Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
5
Fréttir Fréttir
Óvenjulegur sauðburður:
Lamb með átta
fætur, fjögur
eyru, eitt auga
og tvo dindla
Ein af kindunum á bænum Eyri í
Norður-Isafjarðarsýslu bar óvenju-
legu lambi í vikunni því það reyndist
vera með átta fætur, íjögur eyru, tvo
dindla en aðeins eitt auga.
Einar Guðmundsson dýralæknir á
Isaíirði, sem fékk lambið til krufiiing-
ar, sagði í samtali við DV að fæðingin
hefði í upphafi gengið eðlilega en síðan
tók smalinn á bænum eftir þvi að
óeðlilega margar lappir voru á lamb-
inu. Kindin gat ekki komið því úr sér
og varð smalinn að taka lambið í
tvennt inni í kindinni til að ná því út.
Eftir það bar svo kindin tveimur öðr-
um lömbum sem reyndust eðlileg.
„Lambið er í raun síamstvíburi, það
hefúr tvo eðlilega afturparta en frá
nafianum og framúr er það samvaxið
þannig að það hefur tvo hryggi og
tvennt af öllum helstu líffærum utan
vélinda sem er eitt og einn háls en í
honum eru hinsvegar tveir barkar.
Höfuðið er eitt og augun fjögur eru
samvaxin í eitt,“ sagði Einar.
Aðspurður sagðist hann ekki hafa
séð svona fyrirbrigði áður og það væri
óvenjulegt af síamstvíbura að vera því
þeir hefðu yfirleitt aðskilda framparta
en ekki afturparta eins og í þessu til-
Frá verðlaunaafhendingunni sem fór fram í Odda á laugardaginn. F.v.: Guð-
mundur Jónsson arkitekt, sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni, forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og Ármann Öm Ármannsson, formaður dóm-
nefndar. DV-myndir: GVA
Tónleikahús á íslandi:
„Sigurinn kom
mér þægilega
á óvart“
„Ég er auðvitað mjög ánægður með
að mín tillaga skyldi hljóta fyrstu
verðlaun, enda búinn að leggja í hana
mikla vinnu,“ sagði Guðmundur Jóns-
son arkitekt, sem hlaut fyrstu verð-
laun í samnorrænni samkeppni um
teikningu að tónlistarhúsi á fslandi
sem mun rísa á auða svæðinu við
Suðurlandsbraut, skammt fyrir vestan
Glæsibæ.
„Þar sem þetta var norræn sam-
keppni vissi ég að samkeppnin yrði
mikil því margar af stærstu arkitekta-
stofum á Norðurlöndum sýndu þessu
áhuga. Þess vegna varð ég að leggja
mig allan fram til að eiga vinnings-
von. Sigurinn kom samt þægilega á
óvart."
Guðmundur er starfandi sem arki-
tekt í Noregi en sagði að líklegt væri
að hann flyttist heim á meðan upp-
færslur á teikningunum stæðu. Lík-
lega myndu byggingarframkvæmdir
ekki hefjast fyrr en eftir tvö ár.
í þessari samnorrænu samkeppni
bárust 75 tillögur frá öllum Norðurl-
öndunum og nam verðlaunafé alls um
3 milljónum króna. Önnur verðlaun
hlutu Danimir Cristian Karlsson og
Lars Clausen en þriðju verðlaun Dan-
inn Dan Cristensen. -BTH
SAUTER ECC 600 vogarpallurinn (1000X800 mm) hefur náð miklum
vinsældum siðan hann kom á markaðinn fyrir ári. Pallurinn, sem tekur
600 kg og þolir 1000 kg, er það lágur (115 mm) að hann þarf ekki í
gryfju, en gryfja er dýr i smíðum og hefur ýmsa ókosti. Ein eða tvær
hallalitlar brautir eru tengdar við pallinn og vörunni er ekið upp á vog-
ina. Pallurinn (þyngd 91 kg) er varinn vatni og ryki samkvæmt IP65
og getur vegið með 20 g nákvæmni.
Mettler-Sauter. Frá míkrógrammi í 6 tonn.
SAUTER
Einkaumboð á íslandi,
KRISTINSSON HF.,
Langagerði 7,108 Reykjavík. Sími 30486.
l/LiLfCLiLL
Enn einu sinni hefur CASIO
tekist að framleiöa tækninýjungar á gjaf-
J^*^verdi. Med hljómboröinu PT-82 getur þú lært að
spila þekkt lög og búa til þín eigin. PT-82 sýnir med ljósi
á hvaða takka þú átt að styðja.
Alls konar hljómar, taktar og undirspil.
Mikið úrval hljómborða frá kr. 2.800,-
UMBOÐIÐ, BANKASTRÆTI, SIMI 27510