétt
er að benda á að safinn úr mangoávöxt-
um skilur eftir ljóta bletti í fötum. Þá
er ekki ráölegt að drekka mjólk eða
áfenga drykki nokkra tíma eftir að
hafa borðaö mangoávöxt. Það getur
orsakað magapinu.
Lime er grænn ávöxtur af sítrónu-
ættinni. Hann er góöur í alls kyns
ávaxtasalöt en vegna þess hve hann er
dýr, kostaði þó ekki nema 19 kr. stk., er
limið mest notað til skrauts hér.
Kókoshnetur
Hafa verið til á markaði hér undan-
farin ár. Eru ekki mikiö keyptar,
sennilega vegna ókunnugleika, en þær
kostuöu 140 kr. kg. Gott er að hrista
kókoshnotina til að heyra hvort í henni
gutlar en mjólkin í henni er óvenjuleg.
Kjötið er aftur á móti frábært í ávaxta-
salöt, skorið í bita. Setjið hnotina sem
snöggvast í heitan ofn, þá er auðveld-
ara að ná henni í sundur. Annars er
hún opnuð þannig að lamið er á hana
með hamri og meitli.
Og loks er aðeins eftir að nefna döðl-
umar, af þeim ávöxtum sem ekki telj-
ast algengir hér en eru nú á boðstólum.
Ferskar döðlur eru sérstaklega ljúf-
fengar og þær má nota i ávaxtasalöt og
alls kyns kökur, nú eða boröa þær eins
og þær koma fyrir. Döðlurnar kostuðu
318 kr. kg.
A.Bj.
r \ Utór '-f I f\ A i
^ inii j l v A
1 i i i ^IL
* Sigrún Daviflsdóttir matreiðslubókahöfundur og sérstakur áhugamaður um allt sem er hollt sagði
okkur frá notagildi nokkurra grœnmetis- og ávaxtategunda.
• Þrjár tegundir af melónum, sú stærsta er vatnsmelóna, þá hnetumelóna og sú lengst til hægri er
hunangsmelóna. Fyrir ofan er ávöxturinn papaya. Hann er náskyldur melónum.
• Kókoshnetukjöt er alveg serlega
ijúffengt i ávaxtarétti. Gott að
bregfla þeim rétt aðeins í heitan
ofn áflur en ráðist er í að opna þær
með hamri og meitli. Á borðinu má
sjá rússnesku vatnsmelónuna en i
bakkanum fremst á myndinni eru
ferskar döfllur.
i m
• Þessir ugly eru mjög litlir og alls ekki neitt sérlega „Ijótir". Þeir eru bestir
ef hýðið er eins og nokkrum númerum of stórt!
DV-myndir Vilhjálmur.
• Þarna heldur Sigrún á avocado. Þessi er sérlega litill og hnöttóttur. Í körfunni eru ferskar jarðhnetur og
sjá má grænmetið sem rætt er um i vinstra horni myndarinnar. Þetta langa mjóa er piparrót.