Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1985, Blaðsíða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR12. NOVEMBER1985.
Peningamarkaður
Andlát
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65 74 ára geta losað inn-
stseður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár. verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án uttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 34%
nafnvöxtum og 34% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 36% nafnvöxtum og
39,2% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
34% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði
25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6
mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 31,6%.
Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 34,1%, eða
eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum
reikningum reynist hún betri. Vextir færast
tvisvaráári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af út.tekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hcfur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé reikningurinn
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur.
Þau eru: Hefðbundin,' til mest 14 ára en
innleysanleg eftir þrjú ár. 10.09.88. Nafnvextir
7°n. Vextir. vaxtavextir og verðbætur greiðast
með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið-
um, skírteini til mest 15 ára. innleysanleg
eftir 5 ár. 10.09.90. Vextir eru 6.71% á höfuð-
stól og verðbætur. reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir. vaxtavextir. vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
tryggð skírteini eru til 5 ára. 10.09.90. Þau
eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afTöllum og ársávöxtun er al-
mennt 12 18% umfram verðtrvggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
cinstaklinga 720 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139 174 þúsund. 2 4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa,
annars mest 177 221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 207 259 þúsund.
Lánstími er21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3.5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán iífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5 8% vöxtum. Lánstími er
15 35árr
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðslól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin |)annig
22%.
Liggi KXX krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum . riknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá ei upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
1,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í nóvember 1985 er 1301
stig en var 1266 stig í október. Miðað er við
grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985
er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983
en 3392 stig á grunni 100 frá 1975.
Guðný Þorvaldsdóttir frá Skógum lést
4. nóvember sl. Hún var fædd á Rauðs-
stöðum í Arnarfirði 28. mars 1908. Guð-
ný giftist Ásgeiri Bjarnasyni en hann
lést fyrir albnörgum árum. Þeim hjón-
um varö fimm barna auðið. Utför Guð-
nýjar verður gerð frá Fossvogskirkju í
dag kl. 15.
Guðlaug Eiriksdóttir lést 2. nóvember
sl. Hún fæddist í Reykjavík þann 17.
maí 1914, dóttir hjónanna Jóhönnu
Björnsdóttur og Eiríks Þorsteinsson-
ar. Guðlaug giftist Kristni Ottasyni en
hann lést árið 1980. Þau hjónin eignuð-
ust tvö börn. Otför Guðlaugar verður
gerö frá Fríkirkjunni í dag kl. 15.
Hanna G. Jónsdóttir lést 2. nóvember
sl. Hún fæddist á Eyrarbakka 7. mars
1904, dóttir hjónanna Jónínu Jónsdótt-
ur og Jóns Vilhjálmssonar. Ung að
árum giftist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum, Pétri Brandssyni. Þau
hjón eignuðust einn son. Utför Hönnu
var gerð frá Fossvogskirkju í morgun.
Jónina Kvaran frá Mælifelli í Skaga-
firði, til heimilis að Hvassaleiti 155,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 14. nóvemberkl. 13.30.
Anton Schneider verkstjóri, Gnoðar-
vogi 26, verður jarðsunginn frá Krists-
kirkju, Landakoti, miðvikudaginn 13.
nóvember kl. 13.30.
Árni Kristjánsson framkvæmdastjóri,
Rauðalæk 12, andaöist í Landspítalan-
um 10. nóvember. Utförin verður gerð
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13.
nóvember kl. 13.30.
Herbert Jónsson kjötiðnaöarmaður,
Vesturbergi 20, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miövikudaginn 13.
nóvember kl. 13.30.
Ólafur Guðmundsson veggfóörara-
meistari, Stigahlíð 6, verður jarðsung-
inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mið-
vikudaginn 13. nóvember kl. 15. Jarð-
sett verður í Fossvogskirkju.
Anna Stefánsdóttir, Reynimel 27, lést í
Landakotsspítala 10. nóvember sl. Ut-
förin verður gerð frá Neskirkju föstu-
daginn 15. nóvember kl. 15.
Guðfinna Lea Pétursdóttir, Olduslóö 10
Hafnarfirði, er lést 3. nóvember, verð-
ur jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
miövikudaginn 13. nóvember kl. 15.
Rósa Jónsdóttir frá Þverdal í Aðalvík,
til heimilis að Rauöalæk 22, lést í elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
daginn 9. nóvember.
Torfi Guðbrandsson, Suöurgötu 12
Keflavík, lést í Landakotsspítala 9.
nóvember.
Tilkynningar
Kvenfélag
Hallgrímskirkju
Basar félagsins veröur haldinn í safnaöar-
heimili kirkjunnar laugardaginn 16. nóvemb-
er kl. 14. Margt eigulegra og góöra muna.
Tekið veröur á móti basarmunum á fimmtu-
dag og föstudag milli kl. 15 og 20 og eftir kl. 10
á laugardag. Kökur eru mjög vel þegnar.
Kvenfélag Hreyfils
efnir til basars i Hreyfilshúsinu 17. nóvember
nk. Félagskonur, sem vilja gefa basarvarn-
ing, eru beðnir að koma honum í Hreyfilshús-
ið f immtudagskvöldið 14. nóvember.
Listahátíð Listafélags
Verslunarskólans
Dagana 11.—15. nóv. heldur Listafélag
Verslunarskóla Islands veglega listahátið.
Margt verður gert bæði til gagns og gamans
og fer dagskráin hér á eftir.
12. nóv.
Videoílöngufrím.
Tónleikar með Costa Nostru og Valgeiri
Guðjóns. kl. 20.30.
13. nóv.
Otgáfudagur bókar með efni frá nemendum,
s.s. ljóðum og smásögum. Söngva- og hæfi-
leikakeppni kl. 21.00. Nemendur troöa upp.
14. nóv.
Bókmenntakynning! Þórarinn Eldjárn, Einar
Kárason, Bryndís Gunnarsdóttir, Olafur
Haraldsson, Arnar Guðmundsson og skóla-
skáldin lesa upp úr verkum sínum. Veitingar í
og með.
15. nóv.
Ovænt uppákoma í frim. Leikfélagið Allt milli
himins og jarðar frumsýnir leikritið Blúndur
og blásýru eftir John Kesselving í leikstjórn
Halls Helgasonar. Verðlaunaafhending fyrir
bestu myndir í ljósmynda- og myndlistar-
keppni.
Kvennaathvarf
Opið allan sólarhringinn, simi 21205. Húsa-
skjól og aðstoö við konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir
nauðgun. Skrifstofan Hallveigarstöðum er
opin virka daga kl. 14—16, sími 23720. Póst-
gírónúmer samtakanna 4442-1, pósthólf 1486,
121 Reykjavík.
Seljaútibú
Búnaðarbankans
flytur starfsemi sína
Seljaútibú Búnaðarbankans var stofnað 11.
desember 1981. Frá upphafi hefur útibúið
verið í leiguhúsnæði að Stekkjarseli 1 í
Reykjavík en það var hugsað sem bráða-
birgðahúsnæði og rann leigutíminn út 1. nóv-
ember. Ætlunin var að byggja nýtt hús fyrir
útibúið í Seljahverfi en ekki tókst að fá hent-
uga lóð. A þessu ári var því afráöið að festa
kaup á hluta af húsi versiunarinnar Víðis i
Mjóddinni og flytur Seljaútibú nú starfsemi
sína þangað.
Otibúið annast öll innlend og erlend banka-
viðskipti og getur nú boðið næturhólf og
öryggishólf til afnota fyrir viðskiptavini.
Starfsmenn útibúsins eru nú átta talsins og
útibússtjóri er Dóra Ingvarsdóttir.
Fundir
Samhjálp kvenna
heldur fund í húsi Krabbameinsfélagsins,
Skógarhlíð 8, í dag, þriðjudaginn 12. nóvemb-
er, kl. 20.30. Gestur kvöldsins er Þórarinn
Sveinsson, yfirlæknir krabbameinslækninga-
deildar Landspítalans. Fjallar hann um þátt
f jölskyldunnar í meðferð og endurhæfingu.
Ýmislegt
Björgunarhnífurinn
Eins og fram kom í blaðinu í gær er
hafinn innflutningur á hinu magnaöa
björgunartæki „Survival” frá Toledo á
Spáni. Hér er um að ræða hníf sem hef-
ur 30 aukatæki sem miöa aö því að
menn geti komist af með þessi tæki á
sér við erfiðustu aðstæður.
Martoumboöið selur hnifinn. Aðeins
er hægt að fá hnífinn keyptan í póst-
kröfu. Martoumboöið er með sima
671190. Hnífurinn kostar 5.800 kr.
VEXTIR BANKA OG SPARISJÓÐA (%) 01 -10.11.1985
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJASÉRUSTA e I 11 II iiii II í! I S II 8. & 11 li ii
INNLAN úverðtryggð
SPARISJÓDSBÆKUR óbundin innstæða 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsocjn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0
6 mán.uppsogn 31.0 33.4 30.0 28.0 28.0 30.0 29.0 31.0 28.0
12 mán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 32.0
SPARNAOUR- LANSRÉTTURSparað*-5mán. 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25,0
29,0 26.0 23.0 29.0 28.0
innlAnsskírteini Til 6 mánaða 28.0 30,0 28.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0
INNLAN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mán. uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5 3.0
innlAn GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0
ÚTlAN úverðtryggð
ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAVlXLAR (forvextir) 32.52) kge 32.5 kge 32.5 k„« kge kge 32.5
ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
VIDSKIPTASKULDABRÉF 33.52) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 33.5
HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRATTUR 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31,5
útlAn verðtryggð
SKULDABRÉF AÖ21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
úilAn til framleiðslu
SJANEÐANMALSI)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 27,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,5%,
í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 12,75%, í vesturþýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Afmæli
Hjörtur Jónsson kaupmaður er 75 ára í
dag, 12. nóvember. Hann og kona hans
taka á móti gestum milli kl. 5 og 8 í dag
að heimili sínu, Haukanesi 18, Arnar-
nesi, Garðabæ.
Tapað -fundið
Stigi tapaðist
Tekinn var álstigi traustataki 2. eða 3. nóv-
ember við Bústaðabrú. Hafi einhver vitneskju
um hvar stiginn er verður hann 2.500 krónum
ríkari, einnig er skorað á stigamanninn aö
skila stiganum. Upplýsingar í símum 76394,
79746 eða 79931.
Vopnafjörður:
Handtekinn
grunaður um
nauðgun
Karlmaður hefur verið handtekinn á
Vopnafirði grunaður um nauögun. Bú-
ist er við að hann verði úrskurðaður í
gæsluvarðhald í dag.
Kona á þrítugsaldri kærði manninn,
sem sýslumaður Norður-Múlasýslu
lýsti sem „miðaldra”, fyrir að hafa
nauðgaö sér seint aðfaranótt sunnu-
dags.
Sýslumaður og fulltrúi hans, sem
verið hefur á Vopnafirði frá því á
sunnudag við rannsókn málsins, hafa
varist allra fregna. kmu
Lýst eftir
fanganum
— sem strauk
frá tannlækni
Fanginn, sem strauk á dögunum frá
gæslumanni sinum og komst undan
þegar hann var hjá tanniækni, er nú
eftirlýstur. Lögreglan í Reykjavík
lýsir eftir Garðari Garðarssyni refsi-
fanga sem strauk 31. október. Garðar
er 20 ára, dökkhærður, með gráblá
augu. Hann er 170 cm á hæð.
Garðar strauk með þeim hætti að
hann læsti tannlækninn og gæslumann
sinn inni á tannlæknastofunni. Tók
tannlækninn á orðinu þegar hann sagði
að aðgerð lokinni: Þú mátt fara, þetta
er búið.
Þeir sem kynnu að geta gefið upplýs-
ingar um ferðir Garðars eöa hvar hann
dvelur nú eru vinsamlega beönir að
láta lögregluna vita.
-SOS.