Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1985, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 23. ÁGUST1985.
Utlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Reirí en fimmtán hundruð manns hafa látifl Irfið i flugsíysum á þessu ári.
Þessi frœga mynd var tekin eftir afl tvær flugvéiar rákust saman yfir San
Diego í Bandarikjunum fyrir nokkrum ámm. Þá fómst 144.
Flugslysaárið 1985:
Fimmtán
hundruð
manns farist
í f lugslysum
Fleiri en 1.500 manns hafa látið lífið í flugslysum í ár. Flestir hafa látist í
Boeing flugvélum. Árið í fyrra var eitt það áfallaminnsta í flugsögunni, þá
fórust um 200 manns í flugslysum.
En á þessu ári hefur þegar orðið mesta flugslys sögunnar þar sem ein flug-
vél á í hlut og mesta flugslysið yfir sjó.
Flugslysið í Manchester, þar sem 54 fórust, kemur aðeins 10 dögum eftir að
Boeing 747 japanska flugfélagsins JAL rakst á f jall nálægt Tokýo. Alls létust
520 manns í því slysi.
önnur Boeing 747 vél fórst yfir sjónum undan Irlandi þann 23. júní. I því
slysi fórust allir, 329 farþegar.
I Bandaríkjunum dóu 133 manns þann 3. ágúst þegar Lockheed breiöþota
Delta flugfélagsins brotlenti þegar hún var að lenda i Dallas.
Mestu flugslysin 1985:
Dagur Flugvél Staður Dauðsföll
1. jan. Eastern/Boeing 727 Bolivía 29
19. feb. Iberia/Boeing 727 Bilbao, Spánn 148
23. jún. Air India/Boeing 747 Atlantshaf 329
2. ág. Delta/Tristar Dallas 133
12. ág. JAL/Boeing 747 Tokýo 520
22. ág Brit. Airtours/Boeing 737 Manchester 54
Verður Kók að
Ijéstra leyndar-
málinu upp?
Óskar Magnússon, DV, Washington:
Alríkisdómari í Delawareríki hér í
Bandaríkjunum hefur kveðið upp þann
úrskurð að Coca Cola fyrirtækinu sé skylt
aö upplýsa um formúluna fyrir Coca Cola.
Kókformúlan er eitt best varðveitta
leyndarmálið í heimi viðskiptanna og
hefur aðeins verið á fárra orði í þau 99
ár sem liöin eru síðan kók var fyrst
blandað.
Samkvæmt ákvörðun dómarans er
ekki um það að ræða að almenningur
fái upplýsingar um formúluna heldur
einungis lögmenn málsaöila í máli sem
nú stendur yfir gegn Coca Cola
fyrirtækinu. Málið er höfðað af
eigendum nokkurra átöppunar-
verksmiðja. Þeir halda því fram að
samsetning kóksins skipti meginmáli
fyrir lausn málsins. Þess vegna þurfi
að upplýsa um samsetningu nýja kóks-
ins, sígilda kóksins og megrunar-
kóksins.
Þeir hjá Coke segjast ekki undir
nokkrum kringumstæöum láta þessar
upplýsingar í té. Málið á rætur að
rekja til ársins 1982 þegar megrunar-
kók, Diet Coke, var sett á markaðinn.
Fyrirtækið hélt því þá fram að Diet
Coke væri önnur vara en venjulegt kók
og því væri það ekki bundiö af þeim
samningum sem það hefði gert við
átöppunarverksmiðjurnar um
venjulega kókið. Coke taldi sér heimilt
að hækka verðið á hráefninu til
verksmiðjanna.
Því vildu verksmiðjueigendur ekki
una. Málið varð enn dularfyllra þegar
nýja kókið kom á markaðinn í apríl
síðastliðnum. Þá sagði Coke að
fyrirliggjandi samningar giltu þótt
nýja kókið væri öðruvísi.
„Samningarnir eiga svo ekki að
gilda um Diet Coke vegna þess að það
er öðruvísi,” segir einn verksmiðju-
eigandinn.
Ovíst er hvernig málum þessum
lyktar. Coke-fyrirtækið mun líklega
áfrýja úrskurði dómarans.
W! N F f'10 VJK1
mm i' im%m ni cmi n 11 v
)g4í< Uí thn u? \
.tt» »'»*■ IUh-1 > >'
Mof|jh??ss i»‘s?í 0>s'i«ns H??
John Pemberton, sem fann upp kókið, myndi liklega snúa sér vifl i gröfinni
ef eftirmenri hans Ijóstruðu upp formúlunni hans.
Vilja ekki bombu
Brasilía hefur engan áhuga á að
framleiða kjarnorkusprengjur,
segir vísinda- og tækniráðherra
landsins, Renato Archer.
Archer sagði fréttamönnum að
Brasilíustjórn einbeitti sér í tækni-
málum að rannsóknum á félags-
legum þörfum landsmanna. Hann
sagði að staðhæfing Hugo de
Oliveiri Piva hershöföingja um að
Brasilíumenn gætu smíðað kjarn-
orkusprengju á fimm árum hefði
verið „leikur að orðum.”
83 komust af en 54 fórust
54 til 60 fórust með breskri Boeing
737, sem kviknaði í þegar hún var í
flugtaki í Manchester. Vélin var á
leiðinni til eyjarinnar Korfu við
Grikkland með 131 farþega og sex
manna áhöfn.
Flugmennirnir þykja hafa brugðið
fljótt og vel við þegar þeir nauöheml-
uðu meö vélina enn á flugbrautinni.
Hún var komin upp 185 km hraða
þegar flugmaður sá eld í öðrum hreyfl-
inum.
En sprenging varð í hreyflinum svo
að eldurinn magnaöist fljótt, flugvélar-
skrokkurinn brotnaði í tvennt og fæstir
þeirra sem sátu í aftari hlutanum kom-
ustaf.
Ofboð og skelfing greip farþegana og
þaö tróð hverá öðrumí þrengslunum
milli sætaraðanna.
Þótt flugvallarslökkviliðið brygði
fljótt við tókst því ekki að koma í veg
fyrir að vélin fuðraöi upp. Það var
byrjað að sprauta kvoðu á vélina til að
vernda farþegana viö útgönguna
þegar sprengingin varð.
Byltingarástand
yfirvofandi
Utanríkisráðherra Vestur-
Þýskalands, Hans-Dietrich Genscher,
segist trúa því að byltingarástand sé
yfirvofandi í Suður-Afríku. Hann sagði
að ástæðan fyrir því að þetta ástand
hefði skapast væri sú að minnihluta-
stjórn hvítra í landinu hefði ekki komið
á nægum endurbótum á kynþátta-
stefnu sinni.
Genscher sagði að mikilvægt væri nú
að stjórnin ræddi við hinn fangelsaða
andófsmann, Nelson Mandela, og við
Desmond Tutu, hinn svarta biskup í
Jóhannesarborg.
Genscher sagöi ekkert um hugsan-
legt efnahagsbann á Suður-Afriku en
þýska stjórnin hefur áður sagt að slík
bönn virki ekki.
Banná
barnanauðgara
Ástralska lögreglan hefur gefið yfir-
völdum á Filippseyjom lista yfir þá
Ástrala sem vitað er að hafa leitað á
börn. Þetta gerir hún til að koma í veg
fyrir barnaklámsferðir þessara
manna til Filippseyja.
Filippínskur embættismaður segir
að þeim mönnum sem séu á listanum
verði ekki hleypt inn í landið.
Kynlífsferðir Astrala til Filippseyja
eru óöum að aukast. Þær hafa valdið
nýjum uppgangi hjá vændiskvenna-
börum og klúbbum á eyjunum.
Lög um kjarnaskip
Stjórnin á Nýja-Sjálandi segir að hún
vilji halda góðu sambandi við Banda-
ríkin, þrátt fyrir að hún sé ákveðin í aö
koma kjarnaskipabanni sínu í lög.
Bandaríkjamenn eru mjög á móti
þeirri lagasetningu.
Aðstoðarforsætisráðherra Nýja-Sjá-
lands mun fara til Bandaríkjanna í
september. Hann mun heimsækja alls
fimm þjóðlönd í feröinni sem er farin
til að útskýra utanríkisstefnu stjórnar-
innar. Aðstoðarforsætisráðherrann,
Geoffrey Palmer, mun reyna að út-
skýra fyrir Bandaríkjamönnum hugs-
unina bak við ákvörðun Nýsjálendinga
að hleypa ekki öðrum herskipum í sín-
ar hafnir en þeim sem vitað er að eru
ekki með kjarnavopn.
Strössnerarf-
taki Strössners?
Stjórnarandstöðuleiðtogar hafa mót-
mælt tillögum um að sonur Alfredo
Strössners, forseta Paraguay, taki við
af föður sínum sem forseti. Embættis-
menn Colorado flokksins, sem er við
völd, sögöust á þriðjudag vera að
vinna að því að Gustavo Strössner tæki
við af föður sínum.
Euclides Acevedo, forseti samtaka
stjórnarandstöðuflokka, sagði að
áætlunin þýddi að stjórnarflokkurinn
væri að reyna að koma á fót
„konungdæmi, sem við höfnum
algerlega”.
Mandela vill
vopnaöa baráttu
Dagblaðið Washington Times hefur
eftir hinum fangelsaða andspyrnu-
leiðtoga, Nelson Mandela í Suður-