Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Qupperneq 12
12 DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986. FRÁ HÚNAVALLASKÓLA A/HÚN Skólanefnd skólans auglýsir stöðu skólastjóra lausa til umsóknar. Ennfremur 2-3 kennarastöður. Kennslugreinar: danska, stærðfræði/eðlisfræði, mynd- mennt/smíðar og almenn kennsla yngri bekkja. Þá er auglýst staða sérkennara. Vinnuaðstaða og aðbúnaður er mjög góður á Húna- völlum. Nánari upplýsingar veita formaður skólanefndar í síma 95-4420 og skólastjóri í símum 95-4370 eða 95- 4313. TIL VESTFJARÐA? Já, hvers vegna ekki? Kennarar, athugið. Á Vestfjörðum eru tæplega 2000 nemendur á grunnskólastigi í 23 skólum. Okkur vantar enn kennara í marga þeirra. Starfslið fræðsluskrifstofunnar veitir ráðgjöf og ýmsa aðstoð en þarstarfa aukfræðslustjóra, rekstrarfulltrúi, sálfræð- ingur og sérkennslufulltrúi. Samvinna er við leið- beinendur í íslensku og stærðfræði. Gagnasafn er hér ásamt útibúi frá námsgagnastofnun með fræðsluefni á myndböndum. Meðal fríðinda, sem sveitarfélög hér bjóða umfram kjarasamninga, er ódýr húsaleiga, flutningsstyrkur og kaupuppbót. Hringdu til okkar í síma 94-3855 eða beint til viðkomandi skólastjóra og leitaðu upplýsinga. Sérstaklega óskast sérkennarar, tónmenntakennarar og myndlistarkennarar. Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis, Pétur Bjarnason. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Ytirlæknir í líffærameinafræði óskast við Rannsóknar- stofu Háskólans' í meinafræði. Yfirlæknirinn skal taka þátt í daglegum þjónustustörfum og annast verkstjórn í líffærameinafræði í samræmi við stjórnkerfi ríkisspítala. Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna sendist stjórn- arnefnd ríkisspítala fyrir 15. júlí nk. Upplýsingar veitir forstöðumaður Rannsóknastofu Há- skólans í meinafræði í síma 29000. Félagsráðgjafi óskast við Geðdeild Barnaspítala Hrings- ins við Dalbraut frá 1. ágúst nk. Nokkur starfsreynsla eða sérhæfing á sviði geðheilbrigðisþjónustu æskileg. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist stjórnar- nefnd ríkisspítala fyrir 7. júlí nk. Upplýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi deildarinnar í síma 84611. Ljósmóðir óskast á vökudeild Barnaspítala Hringsins. Fóstrur óskast við Barnaspítala Hringsins frá 1. septemb- er nk. Hjúkrunarfræðingar óskast til fastra starfa og til sumaraf- leysinga nú þegareða eftirsamkomulagi við Barnaspítala Hringsins, legudeildir og vökudeild. Fastar næturvaktir koma til greina. Athugið að hærra kaup er greitt á nætur- vöktum. Röntgentæknar óskast við röntgendeild og krabbameins- lækningadeild Landspítalans. Sjúkraliðar óskast til sumarafleysinga á kvennadeild Landspítalans, ýmsar deildir. Föst kvöld- og/eða nætur- vinna kemur til greina. Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarforstjóri Landspítalans í síma 29000. Skrifstofumaður óskast til afleysinga nú þegar fram til 23. ágúst nk. til starfa við stenslavél Landspítalans. Nokk- ur vélritunarkunnátta æskileg. Upplýsingar veitir verkstjóri vakt- og flutningadeildar Landspítalans í síma 29000. Reykjavík, 9. júní 1986. Neytendur Neytendur Neytendur Heimilisbókhaldið: 12% lækkun í aprílmánuði Þá hafa okkur borist seðlar frá öllum sem tóku þátt í aprílbókhaldinu og sést að talsvert mikil breyting hefur orðið frá því í marsmánuði. í byrjun mars lækkaði verðlag talsvert og því bjuggumst við við verulegri lækkun á kostnaði heimilanna í þeim mánuði. En raunin varð önnur því kostnaðar- liðurinn matur og hreinlætisvörur hækkaði um 21% á milli febrúar og mars. Seðlamir, sem okkur hafa borist fyr- ir aprílmánuð, segja þó allt aðra sögu því meðaltalið hefur lækkað um 11,78% ef miðað er við marsmánuð. f þetta sinnið var landsmeðaltalið 4.587,- á mánuði, en í mars var það 5.200,-. Því virðist sem lækkun á vöm og þjón- ustu hafi ekki komið fram fyrr en í apríl, en þess ber þó einnig að gæta að ef litið er til síðustu ára sést að venjan er að kostnaður sé minni í aprílmánuði en í mánuðinum þar á undan. Ef litið er á meðaltalið eftir fjöl- skyldustærð þá kemur aprílmánuður þannig út: Einstaklingur: 6.826,- 2ja manna: 5.940,- 3ja manna: 4.579,- 4ra manna: 4.289,- 5 manna: 4.588,- 6 manna: 2.948,- 7 manna: 2.944, Athyglisvert er hve heimilisútgjöld- in minnka snarlega hjá 6 manna fjölskyldunni og er kostnaður á ein- stakling nálægt því að vera 1/3 af því sem er hjá þeim sem búa einir. Þess ber þó að gæta að fæstir sendu inn seðla í eins manns og sex manna fjöl- skyldu og þvi síður marktækt en tölur yfir útgjöld 3ja og 4ra manna íjöl- skyldu, þar sem flestir sem sendu inn seðla eru með þessa fiölskyldustærð. Annað var það sem vakti athygli okkar og það var liðurinn „annað“ sem felur í sér öll útgjöld önnur en matvæli og hreinlætisvorur. Þessi lið- ur tekur yfir alla reikninga s.s. rafmagn, hita, síma o.þ.h., fatnað, af- borganir af lánum og hvem þann aukakostnað sem til fellur. í aprílmán- uði hljóðaði hæsti liðurinn upp á 251.000,- en varð 271.000,- með fæði. Inn í þessari tölu vom afborganir og önn- ur útgjöld sem ekki var hægt að komast hjá. Það var 5 manna fiöl- skylda sem þurfti að standa undir þessum útgjöldum í aprílmánuði. Önn- ur 5 manna fiölskylda þurfti að greiða 101.000 í „annað“ í apríl og verður að segjast að það hlýtur að vera erfitt að ná endum saman með svo mikil út- gjöld. Að öðm leyti var meðaltalið um 35.000,-. Kostnaður heimilanna virðist þó fara minnkandi, a.m.k hvað varðar útgjöld vegna matar og hreinlætis- vara. Það er rétt að beina þeim tilmælum til ykkar að vera dugleg að senda seðlana inn því bæði gerir það tölur okkar marktækari og hjálpar ykkur að hafa betri stjóm á útgjöldum heimilanna. Sumir hafa verið með allt frá upphafi, en streymið er nokkuð jafnt þannig að álíka fiöldi dettur út og bætist við. Upplýsingaseðlar munu birtast í blaðinu í þessari viku og þeirri næstu, gagngert til að þið klipp- ið þá út og sendið útfyllta við fyrsta lækifæri. -S.Konn. \ m r vv && íh l 1 - ‘ 9nÆ Jb Efc#j#Tir3iB^BBi \ ■ - - If® píwrsí j.- Raddir neytenda Hver gerir við silki? Lára Hanna hringdi: Hún vildi spyijast fyrir um hvort ekki væri einhver sem tæki að sér að gera við silki. Hún sagðist hafa lent í því að á skemmtistað fékk hún bruna- gat á silkikjól sem hún var í og hefur ekki haft erindi sem erfiði við að finna einhvem til að bæta skaðann. Ef einhver veit hver tekur slíkar viðgerðir að sér þá vinsamlegast hafið samband við Neytendasíðu DV í síma 27022. -S.Konn. Hvar er hægt að fa leigt hjól? Sigurður hringdi: „Mér þætti vænt um ef einhver gæti bent á reiðhjólaleigu. Ég hef gaman af því að fa mér hjóltúr af og til, en reiðhjól em svo dýr að það borgar sig varla að fiárfesta í slíku ef maður hjól- ar ekki mjög mikið. í góðu veðri langar mann oft til að fara í styttri hjóltúra og lendir þá í vandræðum þar sem enginn virðist leigja út hjólhestana." Þessu er hér með komið á framfæri og þeir sem geta veitt einhveijar upp- lýsingar em vinsamlega beðnir að hafa samband við neytendasíðu DV í síma 27022. -S.Konn. UpplýsingaseóiU til samanbuióar á heimiliskostnaði! Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega scndið nkkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- | I andi i upplVsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjðlskvidu af somu stærð og yðar. 1 Nafn áskrifanda I------------------- I i i i Sími Heimili I Fjöldi heimilisfólks. Kostnaður í maí 1986. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaó kr. Alls kr. i í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.