Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Blaðsíða 9
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. 9 Utlönd Utlönd Gorbatsév í Búdapest Tekið var á móti Gorbatsév Sovét- leiðtoga með pomp og prakt í Búda- pest, höfuðborg Ungverjalands, í gær er hann kom þangað til viðræðna við þarlenda ráðamenn auk þess að að vera viðstaddur leiðtogafund ríkja Varsjárbandalagsins er hefst í Búda- pest í vikunni. Fréttaskýrendur telja að móttökuat- höfnin á Ferigheri flugvellinum í Búdapest hafi fremur einkennst af lát- leysi en miklum skrautsýningum er löngum hafa tíðkast við opinberar heimsóknir valdamanna í ríkjum Austur-Evrópu. Búist er við að aukin verslun ríkj- anna verði efst á baugi í viðræðum Gorbatsévs við Kadar leiðtoga Ung- veijalands, auk þess sem vitað er að Sovétmenn telja sig ýmislegt geta lært af Ungverjum á sviði efiiahagsmála. Hafa Ungverjar riðið á vaðið á meðal ríkja Austur-Evrópu með tilraunum sínum með takmarkaðan einkarekstur í efnahagslífi er gefist hafa vel. Áhyggjur ráða- manna Efna- hagsbandalagsins Ríki Efnahagsbandalags Evrópu hafa nú síauknar áhyggjur af versn- andi sambúð við Bandaríkin og djúpum ágreiningi Efnahagsbanda- lagsríkjanna og Bandaríkjastjómar í ýmsum mikilvægum málaflokkum. komulag stórveldanna hefúr verið sá málaflokkur er valdið hefur hvað mestum áhyggjum á meðal ráðamanna Efhahagsbandalagsins er óttast nú að vígbúnaðarkapphlaup stórveldanna færist enn í aukana. SUMARBUSTAÐURINN BIÐUR eftir húsgögnum frá okkur. Við framleiðum létt, þœgileg og ódýr húsgögn í sumarbústaði. ■ V-' - Rúm í svefnherbergið. Sófa í setuhornið. Borð og stóla í eldhúskrókinn. Málaður eða ómálaður viður. FURUHÚSGÖGN Smiðshöfða 13 Sími (91) 68 51 80 Utanríkisráðherrar Efhahagsbanda- lagsins samþykktu á fundi sínum í Hollandi nýverið að leggja aukna áherslu á leiðir er bætt gætu samskipt- in við Bandaríkin. Nýleg ákvörðun Bandaríkjastjómar um að hætta að virða SALT 2 sam- Kenna Suður- Afríku um skipaárás Sovétmenn hafa harðlega for- dæmt Suður-Afríku fyrir árás sjóhers Suður-Afríku á angólsku hafharborgina Namibe síðastlið- inn fimmtudag. Sovétmenn segja að í árásinni hafi óvopnuðu flutningaskipi frá Kúbu verið sökkt og miklar skemmdir orðið á flutningaskipi frá Sovétríkjunum er unnið var við að afferma er árásin var gerð. í frétt sovésku Tass fréttastof- unnar segir ennfremur að Banda- ríkin séu á beinan hátt áhyrg fyrir árásarstefnu Suður-Afríkustjómar vegna áframhaldandi efhahags- stuðnings síns við landið. Umsjón: Ólafur Arnarson og Hannes Heimisson Húsbyggjendur og verktakar - sparið peninga! • Þið sendið okkur teikninguna og við sendum öll gögn um hæl - ykkur að kostnaðarlausu. • Við sjáum um flutningsskjöl og tollpappíra. • Margir flutningsmöguleikar. • Við flytjum vöruna hvert sem er á íslandi. • Hjá okkur starfar íslenskur forstjóri. Spyrjið um Níels Jón Þórðarson. • Biðjið um tilboð - berið saman - sjáið hvað unnt er að spara! Það er dýrt að byggja, um það eru allir sammála. Því er mikilsvert að spara peninga þar sem þvi verður við komið. Fyrirtækið Nord-Skand er þekkt á öllum Norðurlöndum vegna flutninga þess á byggingavörum frá verksmiðjum beint til kaupanda. Fyrirtækið útvegar og flytur timbur, glugga, hurðir, plötur, innréttingar og einangr- un. Postboks 297,9501 Alta aóeins einn banki býóur StftmaA REIKNING SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.