Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNl 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Jón L. náði öðrum stórmeistaraáfanga í Helsinki: „Erfiðasta skák sem ég hef teflt á ævinni^ - sigraði Kurt Hansen í lokaumferðinni „Þetta er rneð erfiðari skákmótum sem ég hef tekið þátt í, ég fór illa af stað en tókst undir lokin að ná mér á strik, mig dreymdi varla í byrjun um að ná svona góðum ár- angri,“ sagði Jón L. Amason í samtali við DV en hann náði öðrum áfanga að stórmeistaratitli á alþjóð- lega skákmótinu í Helsinki, sem lauk nú um helgina, með því að sigra Kurt Hansen í síðustu umferðinni. Jón var með 8 vinninga ásamt sov- éska stórmeistaranum Timoshemko og saman deila þeir efstu sætunum. Á mótinu voru 11 umferðir „Geysimikill spenningur ríkti í síð- ustu umferðunum, mér hefðu nægt tvö jafntefli í tveim síðustu umferð- unum til þess að ná þessum áfanga. í næstsíðustu umferðinni tapaði ég svo fyrir Timoshemko, þannig að ég lagði aila krafta í að vinna síðustu umferðina sem ég tefldi við Danann Kurt Hansen. Það er líklega sú erfið- asta skák sem ég hef teflt á ævinni en loks tókst mér að fella Kurt i gildru sem leyndist í stöðunni. Þá fór ég fyrst að sjá þennan sigurá- fanga í hillingum.“ Kurt Hansen frá Danmörku varð í 3. sæti á mótinu með 7 'A vinning en Norðmaðurinn Trisdalla lenti í Qórða sæti með 7 vinninga. -BTH Jón L. Árnason náði öðrum af þremur stórmeistaraáföngum á mótinu í Helsinki. Fjöldi barna tók þátt í Brekkuhlaupinu á Akureyri á laugardaginn og ekki að furða þótt þau flýttu ser i mark þvi þar beið þeirra gos og sælgæti. Akureyri: Brekkuhlaupið ’86 Jón G. Hauksson, DV, Akuieyii Hundruð bama, 14 ára og yngri, tóku þátt í Brekkuhlaupinu ’86 sem Auðun Þorsteinsson, eigandi versl- unarinnar Garðshoms á Akureyri, stóð fyrir á laugardaginn var. Hlaupið var frá Garðshomi. Gríðar- legur mannfjöldi safnaðist við versl- unina og var engu líkara en 17. júní væri kominn. Hlaupið var í nokkrum aldurs- flokkum. Sigurvegarar fengu veg- lega bikara í verðlaun en einnig fékk hver hlaupari gos og sælgæti þegar komið var í mark. Góðgæti sem rann snarlega niður í þyrsta munna. í tilefni dagsins tefldi stórmeistar- inn Jóhann Hjartarson fjöltefli meðan á hlaupinu stóð. Þar hlupu margir á sig gegn stórmeistaranum. Strokufanginn gripinn á Austfjörðum: Gafst upp mótþróalaust Strokufanginn Tryggvi Bjami Kristjánsson var handtekinn á Aust- Qörðum af lögreglunni á Eskifirði en áður hafði lögreglulið af þremur stöð- um fylgst með ferðum hans. Fanginn gafst upp án mótþróa og hann var síð- an sendur suður til Reykjavíkur í gærkvöldi, Lögreglan á Fáskrúðsfirði fékk ábendingu um fangann skömmu fyrir kl. 11 á laugardagskvöldið en þá var hann á leið frá Djúpavogi i Bronco- jeppa ásamt vinkonu sinni. „Við fórum að vegamótunum á Breiðdal og athuguðum hvort hann færi Breiðdalsheiðina eða fjarðaleið- ina. Lögreglan á Egilsstöðum var tilbúin að koma á móti honum heiðina og lögreglan á Eskifirði kom á móti honum fjarðaleiðina," sagði Steinþór Kristjánsson, lögreglumaður á Fá- skrúðsfirði, í samtali við DV. „Hann fór fjarðaleiðina og við létum hann dóla framhjá okkur en síðan var hann negldur á Reyðarflarðarveginum af lögreglunni á Eskifirði. Þetta gekk vel og án vandræða." -FRI Hafskipsmálið: Páll úr Páli Braga Kristjónssyni, einum Hafskipsmannanna, hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi og sitja nú þrír þeirra eftir. Að sögn rannsóknarlögreglunnar gengur rannsókn málsins mjög vel en Hallvarður Einvarðsson rannsóknar- gæslu lögreglustjóri sagði í samtali við DV að ekki væri reiknað með að rann- sókninni lyki fyrir 11. júní er gæslu- varðhald þeirra þriggja, sem nú sitja inni, rennur út. Tekin yrði ákvörðun um framlenginu gæsluvarðhaldsins þegar þar að kæmi. -FRI I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Vaktirnar í flugturninum Allnokkur umræða hefúr spunnist út af því atviki að tvær farþegaþotur voru næstum búnar að rekast saman yfir Austflörðum í siðustu viku. Ó- tuktarlegir og utanaðkomandi menn eru að reyna að koma sökinni á blá- saklausa flugumferðarstjóra. Búið er að taka skirteinin af sumum þeirra og verið er eltast við það i rannsóknum hverjum þetta sé að kenna. Flugmálastjóri segir að hér séu mannleg mistök á ferðinni. Hvað annað? Hélt Pétur flugmálastjóri að flugumferðarstjórar í flugturninum á Reykjavíkurvelli hefðu stýrt vélun- um viljandi og af ásettu ráði saman? Flugumferðarstjórar vinna erfitt starf. Þeir þurfa að mæta í vinnuna. Þeir þurfa að vera í vinnunni. Þeir þurfa meira að segja að sitja langar vaktir. Starfið er fólgið í því að stýra og leiðbeina flugvélum inn á flug- brautir, í líkingu við það þegar lögreglumenn þurfa að stjóma um- ferðinni þegar götuljósin bila. I loft- inu eru engin götuljós og jjess vegna er þetta stanslaust púl hjá flugum- ferðarstjórunum. Sérstaklega hlýtur þetta að vera erfitt fyrir menn, sem aldrei hafa lært neina umferðar- sfjóm af þessu tagi, eins og banda- rískur sérfræðingur hefúr bent á í merkri skýrslu. Þessi Bandaríkja- maður var fenginn til að taka saman þessa skýrslu, enda er ekki tekið mark á íslenskum skýrslum. I skýrslunni segir að menntun og þjálfun íslenskra flugumferðarstjóra sé í algjöru lágmarki. Er mikill feng- ur að því að Bandaríkjamaðurinn skyldi hafa uppgötvað þetta mennt- unarleysi sem enginn vissi um. Hann segir að allri þjálfun sé stjórnað af stéttarfélaginu og getur þess í fram- hjáhlaupi að flugumferðarstjórar ákvarði sjálfir hvenær þeir mæti til vinnu og þeir neiti að skrá sig inn eða út af vinnustað. I rauninni búi hver og einn flugumferðarstjóri til sína eigin starfsskrá og sína eigin aðferð til að stjóma flugumferðinni. Að fengnum þessum upplýsingum, sem koma íslenskum stjómvöldum greinilega í opna skjöldu, þarf enginn að vera hissa á þvi þótt flugvélar rekist stöku sinnum saman yfir ís- landi. Þar að auki er sérstakt svefn- herbergi í flugtuminum til að mennirnir á vaktinni geti lagt sig og þess vegna er augljóst mál að vakt- hafandi flugumferðarstjóri hefúr litil sem engin tök á því að vita hvar flug- vélamar em á ferðinni í Ioftinu. Ekki getur hann farið að vekja koll- ega sína eftir langan og strangan vinnudag, sem reyndar ætti lika að vera óþarfi, ef hver vinnur eftir sínu nefi. Svo þurfa þeir sjálfir að leggja sig á vaktinni og hver getur ætlast til þess að flugumferðarstjórar viti hvert vélamar em komnar á meðan þeir leggja sig? Er það ofurmenni til sem getur fylgst með flugvélum í svefni? Dagfari þekkir engan sem leyst getur þá þraut, hvað þá að ómenntaðir flugumferðarstjórar búi yfir þeim hæfileikum. Eina krafan sem sett hefur verið fram er að flug- umferðarstjóramir gangi í stéttarfé- Iagið og skilji það að kjörin em mest áríðandi, ekki flugumJFerðin. Langt og kalt stríð hefur staðið milli flugmálastjóra og flugumferð- arstjóra um kaup og kjör, sem stéttarfélagið leggur höfuðáherslu á. Þetta vita allir, flugmálastjóri manna best. Og samt, allt í einu núna, er verið að gera rekistefnu út af allt öðmm málum. Það kemur stéttarfélaginu algjörlega á óvart og er í rauninni hreinn dónaskapur að fara að pexa í flugumferðarstjóram þótt fyrir einskæra tilviljun komist upp að tvær flugvélar hafi næstum rekist saman. Eins og það komi stéttarfélaginu nokkurn skapaðan hlut við! Eða flugumferðarstjórun- um. Ef vélarnar hefðu skollið saman hefðu það verið mannleg mistök. Allir geta gert mannleg mistök. Út- lendingar, sem eru að flækjast hér yfir landinu, mega og eiga að gera sér grein fyrir að íslendingar geta týnt strimlum eins og aðrir án þess að gera veður út af því. Flugum- ferðarstjórar vilja sitt kaup og sinn hvíldartíma og engar refjar. Þeir geta ekki fylgst með flugvélum sem hafa farið á loft í vaktatíma annarra flugumferðarstjóra eða þegar báðir hafa kannski lagt sig. Útlendingar eiga ekki að fljúga yfir íslandi þegar flugumferðarstjórar leggja sig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.