Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 6
6
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
Peningamarkaöur
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
íyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn-
stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74
ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri
með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru
verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjömu reiknihgar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtiyggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán-
uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á
óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13%
nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtyn á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið-
réttingu.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og
15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8%
ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt-
um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á
hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk
1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út
tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess
að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06.
og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings
reynist húr, betri. Af hverri úttekt dragast
0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
100 ára afmælisreikningur er verðtryggð-
ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25%
og breytast ekki á meðan reikningurinn verð-
ur í gildi.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8,
50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6
mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir
18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6
mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún
um hávaxtareikninginn.
18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir
og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða
verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum
sé hún betri. Samanburður er gerður mánað-
arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út
af reikningnum gilda almennir sparisjóðs-
vextir, 8‘X,, þann mánuð.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn.lÞá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð e$a aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næst^ heila
ársQórðung. Vextir færast fjórum sinnum á
ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf
lausir til útborgunar.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með
13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist
trompvextir gefa.betri ávöxtun er þeim mun
bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður
innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél-
stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði,
óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir
eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er
því einnig 15,5%.
18 mánaða reikmngar. Nokkrir stærri
sparisjóðanna eru með innstæðu búndna
óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn-
vöxtum og 15,2% ársávöxtun.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem
eru 50 þúsund að nafnverði.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með
þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög-
urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur,
vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól
við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14
ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun
er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni
og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert.
Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð-
stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára.
Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til-
tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku
marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%.
Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í
einu lagi við innlausn.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða
óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum.
Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er
almennt 12 16% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til
einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna
fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema
á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 391 þúsund krónur til einstakl-
ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna
fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu
kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns-
tími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir. eru í landinu. Hver
sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 -42
ár. -
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað-
ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir
reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári
verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður
þá hærri en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma-
bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því
10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu
dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún
getur jafnvel orðið neikvæð.
Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á
10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft-
ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur
og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni
6 mánuðina. A endanum verður innstæðan
því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á
mánuði eða 27% á ári.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig
en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl.
Miðað er við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986
er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924
stig á grunni 100 frá 1975.
Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04.
en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi
vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar
sem við hana er miðað sérstaklega í samning-
um leigusala og leigjenda.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 .-10.06. 1986
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ) | j SJA SÉRLISTA . r 11 | j IlÍISIf! ll II il ít
INNLÁN úverðtryggð
SPARISJÓSSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10.0
6 mán. uppsógn 12.5
12 mán.uppsögn 14.0
SPARNAÐUR - LANSRÉTTURSparað 3-5 mán. 13.0
Sp. 6mán.ogm. 13,0
TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 6.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ Hlaupareikningar 4.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán.uppsögn 1.0
INNLÁN GENGISTRYGGQ 6 mán. uppsögn 3.5
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadollarar 7.0
Sterlíngspund 11.5
Vestur-þýsk mörk 4,0
ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGO Danskar krónur 7,5
ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15.25
VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir)
ALMENN SKULDABRÉF 2) VIDSKIPTASKULDABRÉF3) 15,5
HLAUPAREIKNINGAR ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ YFIRDRÁTTUR 9.0
SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJA NEÐANMÁLS1) Lengri en 21/2 ár 5.0
8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0
10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0
12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0
14.0 11.0 12.6 12,0
13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0
13,0 9.0 11.0 10.0 10.0
6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0
3.0 2.5 3.0 4.0 4,0 3.0 3.0 3.0
1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0
3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0
7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25
11.5 9.5 9.0 9.0 10.0 10.0 11.5 9.5
4.0 3,5 3.5 3.5 3,5 3,5 3.5 3.5
7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0
15,25 15.25 15.25 15.25 15,25 15,25 15.25 15,25
kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge
15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5
kge 20.0 kge 20,0 kge kge kge kge
9.0 9.0 9.0 7,0 9.0 9.0 9.0 9.0
4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4>0 4.0 4.0
5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn-
ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur-
þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er
2%, bæði á verðtiyggð og óverðtryggð lán. 3)Við kaup á viðskiptavíxlum og
viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá
þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum.
Selfoss:
Ársalir heitir hin nýja þjonustubygging sem tekin hefur verið að hluta í notkun á Selfossi.
Viðskipti Viðskipti Viðskipti
Fullkomin þjónustu-
Kristján Einarssan, DV Selfcssi;
Ný og myndarleg þjónustumiðstöð
hefur verið vígð á Selfossi. Innan
hennar er félagsheimili, hótel og ýmiss
konar önnur þjónustustarfsemi. Bygg-
ingin er um 7 þúsund fermetrar að
stærð og er eigandi hennar og fjár-
mögnunaraðili Selfossbær.
I fyrri áfanga hússins, sem vígður
hefur verið, eru 20 hótelherbergi, þrír
veitinga- og ráðstefnusalir, stórt and-
dyri og gestamóttaka. Einnig umferð-
armiðstöð, snyrtistofa, hárgreiðslu-
stofa, minjagripa- og gjafavöruverslun,
gleraugnaverslun og h'till veitinga-
staður.
I seinni áfanga hússins verður 400
manna leikhús, bíó og ráðstefhusafyir.
Einnig aðstaða fyrir hin ýmsu félaga-
samtök í bænum á 2. og 3. hæð hússins.
Samvinnuferðir/Landsýn munu reka
hótel- og veitingastarfsemina í húsinu.
Sérleyfisbílar Selfoss munu annast
Margt góðra gesta var við vígsluna.
rekstur umferðarmiðstöðvarinnar og
ýmsir einkaaðilar munu svo sjá um
DV-myndir Kristján
aðrar áðurtaldar þjónustugreinar sem
reknar verða í húsinu.
DV-mynd PK.
Uvegsbankinn springur
Útvegsbankinn við Lækjartorg hefur sprengt utan af sér núverandi húsnæði. Veggur, sem skilið hefur bankann frá
skrifstofuhúsnæði á 6. hæð í Austurstræti 17, hefur nú verið rifinn niður og þar hyggst bankinn hreiðra um sig.
„Það eru þrengsli er valda þessu. Okkur vantaði einfaldlega skrifstofuhúsnæði," sagði ísak Örn Hringsson, skrifstofu-
stjóri bankans, í samtali við DV. -EIR