Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1985, Page 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. NOVEMBER1985.
13
Kjallarinn
GUÐRÚN
AGNARSDÓTTIR,
ALÞINGISMAÐUR FYRIR
SAMTÚK UM KVENNALISTA
Islands hefur þegar gefið til kynna
áhuga sinn á tannvernd og ætti því að
geta undirbúið ásamt öðrum þá
fræðslu, sem nauðsynleg er.
Við endurtekna fyrirspurn á
Alþingi nýlega um fé tannverndar-
sjóðs kom í ljós í svari heilbrigðis-
ráðherra að nokkru meiri nýting hef-
ur veriö á fé sjóðsins á sl. ári en áöur
og er þaö vel.
Hins vegar virðast engar skipu-
legar áætlanir hafa verið geröar um
fræðslu og tannvernd fyrir næsta ár.
A þessu þarf að veröa bragarbót.
Heilsuvernd nútímans og framtíð-
arinnar beinist í vaxandi mæli frá
dýrri viðgerðarþjónustu í átt til
fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerða.
Það er ekki seinna vænna að f jár-
festa í framtíöinni.
-Guðrún Agnarsdóttir.
HÖRÐUR Þ.
ASBJÖRNSSON
FYRRVERANDI
SÓKNARPRESTUR
Vígðum manni neitað ár
eftir ár
Einn af mörgum flötum þessa
máls er að ekki er sjálfgefið aö söfn-
uöur óski eftir almennri kosningu,
einkum þegar umsækjandi er einn.
Einnig ætti að vera eðlilegt og skylt
aö spyrja um vilja safnaðar þegar
kjörinn prestur er leystur frá störf-
um af einhverjum öðrum ástæðum
en aldri, miklum veikindum eða
alvarlegum afbrotum. Enda þótt
kjörinn og skipaöur embættismaður
ríkisins segi upp störfum hlýtur hon-
um/henni að leyfast að hætta við að
hætta innan löglegs þriggja mánaða
uppsagnarfrests. Annað er skýlaust
lagabrot og siðlaus yfirtroðsla af
hálfu kirkjuyfirvalda. Ekki bætir úr
skák þegar vígðum manni er ár eftir
ár neitað um setningu eða ráöningu í
kirkjulegt starf.
I tíð núverandi biskups Islands er
raunar meira um það en áður að guð-
fræðingar og prestar séu ráðnir til
starfs án þess að almenn kosning fari
fram. Það er í anda Jesú Krists sem
sagði: „Uppskeran er mikil en
verkamenn fáir. Biðjið því herra
uppskerunnar að senda verkamenn
til uppskerusinnar”.
Hörður Þ. Ásbjörnsson
LEIÐIN TIL
Kjallarinn
HAGSÆLDAR
„Ráku besta manninn"
Annars var stórkostlegt að hitta
flokksbræður þeirra kumpána
daginn eftir ráöherrabreytinguna.
Einn slíkur hvíslaöi því náfölur aö
flokkurinn hans heföi tekið sig til og
ætlað að „redda ráðherragenginu”
— en rekið besta manninn.
Ljónið unga
Aðrir voru kampakátari, lýstu því
yfir að ljónið unga frá Selfossi væri
komið með makka og nú fengju
hvolparnir sko að finna fyrir
hrömmunum.
Sjálfstæðismenn eru þó allir sem
einn sammála um það að Geir, sem
stóð upp og fór, hafi komið lang-
sterkastur út úr þessu og þurfi varla
að bíða næsta prófkjörs í Reykjavík
til þess að sjá þaö svart á hvítu.
Hann hafi aldeilis ekki enn sungiö
sitt síðasta í pólitíkinni enda laus
núna við alla ábyrgð af þessari ríkis-
stjórn.
„What are friends for..."
Aðrir stjórnmálaskýrendur telja
Geir orðinn svo hundleiðan á þessu
öllu saman að hann sé á hraðferð inní
Seðlabankann eða Kvennasmiöjuna,
hvort sem menn kjósa nú að nefna
það. Sjálfsagt líka fegurra um að
litast þar en á Lögreglustöðinni.
Tíðar ferðir utanríkisráðherra
stórveldanna hingað til að
heimsækja Geir eru líka settar í
samband við þetta. Til hvers eru líka
vinir ef ekki til að leggja á ráðin um
mikilvæg mál.
Ekkert hik
Formaöur Sjálfstæðisflokksins,
Þorsteinn Pálsson, haföi orð á því
þegar hann var kosinn í leiðtoga-
embættið í Sigtúni aö þaö væri ekki
háttur skaftfellskra vatnamanna að
hika í miöju iðukastinu. Svo sem
ágætt aö vita þaö. Hitt muna nefni-
lega ýmsir líka að þeir nafntoguðu
forverar Þorsteins á oddvitastóli
Sjálfstæðisflokksins, Olafur Thors og
Bjarni Benediktsson, létu ekki beint
drauma um fjármálaráðherra-
embættiö spilla neitt svefnförum
sínum. Hin haukfránu augu gömlu
Nýr fjármálaráöherra hefur hafið
störf og er ein fyrsta stjórnsýslu-
aðgerðin að greiða niður dilkakjötiö
ofaní landslýð. Var það drengileg
frammistaöa við sælkera landsins —
svo ekki sé minnst á smalanna léttu
spor eða þungu og bröttu, svona eftir
atvikum. Einnig var þetta auðvitað
vel til fundiö af fyrsta þingmanni
stærsta landbúnaðarhéraðsins að
örva söluna eitthvað á villibráðinni.
Ekki mun af veita þótt sumir telji sig
óneitanlega leggja drjúgt af mörk-
um.
Margir litlir menn
Alþýðuheimilin, sem söknuðu
vinar í staö í embætti fjármála-
ráðherra, hafa nú eignast annan í
sama embætti, fyrrum fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitenda-
sambandsins.
Léttir hann þeim nú matarinn-
kaupin og sýnir þetta auðvitað að
þegar kemur að matarlystinni þá á
víkingaþjóðin í norðri eina sál.
Hinn eini og sanni vinur litla
mannsins og KR hefur aftur á móti
fundið sér það verkefni að selja
Rússum og Kínverjum stóriðju. Var
nú satt að segja tími til kominn að
einhver gerði eitthvaö í þeim málum
austur þar, auk þess sem nóg er af
litlum mönnum á þeim slóðum. Má
mikið vera ef hann fer ekki álíka létt
með iðnvæðinguna og tvær
milljónirnar til fagra kynsins á út-
gönguversinu úr fjármálaráðu-
neytinu.
mannanna hvíldu nefnilega á öðrum
stól og ööru húsi.
Stærsti flokkur þjóðarinnar hafði
að minnsta kosti í eina tíð þá
meiningu að hann ætti að veita
þjóöinni ekkert annað en sjálfa
st j órnarf orustuna;
Aftaníossi Framsóknar
Hvaö hefur þá skeð? Er Sjálf-
stæðisflokkurinn orðinn svona
breyttur flokkur aö nú sé þaö bara
ágætt að vera aftaníossi Framsókn-
ar og greiða niður kótelettur í okkur
sælkerana. Er Hólmavík bara
gleymdur bær? Ábyggilega ekki hjá
sumum. Þótt allt sé betra en íhaldið
þá er svo sem allt í lagi að dragnast
með það meðan það „skaffar” þing-
sætin sem á vantar.
Svona þenkjandi menn gleyma því
þó greinilega að skaftfellsku vatna-
ótrúlega gott land og hér ríkir algjört
góöæri núna til lands og sjávar.
Smjör drýpur af hverju strái og
slaka má hálfri annarri milljón
tonna fisks upp úr gullkistunni
umhverfis landið án þess sérstak-
lega að gera sjómenn að þjóðhetjum,
auk hálfrar milljónar tonna til eða
frá eftir því hvernig liggur á fiski-
fræðingunum og sjávarútvegs-
ráðherra í það og það skiptið.
Bestu gæðingar þurfa eitthvert
taumhald og besta land þarf
einhverja efnahagsstjórn — þó ekki
sé nema til þess aö hafa hönd í bagga
meö lánstraustinu.
Efnahagsstjórnin
í hnakktöskunni
Efnahagsstjórn í þessu landi hefur
einfaldlega lent í hnakktöskunni
undanfarin ár og áratug, svona
GUÐLAUGUR
TRYGGVI
KARLSSON
HAGFRÆÐINGUR
ávallt vera málefnaleg og eingöngu
til uppbyggingar íslensku þjóðfélagi.
Formaöur Sjálfstæðisflokksins tekur
sjálfsagt eftir þessu og hann ætti
einnig í góðu tómi að kanna hver
afstaða Alþýðuflokksins var til mála
sem nú brenna hvað heitast á
honum. Ráðherrann mun fljótt
komast að því að Alþýðuflokkurinn
hefur barist gegn þeim öllum og
„Aðrir stjórnmálaskýrendur telja Geir orðinn svo hundleiðan á þessu öllu saman að hann sé á hraðferð
inni Seðlabankann eða Kvennasmiðjuna. . . "
£ „Aðrir voru kampakátari, lýstu
því yfir að ljónið unga frá Selfossi
væri komið með makka og nú fengju
hvolparnir sko að finna fyrir hrömm-
unum.
mennirnir gátu aldrei komist yfir
foraðið nema að leggja einhvern
tímann út í iðukastið. Vissulega er
fjármálaráðuneytið í hringiðunni.
Svo er bara að halda sér í toppinn,
láta klárinn ráða og missa ekki
sjónar af landtökunni.
Er á leiðinni
„Ég er á leiðinni,” söng einhver
táningahljómsveitin, „Alltaf á
leiðinni” og auðvitað er formaður
Sjálfstæðisflokksins á leiöinni en
ekki er nú víst að gömlu mennirnir
hefðu skrifað upp á „yfirsvipinn” —
fagráðuneyti fyrir formanninn.
I iðuköstum fjármálastjórnunar-
innar — svona þegar brýtur á bógum
og flæðir yfir hnakknef, ætti fjár-
málaráöherrann ungi samt aö taka
eftir því að öll er þessí torfæra af
mannavöldum tilkomin, ævintýra-
mennsku og bráðræði sem jafnvel er
upprunniö í hans eigin flokki.
Hálf milljón tonn,
til eða f rá
Flestir taka eftir því að Island er
innan um pyttlurnar. Samflokks-
maður fjármálaráðherra hefur lýst
þessu þannig aö við höfum hagað
okkur eins og rónar, slegiö fyrir
flösku og haldið aö við værum
vellauðugir.
Þrátt fyrir allt erum við
Islendingar nefnilega skuldugir upp
fyrir haus og sumu fénu vægast sagt
illa variö. Nefna má milljarða ef ekki
tug milljarða króna fjárfestingar
sem skila þjóöarbúinu ekki krónu.
Við borgum samt háa vexti af þessu
fé og eigum svo auðvitað að endur-
greiða þaö. Þetta er hinn einfaldi
veruleiki þeirra sem vilja bæta
þjóöarhag á Islandi. Skuldirnar tak-
marka svigrúmið og þær eru
eingöngu svona illyrmislegar vegna
okkar eigin ævintýramennsku og
bráðræðis.
Hlusta á Alþýðuflokkinn
Alþýöuflokkurinn hefur ákveðið að
gefa nýjum fjármálaráðherra
nokkurn tíma og svigrúm til athafna
enda mun gagnrýni flokksins sem
varað þjóðina við þeim. Auðveldasta
leiðin til aukinnar hagsældar í þessu
landi hefði einfaldlega verið að
hlusta á Alþýöuflokkinn.
Gæfuleysi stjórnarinnar
Þrátt fyrir þetta er hin furðulega
staða uppi í þjóðmálum íslenska lýð-
veldisins að Alþýðuflokkurinn er víðs
fjarri stjórnvelinum. Flokknum var
að vísu boðin þátttaka í þessari ríkis-
stjórn en þegar hann lagði áherslu á
stefnumál sín þá var bara ekkert á
hann hlustaö. Olík væri gæfa ríkis-
stjórnarinnar og meiri ef Alþýðu-
flokksins nyti við í stjórnarsamstarf-
inu.
Þjóðin hlýtur einnig að draga getu
núverandi stjórnarflokka til að ráöa
við ástandið í efa þegar þeim sem
sáu hlutina fyrir, vöruðu við
ófærunni og bentu á fært vað er
haldið utan stjórnsýslunnar.
Forsenda hagsældar
Forsenda fyrir heilli landtöku úr
því iöukasti efnahagsöngþveitis og
ævintýramennsku sem íslenska
þjóðin hefur verið sett í og forsendan
fyrir þeirri hagsæld sem íslenska
þjóðin á vissulega skilið og allar ytri
aðstæður benda til að hægt sé aö ná
er nefnilega fyrst og fremst öruggt
taumhald Alþýöuflokksins á stjórn
efnahagsmála þjóðarinnar og löngu
tímabær aðild flokksins að ríkis-
stjórn íslenska lýðveldisins.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.