Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 2
2 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Forseti íslands býður Bergmanshjónin, Ingmar og Ingrid, velkomin til Bessastaða. Gestimir færðu forsetanum bókagjöf. Ingmar Bergman á íslandi: „Kann að meta frá- sagnargleði og spennu" „Ég hefði gaman af því að koma aftur til íslands og þá án allrar þess- arar viðhafnar - en þetta hefur verið sérlega ánægjulegt núna,“ sagði Ing- mar Bergman leikstjóri í viðtali við DV. Bergman er ekki mikið fyrir ferðalög. Sýning hans á Fröken Júl- íu, sem hingað kom á listahátíð og var sýnd fyrir fullu húsi þrívegis um helgina, hefur farið víða. En Berg- man hefur ekki farið með leikurum sínum nema til íslands. „Ég gat svo vel hugsað mér að fara til Islands. Það er nánast eins og að heimsækja einhvem í fjölskyldunni." Og ísland tók honum vel. Áhorfendur á öllum þremur sýningunum í Þjóðleikhús- inu fógnuðu ákaflega að leik loknum - og Bergman fullyrti að eymsl eða exem sem hann hafði á fingri hefði læknast við það eitt að dýfa hend- inni í Bláa lönið, en þar stansaði hann á Ieiðinni frá Keflavík. Kórrétt Júlía Sú uppsetning sem sænsku leikar- amir og Ingmar Bergman komu með til íslands er að því leyti sérstök að segja má að unnið hafi verið „kór- rétt“ handrit eftir eldri textum Strindbergs. „Þegar August Strind- berg skrifaði Fröken Júlíu var hann ákaflega fátækur. Hann seldi út- gáfúréttinn á 300 kr. útgefanda einum sem síðan strikaði ýmislegt út og breytti kommusetningunni. Strindberg hafði persónulega kom- musetningu sem er þýðingarmikil fyrir leikara. Nú hefur þetta verið fært í uppmnalegt horf. Éinnig tók- rnn við upp setningu sem Strindberg hafði strikað út. Það var útstrikun sem við botnuðum aldrei neitt í -- hvers vegna Strindberg hafði gert hana. Ég tel mig hins vegar hafa fundið skýringu á þessari útstrikun - og tek setninguna upp aftur. Hún gefúr verkinu nýja þýðingu." Ekki fleiri kvikmyndir Bergman hefúr sagt að Fanny og Alexander, kvikmynd hans sem hér var sýnd nýlega í sjónvarpi, hafi verið síðasta kvikmynd hans. En ertu viss um að þú gerir ekki fleiri kvikmyndir? „Já, alveg viss. Ég er hættur að filrna." - En þú hefur áður sagst ætla að hætta kvikmyndagerð - en haldið áfram. „Já, en ég hef aldrei áður hætt.“ Bergman hóf sinn feril sem leik- húsmaður. Hann varð leikhússtjóri í Hálsingborg þegar hann var 23 ára (1946). Á meðan hann gegndi því starfí byijaði hann að leikstýra kvik- myndum. Síðan hefúr hann unnið jöfnum höndum við leikhús og kvik- myndir. „En hefði ég einhvem tíma þurft að velja á milli kvikmynda og leik- húss þá hefði ég valið leikhúsið. Og nú, þegar ég er hættur kvikmynda- vinnu, fer ég glaður inn í leikhúsið. Ég hef aldrei sett upp Hamlet. Ég ætla að setja upp Hamlet í haust." Bergman hefúr sett upp Fröken Júlíu oftar en einu sinni. „Á frum- sýningunni í Stokkhólmi í vetur sátu tólf fyrrverandi Júlíur í salnum og horfðu á. Þær voru á ýmsum aldri og höfðu hver fyrir sig leikið sína sérstöku Júlíu.“ - En hvers vegna hættirðu kvik- myndaleikstjóm núna? „Ég er 68 ára. Það er erfitt að ein- beita sér lengi - maður filmar kannski átta tíma á dag í upptöku- sal, þar af fær maður þrjár mínútur - afrakstur dagsins á tjaldinu. í leik- húsinu er hins vegar langur að- dragandi við hina skapandi vinnu. Það er allt annað. Kannski kemur upp vandamál einn daginn og þá getur maður sagt: Æ, ég leysi þetta á morgun. Og maður getur verið starfssamur ellegar afskiptalítill eftir þvi hvemig stendur í bólið manns.“ Hrafn Gunnlaugsson efnileg- ur Bergman býr á F árö undan austur- strönd Svíþjóðar. Þar hefur hann breytt gamalli hlöðu í bíósal. Og sér margar myndir. „Ég sá Hrafninn flýgur - og fleiri íslenskar myndir. Ég var mjög ánægður með „Hrafn- inn“. Og Land og syni líka. Hrafn Gunnlaugsson er efhilegur - hann verður að fá tækifæri áfram. Mér skilst að hér á íslandi hafi menn ekki verið svo hrifnir af „Hrafnin- um“. En við lítum þetta sjálfsagt öðrum augum. Við kunnum að meta þessa frásagnargleði og þessa spennu." -GG Áður en Ingmar Bergman fór til íslands bað hann um að fá að snerta fomt Edduhandrit. Hér er hann í Ámagarði og snertir skinn. Slysið við Bdvatn: Náðu bflflakinu með bátsakkeri Leitin að stúlkunni, sem fórst í Eld- vatni, bar árangur um helgina er leitarmöimum tókst að ná bílflakinu upp með bátsakkeri. Flakið náðist upp um miðnættið á laugardagskvöld en þá höfðu leitarmenn gert ítrekaðar tilraunir til að krækja í flakið án ár- angurs. „Við vorum búnir að draga flakið nær bakkanum en okkur tókst ekki að fá krækjumar til að festa sig í flak- inu,“ sagði Reynir Ragnarsson, lög- reglumaður í Vík í Mýrdal, í samtali viðDV. „Við vorum komnir með kranabíl með stórum krana en krækjumar losnuðu alltaf og er við fengum kafara til að fara niður komst hann ekki til botns vegna mikils uppstreymis og hringiðu á þeim stað sem flakið var á. Kafarinn sýndi mikið áræði að fara þama niður,“ sagði Reynir. Leitarmenn tóku þá það til bragðs að setja bátsakkeri á kranann og tókst þeim að festa það í afturhluta bílflaks- ins og ná því þannig upp úr vatninu þar sem þeir bmgðu stroffúm um það og drógu á land. Stúlkan var föst í bílbeltinu í flakinu. Aðspurður hvort þeir hefðu ein- hveijar vísbendingar um með hvaða hætti slysið hefði orðið sagði Reynir að rétt áður en komið væri að brúnni væri beygja á veginum. Sýndist þeim sem stúlkan hefði misst vald á bifreið- inni í beygjunni því samkvæmt bílför- unum kæmi hún skakkt inn á brúna. Brúin sjálf hefði verið blaut og mjög hál, og bíll stúlkunnar hefði kastast milli brúarhandriðanna og síðan í gegnum annað þeirra út í vatnið. I leitinni að stúlkunni tóku þátt all- ar björgunarsveitir í Skaftafellssýsl- um, fimm talsins. Unnið var á vöktum, 20-25 manns á hverri vakt, en alls komu við sögu í leitinni tæplega 80 manns. Stúlkan sem fórst hét Karitas Ósk Bjamadóttir, fædd 30. apríl 1967. Hún átti lögheimili á Eyrarlandi í Fljóts- dalshreppi í Norður-Múlasýslu en hafði búið hjá móður sinni í Aðallandi í Reykjavík undanfama mánuði. -FRI Vatnslaus í 17 tíma Unnið við að koma saman nýrri aðalæð Vatnsveitunnar í Reykjavík á laugar- daginn en hún mun liggja töluvert neðar en hún gerði áður. DV-mynd GVA Reykjavík: Vegna endurlagningar aðalæðar Vatnsveitu Reykjavíkur var Reykja- vík kaldavatnslaus í rúmlega 17 klukkutíma yfir helgina, frá miðnætti aðfaranótt laugardagsins til kl. 19 á laugardagskvöld. „Við þurftum að endurleggja þessa aðalæð vegna gangagerðarinnar undir Miklubrautina sem stendur yfir núna. Þessi aðalæð er 24 ára og liggur u.þ.b. 48 metra fyrir sunnan Hagkaupshúsið í nýja miðbænum," sagði Jón G. Óskarsson, deildarverkfræðingur hjá Vatnsveitu Raykjavíkur, í samtali við DV. „Það var mjög misjafht eftir hverfum hvar vatnsleysið varð mest, þess varð auðvitað mest vart á hæstu stöðum, eins og Laugarásnum og í Þingholtun- um, einnig úti á Seltjamamesi. Það kom sem betur fer hvergi til vand- ræðaástands út af vatnsleysinu, við vorum búnir að tilkynna þetta með löngum fyrirvara, þannig að stærri stofnanir, eins og spítalar eða hótel, voru búnar að verða sér úti um vatn á tankbílum eða á einhvem annan hátt. Það sem hins vegar olli mestu tjóni vom flóð í húsum sem vom þann- ig tilkomin að fólk gleymdi að skrúfa fyrir krana á meðan á vatnleysinu stóð.“ Að sögn Símonar Steingrímssonar, framkvæmdastjóra tæknisviðs Rík- isspítalanna, hlutust hvergi vandræði af vatnsleysinu. Að Landspítalanum, þar sem móttaka bráðasjúklinga var, komu stórir tankbílar frá Mjólkur- samsölunni og fylltu sameiginlegt veitukerfi húsanna á Landspítalalóð- inni af vatni. „Þetta gekk því allt átakalaust, nóg vatn var á Landspítalanum og ekki þótti þörf á að fá vatn af tankbílum á hina spítalana," sagði Símon. „Þetta var hins vegar góð æfing á því hvem- ig ætti að bregðast við ef til vatnsleysis kæmi skyndilega aftur, nú höfum við a.m.k. æfinguna." -BTH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.