Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 6
6 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. Peningamarkaöur Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru íyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjömu reiknihgar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtiyggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán- uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtyn á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið- réttingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og 15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxt- um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist húr, betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8, 50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir 18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé hún betri. Samanburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir, 8‘X,, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn.lÞá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð e$a aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næst^ heila ársQórðung. Vextir færast fjórum sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með 13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa.betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er því einnig 15,5%. 18 mánaða reikmngar. Nokkrir stærri sparisjóðanna eru með innstæðu búndna óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn- vöxtum og 15,2% ársávöxtun. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hveiju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfm eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er almennt 12 16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna, 2 4 manna fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstakl- ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns- tími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir. eru í landinu. Hver sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15 -42 ár. - Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónumar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. A endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986 er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924 stig á grunni 100 frá 1975. Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04. en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samning- um leigusala og leigjenda. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 01 .-10.06. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM ) | j SJA SÉRLISTA . r 11 | j IlÍISIf! ll II il ít INNLÁN úverðtryggð SPARISJÓSSBÆKUR Úbundin innstæða 9.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 10.0 6 mán. uppsógn 12.5 12 mán.uppsögn 14.0 SPARNAÐUR - LANSRÉTTURSparað 3-5 mán. 13.0 Sp. 6mán.ogm. 13,0 TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 6.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ Hlaupareikningar 4.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán.uppsögn 1.0 INNLÁN GENGISTRYGGQ 6 mán. uppsögn 3.5 GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadollarar 7.0 Sterlíngspund 11.5 Vestur-þýsk mörk 4,0 ÚTLÁN ÚVERÐTRYGGO Danskar krónur 7,5 ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15.25 VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) ALMENN SKULDABRÉF 2) VIDSKIPTASKULDABRÉF3) 15,5 HLAUPAREIKNINGAR ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ YFIRDRÁTTUR 9.0 SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJA NEÐANMÁLS1) Lengri en 21/2 ár 5.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0 14.0 11.0 12.6 12,0 13.0 8.5 10.0 8.0 9.0 10.0 9.0 13,0 9.0 11.0 10.0 10.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4,0 3.0 3.0 3.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25 11.5 9.5 9.0 9.0 10.0 10.0 11.5 9.5 4.0 3,5 3.5 3.5 3,5 3,5 3.5 3.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0 15,25 15.25 15.25 15.25 15,25 15,25 15.25 15,25 kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kge 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15,5 15.5 kge 20.0 kge 20,0 kge kge kge kge 9.0 9.0 9.0 7,0 9.0 9.0 9.0 9.0 4,0 4.0 4.0 4.0 4.0 4>0 4.0 4.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn- ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur- þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á verðtiyggð og óverðtryggð lán. 3)Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. Selfoss: Ársalir heitir hin nýja þjonustubygging sem tekin hefur verið að hluta í notkun á Selfossi. Viðskipti Viðskipti Viðskipti Fullkomin þjónustu- Kristján Einarssan, DV Selfcssi; Ný og myndarleg þjónustumiðstöð hefur verið vígð á Selfossi. Innan hennar er félagsheimili, hótel og ýmiss konar önnur þjónustustarfsemi. Bygg- ingin er um 7 þúsund fermetrar að stærð og er eigandi hennar og fjár- mögnunaraðili Selfossbær. I fyrri áfanga hússins, sem vígður hefur verið, eru 20 hótelherbergi, þrír veitinga- og ráðstefnusalir, stórt and- dyri og gestamóttaka. Einnig umferð- armiðstöð, snyrtistofa, hárgreiðslu- stofa, minjagripa- og gjafavöruverslun, gleraugnaverslun og h'till veitinga- staður. I seinni áfanga hússins verður 400 manna leikhús, bíó og ráðstefhusafyir. Einnig aðstaða fyrir hin ýmsu félaga- samtök í bænum á 2. og 3. hæð hússins. Samvinnuferðir/Landsýn munu reka hótel- og veitingastarfsemina í húsinu. Sérleyfisbílar Selfoss munu annast Margt góðra gesta var við vígsluna. rekstur umferðarmiðstöðvarinnar og ýmsir einkaaðilar munu svo sjá um DV-myndir Kristján aðrar áðurtaldar þjónustugreinar sem reknar verða í húsinu. DV-mynd PK. Uvegsbankinn springur Útvegsbankinn við Lækjartorg hefur sprengt utan af sér núverandi húsnæði. Veggur, sem skilið hefur bankann frá skrifstofuhúsnæði á 6. hæð í Austurstræti 17, hefur nú verið rifinn niður og þar hyggst bankinn hreiðra um sig. „Það eru þrengsli er valda þessu. Okkur vantaði einfaldlega skrifstofuhúsnæði," sagði ísak Örn Hringsson, skrifstofu- stjóri bankans, í samtali við DV. -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.