Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1985, Side 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. NOVEMBER1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Harðasti
Moskvukomminn
farinn að stunda
„vísindastörf’
1 framhaldi af hreinsunum í pólsku
stjórninni hefur Stefan Olszowski
utanríkisráöherra sagt af sér sæti í
stjórnmálanefnd kommúnistaflokks-
ins vegna „löngunar til aö helga sig
vísindastörfum”, aö sögn tilkynningar
pólsku stjórnarinnar. Búist er viö að
þegar tilkynnt verður um nýjan
ráðherralista stjórnarinnar í dag,
veröi Olszowski, sem er talinn mikill
harölínumaöur og hliöhollur Sovétríkj-
unum, ekki á þeim lista.
1 tilkynningu stjórnarinnar sagöi
einnig að Kazimierz Barcikowski,
meölimur stjómmálanefndarinnar,
heföi sagt af sér sæti í miðstjórn
flokksins, og aö yfirmaður flokksins í
Olszowski hefur áður veriö send-
ur i útlegö frá völdum i Varsjá.
m
»**5
Kostaði tvær
milljónir
Bandaríkjamenn eyddu meira en tveim milljónum islenskra króna viö
að koma hnúfubak þessum úr Sacramento-ánni og aftur út á sjó. Þeir
lokkuðu hann burt með þvi að likja eftir hljóðum sem hnúfubakar gefa
frá sór þegar þeir hafa komist i æti.
Frumvarp gegn
flóttamannaöldu
ar andúöar gegn Tyrkjum og öörum út-
lendingum sem búsettir eru í Dan-
mörku. 1 júlí réðust 500 ungmenni á
farfuglaheimiii þar sem 50 Iranir
Flótta-
mönn-
umýtt
á Finna
og
Norð-
menn
Ráðherrar Norðurlandanna funda í
dag á Álandseyjum um þaö vandamál
sem hefur skapast vegna mikils
straums flóttamanna til landanna.
Norömenn og Finnar eru undir miklum
þrýstingi aö taka viö fleiri flóttamönn-
um en Svíar og Danir telja sig hafa
þurft aö bera mestan þungann vegna
vandans.
Danir hafa þungar áhyggjur af aö
flóttamannavandamáliö sé aö skapa
ókyrrö í Danmörku.
Finnar hafa hingaö til aðeins veitt
einum manni hæli á þessu ári en Svi-
þjóð og Danmörk hafa hleypt 24.000
flóttamönnum inn til sín. Flestir eru
þeir frá Líbanon, Irak, Iran og Tyrk-
landi.
Norðmenn tilkynntu nýlega aö þeir
myndu hækka kvóta sinn þrefalt þann-
ig aö þeir myndu taka við 1.250 flótta-
mönnum á ári. Heimildarmenn innan
norsku stjómarinnar sögöu að þessi
ákvöröun heföi veriö tekin til aö geta
bægt burtu gagnrýni á fundinum í dag.
Finnar ætla að leyfa 100 flóttamönn-
um að leita hælis hjá sér á ári frá og
meö næsta ári. En flestir þeir flótta-
menn munu koma frá Hong Kong þar
sem bátafólk frá Indókína hefst viö í
búðum.
Sænskir mannréttindahópar hafa
gagnrýnt þaö aö sænskir landamæra-
verðir hafa í auknum mæli snúiö flótta-
mönnum við og sent þá aftur til síns
heima, jafnvel þótt þeir komi frá styrj-
aldarsvæðum. Yfirvöld segja aö 2.500
hafi verið snúið burt en tekið við 7.500.
Danir gera ráö fyrir að 10.000 flótta-
menn muni hafa komið til Danmerkur
þegar áriö er á enda en sama tala í Sví-
þjóð er 14.000.
Danska stjómin hefur lagt fram á
þingi frumvarp sem á aö setja hömlur
viö sívaxandi innflutningi flóttamanna
í landiö. Samkvæmt frumvarpinu geta
yfirvöld neitaö flóttamönnum um hæli
ef þau telja óliklegt aö beiöni þeirra
verði neitað. Eins og lögin eru nú veröa
stjómvöld aö hleypa mönnum inn í
landið þangaö til búiö er aö afgreiða
mál þeirra. Þaö getur tekið allt aö því
eitt ár.
Mikill straumur flóttamanna hefur
verið til Danmerkur síöan núgildandi
lög voru samþykkt áriö 1984. Arið áöur
sóttu 332 menn um hæli í Danmörku, en
gert ráö fyrir aö 10.000 menn muni
sækja um hæli.
Þessi flóðalda flóttamanna, sem eru
aðallega frá stríöshrjáðum Miöjarðar-
hafslöndum, hefur neytt stjórnina til
að leigja skip sem nú er heimili um
1.000 manna sem bíöa eftir aö f jallaö sé
ummál sin.
Hinn mikli fjöldi flóttamanna frá
framandi löndum hefur leitt til aukinn-
bjuggu. Þau hrópuöu aö útlendingun-
um: „Iranirfariöheim.”
Sprengingum hefur verið beint gegn
gyðingum og leigubílstjóri var myrtur
eftir „rasískar” hótanir í síma og í síö-
ustu viku var tyrkneskur kúrdi drep-
inn af tveimur byssumönnum.
Danska stjórnin og Margrét drottn-
ing hafa fordæmt kynþáttahatur þaö
sem í þessu ofbeldi hefur birst. Eu
stjórnin segir að Danir beri of þunga
byröi vegna flóttamannamálsins og
hefur lagt til aö Evrópuríki geri sam-
eiginlegt átak til að leysa vandann.
Dómsmálaráöherra Danmerkur, Erik
Ninn-Hansen, hyggst taka máliö upp á
fundi dómsmálaráöherra Noröurland-
anna í dag. ______________________
Nú finnst dönsku stjórninni nóg
komið af flóttamönnum frá striðs-
eða fátæktarhrjáðum Miðjarðar-
hafslöndum en farandverkamenn
frá þessum löndum vinna enn skit-
verkin viða i Evrópu.
Hreinsanimar í Póllandi:
OLSZOWSKISPARKAÐ
Skilvís finnandi
Leigubílstjóri í Bagdad í Irak fann í
aftursætinu í bíl sínum 10.000 dínara
(um 1.300.000 kr.) og skilaði þeim strax
aftur. Þegar hann sá að kona haföi
skilið peningana eftir í bílnum ók hann
aftur þangaö sem hann hafði skilið
hana eftir og lét hana fá þá. Hann neit-
aöi að taka viö fundarlaunum.
Haji Jaber, sem er rúmlega sex-
tugur, sagöi í viötali viö íranska sjón-
varpið: „Jú, ég er fátækur maöur, en
ég vil frekar biðja guö almáttugan um
aðlauna mér.”
Varsjá, Marian Wozniak, hefði fengið
sæti í hinni valdamiklu miöstjórn.
Olszowski er kunnur andstæðingur
Jaruzelskis forseta. Hann hefur veriö
valdamikill í Póllandi í 15 ár, en 1980
var honum refsaö fyrir efnahagsörðug-
leika sem Pólland átti viö aö stríöa og
sendur sem sendiherra til Austur-
Þýskalands. En þegar Samstööuvand-
ræðin suðu upp úr þaö sama ár var
hann kallaður til baka.
Litiö var á hann í utanríkisráöherra-
embætti sem friðþægingu fyrir Sovét-
menn, sem hafa metið hann mikils.
Deilur um
uppsagnir í
Stavangri
Björg Eva Erlendsdóttir, fréttaritari
DVíOsló:
A Rosenbergverft í Stavangri yfir-
gáfu allir vinnu sína á miðjum degi,
eöa um þúsund manns, því aö skipa-
smíöastöðin er meö fjölmennari
vinnustööum í Stavangri.
Ástæöan var uppsagnir fjögurra
manna. Rosenberg og aörar tilsvar-
andi stöövar hafa aö undanförnu verið
aö reyna aö losa sig viö óþarfa
mannskap vegna þess að samkeppni
um verkefni í skipasmíðum er hörð og
oft hætta á verkefnaleysi í langan
tíma, sem gerir fyrirtækinu erfitt fyrir
með fleiri hundruö manns á föstum
launum.
Verkafólk telur starfsöryggi sínu
ógnaö því aö uppsagnirnar bitna oft á
þeim sem hafa unniö hjá fyrirtækinu í
mörg ár en eru ekki færir um aö laga
sig aö breyttum aöstæöum og vinna
erfiðustu verkin eða þá endurmennta
sig. Því eru þeir látnir fara. Vill
verkafólkið stöðva þessa þróun.
Eitt þúsund manns kemurtkki aftur
til starfa í stööina á morgun. Það er
erfitt að spá fyrir um hvernig eöa
hvenær stjórn fyrirtækisins mun
bregðast við.
M-
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
og Þórir Guðmundsson