Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Page 7
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
7
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Iðnlánasjoður:
410 milljónir til
fjárfestingalána
Á síðastliðnu ári veitti Iðnþróun-
arsjóður 410 milljóna króna fjárfest-
ingalán til iðnfyrirtækja. Þar af
námu lán til matvælaiðnaðar 76
milljónum króna, til plastiðnaðar 65
milljónum króna og til veíja- og
prjónaiðnaðar 49 milljónum króna.
Eftirspum eftir lánsfé fór vaxandi
fyrri hluta ársins, miðað við árið á
undan, en nokkuð dró úr eftirspum
þegar leið á árið. Útistandandi lán
sjóðsins námu í árslok 1.557 milljón-
um króna. Þau em að mestu fjár-
mögnuð með eigin fé sjóðsins sem
nam 1.463 milljónum króna í árslok
1985.
Sex milljónum var varið til styrkja
í fyrra, m.a. til Iðntæknistofnunar
vegna verkefhisins_„Ný tækni í iðn-
aði“ en megintilgangur þess er að
stuðla að aukinni sjálfvirkni í iðnaði
með tölvustýringu.
Á stjómarfundi Iðnþróunarsjóðs
fyrir skömmu var ákveðið að lýmka
verksvið og útlánareglur, einkum
hvað varðar áhættufjármögnun. Til
greina kemur að veita áhættulán til
fjárfestinga, þegar hefðbundnar
tryggingar skortir, gegn hlutdeild í
væntanlegum arði fjárfestingarinn-
ar.
Einnig var ákveðið að lánveitingar
miðist við fleiri gjaldmiðla en banda-
ríska dali eingöngu eins og verið
hefur.
-KB
A met-
hraða til
London
Hraðamet var sett á flugleiðinni
milli Keflavíkurflugvallar og He-
athrowflugvallar við London.
Flugleiðaþotan Heimfari, sem er
Boeing 727-100, flaug á milli flug-
vallanna á tveimur klukkustund-
um og tveimur mínútum.
Sæmundur Guðvinsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, sagði að vindar
í háloftum hefðu verið óvenju-
hagstæðir. Yfirleitt væri flug-
tíminn tvær klukkustundir og 45
mínútur.
Um borð í flugvélinni vom 79
farþegar. Flugstjóri var Geir Garð-
arsson.
-KMU
Þessir vöktu feiknaathygli þegar þeir komu róandi á fólksbil. DV-mynd Ægir
Sjómannadagurinn á Fáskrúðsfirði:
Plankaslagur
og kappróður
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúösfirði;
Skemmtidagskrá sjómannadagsins á
Fáskrúðsfirði hófst kl. 9 f.h. með hóp-
siglingu, síðan var skrúðganga til
kirkju þar sem sóknarpresturinn flutti
sjómannamessu. Eftir hádegi var
skemmtidagskrá við höfhina, þar flutti
Skafti Skúlason stýrimaður ræðu
dagsins, Karlakór Fljótsdalshéraðs
söng undir stjóm Áma Isleife og keppt
var í plankaslag, sem var eitt vinsæl-
asta skemmtiatriði dagsins, einnig var
keppt i kappróðri. I sveit 20 ára og
yngri sigraði sveit salthússins og hlaut
að launum glæsilegan bikar sem hjón-
in Sigríður Jónsdóttir og Kári Jónsson
gáfu til minningar um son sinn, Val-
þór, en róðrarsveit Kára Jónssonar
hefur nánast verið ósigrandi á undan-
fömum árum og hefur unnið til eignar
a.m.k. 3 bikara. í kvennaflokki sigraði
sveit Leiknis og sveit Ljósafells sigraði
í flokki 20 ára og eldri.
Mikla kátínu vöktu tveir ungir
menn sem komu róandi á Fólksvagen
bjöllu sem þeir höfðu þétt sérstaklega
fyrir þessa ferð en eitthvað lak nú
samt inn því þeir þurftu eitthvað að
ausa úr fleyinu. Slysavamadeildin
Hafdís sá síðan um kaffiveitingar í
Skrúð, og um kl. 16 hófúst skemmti-
atriði á skólavellinum. Um kvöldið var
dansleikur í Skrúð, þar lék hljómsveit-
in Upplyfting fyrir dansi en hún hefur
leikið hér á sjómannadansleikjum
mörg undanfarin ár við miklar vin-
sældir gesta. Kynnir skemmtunarinn-
ar var Guðný Þorvaldsdóttir en
Verkalýðs- og sjómannafélag Fá-
skrúðsfjarðar sá um undirbúning.
Vöruskiptin við útlönd:
Mun hagstæðari en í fyrra
Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 13.253 millj-
ónir króna en inn fyrir 11.509 milljónir
- fob. Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu
fjóra mánuði ársins var því hagstæður
um 1.744 milljónir króna, en á sama
tíma í fyrra var 516 milljón kr. halli á
vöruskiptunum við útlönd, reiknað á
sama gengi.
í aprílmánuði voru fluttar út vörur
fyrir 4.618 milljónir króna en inn fyrir
3.292 milljónir - fob. Vöruskiptajöfh-
uðurinn í apríl var því hagstæður um
1.325 milljónir en í sama mánuði í fyrra
var afgangur á vöruskiptunum við
útlönd sem nam 416 milljónum á sama
gengi.
Sjávarafurðir voru um þrír fjórðu
hlutar alls útflutnings fyrstu fjóra
mánuði ársins, 18% meira en á sama
tíma í fyrra. Útflutningur á áli var 11%
meiri en í fyrra og á kísiljámi 2%
meiri. Útflutningsverðmæti annarrar
vöru var loks 13% meira en í fyrra.
-KB
Opið virka daga kl. 10-18, föstudaga 10-19,
laugardaga 10-16.
FATALAGERINN er venjuleg versl-
un að öllu leyti nema því að
vörurnar eru allar fengnar MILLI-
LIÐ ALAUST beint frá verksmiðjum.
Dæmi um verð:
Dömu-jogginggallar, kr.
1.290-1.350
Herra-jogginggallar, kr. 1.090
Dömujakkar, kr. 1.450-2.350
Herrajakkar, kr. 990-1.795
Gallabuxur, kr. 990
Kakibuxur, kr. 990-1.150
Terylenebuxur, kr. 1.690
Dömubuxur, kr. 990-1.670, allir
litir
Samfestingar, kr. 1.090-2.990
Herraskyrtur, kr. 590-1.890
Bolir, kr. 240-370
Dömupeysur, kr. 450-1.190
Herrapeysur, kr. 395-990
Það eitt gerir FATALAGERINN að
óvenjulegri verslun.
Ef þú telur þig hafa lág laun þá
skalt þú athuga vörur og verð á
FATALAGERNUM.
Þar getur þú drýgt tekjurnar.
Smiðjuvegi 4e, c-götu Símar
á horni Skemmuvegar. 79866 og 79494.
Mánagötu 1, ísafirði
Hafnarstræti, Akureyri
Stóragarði 7, Húsavík
Egilsbraut 7, Neskaupstað
SENDUM í PÓSTKRÖFU
BEfflDQRM
íslenskir fararstjórar og fjölbreyttar
skemmti- og skoðunarferðir.
Brottfarardagar og okkar ótrúlega hagstæöa verð 16. mai 9. okt. 5.júni 26.júni 18. sept. 17. júlí 7. ágúst 28. ágúst
2 í smáibúð, 3 vikur 20.469,- 24.640,- 26.780,-
Hótel með morgunverði
og kvöldverðarhlað-
borði 29.690,- 33.840,- 36.240,-
COSTAdel SOL
Beint flug í sólina
NYTT!
Spánn - flug
og bill, 3 vikur
26. júní - kr. 17.800,-
1 Brottfarardagar og okkar ótrúlega hagstæða verð 16. maí 9. okt. 5.júni 26. júni 18. sept. 17. júli 7.ágúst 28. ágúst
ibúðahótel xxx 2 i íbóð, 3 vikur 24.800 27.900 30.900
Hótel xxx með morgunverði 27.200 30.700 31.900
íbúðir og hótel á eftirsóttustu stöðunum.
Ennfremúr leiguflug á þriggja vikna fresti til annarra eftirsóttra sólskinsstaða.l
MALLORCA - COSTA BRATA