Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 8
8 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. „Sem martröð fyrir sérhvem gyðing ‘ - segir ísraelskur ráðherra um sigur Waldheims í Austumki Kurt Waldheim, fyrrum aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, vann öruggan sigur í síðari umferð austurrísku forsetakosninganna er fram fóru í gær. Hlaut Waldheim rúm 54 prósent atkvæða en mótframbjóðandi hans, Kurt Steyrer, frambjóðandi sósíal- ista, hlaut 46 prósent. Alvarlegar ásakanir samtaka gyð- inga og annarra víða um heim um meinta aðild Waldheims að stríðs- glæpum nasista í síðari heimsstyrj- öld, og að hann hafi reynt að hylma yfir fortíð sína á þeim árum er hann gegndi herþjónustu í þýska hemum á stríðsárunum í Júgóslavíu settu ómældan svip á kosningabaráttuna í Austurríki. Öruggur sigur Ásakanir erléndis frá um aðild að naSistastríðsglæpum virðast lítil áhrif hafa haft á austurríska kjós- endur er flykktust í kjörklefana í gær og völdu Waldheim til forseta- embættis næstu fjögur árin. Skoðanakannanir hofðu flestar spáð Waldheim ömggum sigri fyrir kjördag, og er leið á gærdaginn stað- festu tölvuspár niðurstöður skoð- ánakannana. Mótffambjóðandinn Kurt Steyrer, lýsti sig svo sigraðan um þær mund- ir er kjörstöðum var lokað í Austur- ríki, og eftir að fyrstu tölvuspár höfðu birst. Eftir að hafa viðurkennt ósigurinn og lýst yfir óánægju sinni með úrslit kosninganna gagnrýndi Steyrer þró- un kosningabaráttunnar er hann sagði hafa einkennst af ásökunum gegn Waldheim en ekki um málefhi tengd embætti forsetans. Kosningaúrslitin í gær em einnig talin meiri háttar ósigur fyrir ríkis- stjómarflokk austurrískra sósíalista er verið hefur við völd í landinu síð- astliðin 16 ár. Sósíalistar studdu Steyrer í kosningunum, á meðan Kristilegir demókratar og aðrir flokkar hægri manna studdu Wald- heim. Hægri flokkamir telja sig nú eiga vemlega möguleika á að komast til valda í Austurríki eftir þingkosning- ar sem boðað hefur verið til i apríl á næsta ári. Það vom ekki liðnir margir klukkutímar ffá því að sigur Wald- heim var staðfestur er viðbrögð við kosningaúrslitum tóku að berast víða að. „Martröð gyðinga" Haft var eftir i'sraelskum ráðherra að kosning Waldheims væri „mar- tröð fyrir sérhvem gyðing". Samtök gyðinga um heim allan vom einnig fljót að láta til sín heyra og var kosn- ing Waldheim þar einróma fordæmd. Waldheim sjálfur fagnaði sigri í beinni sjónvarpsútsendingu í aust- urn'ska sjónvarpinu í gærkvöldi. Aðspurður um mikla gagnrýni er- lendis ffá vegna kosningaúrslitanna sagðist forsetinn tilvonandi hafa fengið þúsundir bréfa ffá stuðnings- mönnum víðs vegar um heim á undanfömum vikum þar sem lýst er yfir eindregnum stuðningi við hann og kvaðst engar áhyggjur hafa af því að fara á milli landa í framtíð- inni sem forseti Austurríkis. Waldheim veifar hér sigri hrósandi á meðal sfuðningsmanna i aðalstöðvum kosningabaráttu sinnar í Vínarborg eftir að sigur hans i austurrisku forseta- kosningunum hafði verið staðfestur síðdegis í gær. Símamynd: Reuters. Útlönd Utlönd Utlönd Utlönd Skútukapp yfir Atlants- hafið Það vom alls 49 seglbátar af ýmsum stærðum og gerðum er lögðu úr höfh í gær frá ensku hafn- arborginni Plymouth í mikla kappsiglingu yfir Atlantshaf til borgarinnar Newport í Rhode Is- land í Bandaríkjunum og aftur til baka. Núverandi hraðamet seglskútu á leiðinni milli Plymouth og New- port er fjórtán dagar, þrettán klukkutímar og fimmtíu og fjórar mínútur. Skipuleggjendur keppninnar sögðust í gær bjartsýnir á að hraðametið yrði slegið, en það var sett árið 1981 af bresku sigling- aköppunum Chay Blyth og Rob James. Karpov efstur í Bugojno Anatoly Karpov, fyrrverandi heimsmeistari í skák, tók um helg- ina forystu í alþjóðlega skákmót- inu í Bugojno í Júgóslaviu, er biðskákir vom tefldar. Karpov, sem mætir Gary Ka- sparov í keppni um heimsmeistara- titilinn í lok júlí, náði í einn og hálfan vinning úr tveimur bið- skákum, sem hann átti. Hann gerði fyrst jafhtefli gegn Tony Miles frá Englandi eins og búist hafði verið við. Þvi næst gerði hann sér lítið fyrir og sigrað- iu Hollendinginn, Jan Timman, eftir 70 leiki. Leyniþjónusta Chile að baki Palme morði? Gunnlaugur A Jónssan, DV Lundi: Frétt enska blaðsins Observer um að það hafi verið Pinoehet stjómin í Chile sem stóð á bak við morðið á Olof Palme hefur að vonum vakið mikla athygli í Svíþjóð. Mörg sænsku dagblaðanna fjölluðu í gær og í morg- un mjög ítarlega um þennan mögu- leika. Observer haíði það eftir „háttsettri heimild innan sænsku rík- isstjórnarinnar" að Chilestjóm stæði á bak við morðið. Eitt sænsku dagblaðanna skrifaði í leiðara í morgun að svo virtist sem sænska ríkisstjómin væri með sér- stakan „leka“ til að búa sænsku þjóðina undir ný og óhugnanleg tíð- indi af Palme morðinu. Sænska rannsóknarlögreglan hefur lítið viljað tjá sig um málið. Leif Hallberg, tals- maður lögreglunnar, segir þó að fréttin sé að minnsta kosti ekki frá lögreglunni komin. „Við útilokum engan möguleika en teljum þó enn lík- legt að það séu innlendir aðilar sem standi að baki morðinu. Það em eink- um fimm nöfh sem athyglin beinist nú að.“ Samkvæmt frétt Observer á atvinnu- morðinginn, Michael Townley, að hafa undirbúið morðið á Palme. Tow- nley þessi er bandarískur hægrisinn- aður öfgamaður, sem ekki getur þó sjálfúr hafa verið viðstaddur morðið þar sem hann situr um þessar mundir i fangelsi í Bandaríkjunum fyrir morð sem hann stóð bak við 1976. Er hann játaði það morð skýrði hann frá því að chileanska leyniþjónustan hefði þrívegis falið sér að myrða Palme. Palme sjálfur vissi að nafri hans var á dauðalista leyniþjón- ustunnar. „Það hef ég vitað í mörg ár,“ sagði Palme í samtali við Ex- pressen í janúarmánuði 1979. Kjarnorkumótmælendur Ásgeir Eggensscm, DV Miinciten Um áttatiu þúsund manns tóku þátt í mótmælum gegn kjamorku víðs veg- ar í Þýskalandi um helgina. Flestir, eða um þrjátíu þúsund, komu saman við kjamorkuverið, Brokdorf, hjá Hamborg. Mótmæltu þeir fyrir- hugaðri gangsetningu kjamorkuvers- ins. Nokkrum skugga sló á mótmælin, er öfgasinnaðir mótmælendur köstuðu Mólotov-kokkteilum, sem kveiktu í lögreglubílum. Þúsundir söfriuðust einnig saman við byggingarsvæði fyrirhugaðrar endumýtingarstöðvar kjamorkuúr- gangs í Wackersdorf hjá Regensburg. Þar höfðu yfirvöld bannað öll mót- mæli. Eftir að mótmælin þar höfðu farið friðsamlega fram kom til nokkurra átaka, er kveikt var í einum af bílum lögreglunnar. Lögreglan svaraði her- skáum mótmælendum með því að sprauta á þá vatni sem innihélt erting- argasið CS, sem veldur útbrotum og öndunarerfiðleikum. Ólæti hafa að undanfömu átt sér stað vikulega í Wackersdorf og hafa yfirvöld orðað það að beita gúmmíkúlum ef svo held- ur áfram. Sænskir enn í kafbátaleK Gunnlaugur A Jónssan, DV, Lundú „Þatta er í fyrsta sinn sem við höfum varpað djúpsprengjum án viðvörunar og það er í samræmi við nýja og harð- ari stefiiu okkar við kafbátaleit," segir Bengt Lehander, liðsforingi í sænska sjóhemum, sem hefur um helgina stjómað leit að kafbáti við norður skerjagarðinn við Stokkhólm. Sjóar- inn taldi sig hafa ömgga vitneskju um að óþekktur kafbátur héldi sig innan skerjagarðsins. Hvorki djúpsprengj- umar né aðrar aðgerðir sænska sjóhersins hafa þó enn sem komið er borið árangur. Expressen hefur það eftir ónafhgreindri heimild innan hersins að þar séu menn orðnir mjög vondaufir um að hafa hendur í hári kafbátsins. Leit sænska sjóhersins að kafbáti í sænska skerjagarðinum utan Stokkhólms hefur enn engan árangur borið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.