Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1986, Side 13
DV. MÁNUDAGUR 9. JÚNÍ 1986.
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Langanir og hvað þær geta þýtt
Margir þekkja það að langa ein-
hvem tíma mjög mikið í ákveðna
matvælategund. Oft verða þessar
sérstöku þarfir til af því að mataræð-
ið í heild sinni er ófiillnægjandi, þú
færð líklega ekki nóg af ákveðnum
vítamínum eða steinefnum.
Algengar langanir em t.d.:
Bananar: Ef þú verður mjög sólg-
inn í banana gæti það stafað af því
að líkami þinn þarf á kalíum að
halda. Það em 555 mg af kalíum í
meðalstórum banana. Fólk á þvag-
ræsilyfjum er oft sólgið í banana.
Ostur: Ef þú ert farinn að þrá ost,
án þess að vera sérlega mikið fyrir
osta, er mjög líklegt að raunverulega
löngunin sé í kalk og fosfór.
Epli: Hafir þú tilhneigingu til að
borða mikið af mettaðri fitu gæti það
útskýrt löngun þína í epli. í eplum
em mörg efiii sem gæti vantað í
aðra fæðu þína, kalk, magnesíum,
fosfór, kalíum - auk þess að vera frá-
bær upspretta pektíns sem lækkar
kólesterólmagn líkamans.
Hnetur: Séu hnetur oft á óskalist-
anum hjá þér er líklegt að þú þurfir
meira prótín, B-vítamín og fitu í mat
þinn. Ef um saltaðar hnetur er að
ræða gæti verið að natrínþörf væri
skýringin. Fólk sem er undir miklu
álagi hefur tilhneigingu til að borða
meira af hnetum en afelappaðir ein-
staklingar.
Egg: Að frátöldu prótíninu, brenni-
steininum, amínósýrunum og selen-
prótíni gætu eggjaunnendur verið
að leita eftir fituinnihaldi rauðunnar
eða, mótsagnakennt, kólíninu í egg-
inu sem leysir upp kólesteról og fitu.
Salt: Það er ekki um það að villast
að það er natrínið sem þú sækist
eftir. Fólk með óeðlilega háan blóð-
þrýsting sækir gjaman í salt en ætti
ekki að láta það eftir sér.
Mjólk: Ef þú ert fullvaxta og ennþá
sólginn í mjólk gætirðu þurft á kalki
að halda. Á hinn bóginn gætu það
verið amonísýrumar, s.s tryptófan,
levsín og lysín, sem líkami þinn
þarfnast. Taugaveiklað fólk er
gjaman að leita eftir tryptófaninu í
mjólk þar eð áhrif þess em afar ró-
andi. -RóG.
Leiðrétting
1 miðvikudagsblaði DV vom kynntir
pottar og pönnur sem póstverslun H.
Gestssonar flytur inn og selur. I síma-
númerinu, sem gefið var upp, var villa
sem við leiðréttum hér með. Rétt núm-
er er 92-3453.
Raddir neytenda
Hver á
rétHnn?
Ólafur hringdi:
„Vinur minn lenti í árekstri síðast-
liðinn vetur. Bíllinn hans er tryggður
hjá Sjóvá h/f og mátu þeir hann í 50%
órétti. Bíllinn sem hann lenti í árekstri
við er tryggður hjá Ábyrgð h/f og var
sá bíll metinn í 100 % rétti hjá þeim.
Af þeim sökum neita þeir að borga
nokkuð. En ég get ekki skilið annað
en að þeir séu skyldugir til að greiða
skaðann."
Neytendasíðan hafði samband við
Ólaf Bergsson hjá Sjóvá, kynnti fýrir
honum málið sem hann kannaðist við.
Sagði hann að hér væri um ágreining
að ræða um atburðarás slyssins. Engin
hlutlaus vitni væm til staðar og yrði
því hvort tryggingarfélagið fyrir sig
að fara eftir framburði viðskiptavinar
síns. Slysið hefði gerst við þannig að-
stæður að erfitt væri að meta tildrögin
og yrði þvf eingöngu að styðjast við
framburð tjónsaðila. Það eina sem
hægt væri að gera í máli sem þessu
væri að snúa sér til dómstóla, þeir ein-
ir hefðu það hlutverk að dæma í
slíkum ágreiningsmálum.
-RóG.
Varðan gerir
við fóður
Helena hringdi fyrir nokkrum dög-
um í neytendasíðuna og spurðist fyrir
um hvar hægt væri að láta gera við
fóður í barnavagni. Samkvæmt upp-
lýsingum DV fæst gert við þvílíkar
skemmdir í Vörðunni, Grettisgöt.u 2.
SUMARTILBOÐ FLUGLEIÐA
FLUG,BÍLL OG WALCHSEE
Kr.17280-
Dæmi um verö og möguleika:
2 fullorðnir og 2 börn, 2—11 ára, í 2 vikur. Flug báðar leiðir
um Luxemborg, bílaleigubíll í B flokki allan tímann og íbúð á
íbúðahótelinu llgerhof, aðeins 17.280 kr. Verð á aukaviku með
öllu; 4.579 kr. per mann. Verð miðað við verðtímabilið 3.—17.
júlí.
. . . Og það eru fleiri möguleikar
Við bjóðum einnig sumarhús í sumarleyfisparadís Biersdorf
og í Zell Am See.
Takmarkaður sætafjöldi og brottfarardagar.
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
MÖGULEIKARNIR EIGA SÉR ENGIN LANDAMÆRI.
FLUGLEIÐIR
Upplýsingasími: 25100
VjS/VSQ